Skoðun

Leyndinni loks af­létt

Jón Pétur Zimsen skrifar

Eftir 10 ára leynd fá skólar og minni sveitarfélög loksins aðgang að eigin PISA-niðurstöðum.

Höfum það í huga að niðurstöðurnar geta gefið ágætar vísbendingar um stöðu þeirra mikilvægu þátta sem PISA mælir og að niðurstöður fámennra skóla eru háðar meiri tölfræðilegri óvissu en niðurstöður fjölmennari skóla.

Í skýrslu OECD um PISA frá 2022 segir:

„Þar sem PISA-rannsóknin nær til alls þýðisins (allra nemenda) er hægt að fylgjast með PISA-niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma.“

Allir nemendur taka prófið hér á Íslandi sökum fámennis, en í langflestum öðrum ríkjum eru tekin úrtök, oft um 42 nemendur í hverjum skóla. Þess vegna hefði verið hægt að fylgjast með niðurstöðum einstakra skóla á Íslandi undanfarin 10 ár.

Önnur ríki hafa árum saman veitt skólum sínum aðgang að þessum niðurstöðum og þannig sýnt þeim þakklæti og aukið tilgang prófanna fyrir nemendur og foreldra. Þá hafa skólar þessara ríkja getað nýtt sér niðurstöðurnar til umbóta í þágu nemenda sinna.

En ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið.

Síðast þegar skólar gátu sótt eigin niðurstöður til yfirvalda, eftir PISA-prófið 2015, ákvað mikill meirihluti skólastjóra að sækja ekki niðurstöður sinna skóla. Þeir kusu því miður að lifa í myrkrinu.

Vonandi munu foreldrar hvetja stjórnendur skóla barna sinna til að sækja niðurstöðurnar og nýta sér að leyndinni hefur verið aflétt.

Allar upplýsingar um árangur í skólastarfi eru mikilvægar og okkur ber skylda til að nýta þær í þágu barna. Það á ekki að fela veikleikana heldur vinna með þá og bæta úr þeim.

Leynd á ekki að bitna á börnum.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×