Innlent

Musk setti Úkraínumönnum tak­mörk á tengingar við Starlink

Agnar Már Másson skrifar
Musk er sagður hafa rætt við Trump um ákvörðunina.
Musk er sagður hafa rætt við Trump um ákvörðunina. Getty/Andrew Harnik

Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku.

Bandaríska dagblaðið Wall Street Journal hefur þetta eftir fjölda heimildarmanna.

Miðillinn segir að Musk hafi í kjölfarið rætt ákvörðunina við Donald Trump Bandaríkjaforseta í gegnum síma en haft er eftir einum heimildarmanni að þeir hafi einnig rætt málið áður en takmarkanirnar tóku gildi.

Úkraínumenn urður varir við takmarkanirnar aðfaranótt 14. október en þær snerust sérstaklega að Starshield-kerfinu sem er sérstakur hluti Starlink sem stjórnað er af varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna.

Úkraínuher sagði að takmarkanirnar hefðu falist í því að þegar móttökustöðvarnar næðu tilteknum hraða slökktu þær á sér. Vegna þessa hafi úkraínskir hermenn misst samband við dróna sem þeir hafi verið að fljúga þegar drónarnir voru komnir á sextíu kílómetra hraða.

Þetta gerðist í framhaldi af því að bandarískir embættismenn voru sagðir hafa hótað því að hætta stuðningi við Úkraínu ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.

Bæði Musk og Trump hafa lýst óánægju í garð Úkraínumanna vegna árása á rússneska olíuinnviði og nýlega gerði Trump samkomulag við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300 þúsund tonnum af dísilolíu fyrir Bandaríkin og alþjóðamarkað og dró úr viðskiptaþvingunum gagnvart Rússum.

Í kjölfar kvartana Volodimírs Selenskí Úkraínuforseta á opinberum vettvangi varð uppi mikil óvissa í Hvíta húsinu um hver hefði tekið ákvörðunina um að takmarkanirnar, auk þess sem ráðist var í óformlega rannsókn á málinu innan að sögn WSJ.

WSJ greinir þá frá því að fulltrúi SpaceX hafi á hringt í starfsmenn Hvíta hússins í von um að komast að sameiginlegum skilningi í málinu og koma sér saman um skilaboð þess efnis að fyrirtækið og ríkisstjórn Trumps hafi ráðist í þessa aðgerð samkvæmt fyrirmælum Musks.

Musk hafði áður, í færslu á X, þvertekið fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Slíkar ákvarðanir væru alfarið í höndum Bandaríkjahers og forsetaembættisins.

Haft er eftir nokkrum bandarískum ráðamönnum í umfjöllun WSJ að Musk hafi ákveðið þetta að eigin frumkvæði og að Trump hefði ekki fyrirskipað neinar aðgerðir gagnvart Úkraínumönnum. Jafnframt hefur WSJ eftir heimildarmanni að Musk hefði rætt við fjölda háttsettra embættismanna, þar á meðal Trump, í aðdraganda þess að takmarkanirnar voru settar.

Donald Trump hefur kallað eftir því að Úkraínumenn fái nýjan forseta og hefur Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, tekið undir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×