Skoðun

Fleiri krónur taldar – fáar nýjar

Daði Freyr Ólafsson skrifar

Hinn 16. október sendu utanríkisráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið fjárlaganefnd Alþingis sundurliðun á varnartengdum útgjöldum Íslands. Talan sem stjórnvöld nefna er 48,9 milljarðar króna í ár, eða 0,92% af vergri landsframleiðslu, og hún á að ná 1% árið 2031. Það lítur út eins og Ísland sé vel á veg komið að 1,5% markinu sem við skuldbundum okkur til að ná fyrir 2035. Sundurliðunin segir aðra sögu.

Aðeins um fjórðungur upphæðarinnar fer til varnarmála í þröngum skilningi. Bein framlög til varnarmála, málaflokkur 04.30, nema 10,8 milljörðum króna, eða um 0,2% af landsframleiðslu. Þar undir falla meðal annars rekstur öryggissvæðisins og loftvarnakerfisins í Keflavík, netöryggissveitin CERT-IS og varnartengdur stuðningur við Úkraínu. Afgangurinn er hlutdeild í útgjöldum sem við greiðum hvort sem er: til löggæslu, Landhelgisgæslu, samgangna, sjúkrahúsa, rannsóknasjóða og jafnvel fjölmiðla.

Það er ekki rangt í sjálfu sér. NATO skilgreinir 1,5%-flokkinn vítt og önnur bandalagsríki telja líka fram innviði og áfallaþol. Herlaust land leggur einmitt mest af mörkum með gistiríkjastuðningi og traustum innviðum. Þá verður talningin að vera gagnsæ og hún má ekki koma í stað raunverulegrar aukningar.

Þar liggur vandinn. Frá 2026 til 2031 aukast bein framlög til varnarmála úr 10,8 í 15,1 milljarð króna á föstu verðlagi, eða um 40%. Það er raunveruleg aukning, þótt hún sé frá lágum grunni. Allt annað stendur í stað. Hlutdeild annarra málaflokka ríkissjóðs fer úr 31,6 milljörðum í 31,4. Hlutur Landhelgisgæslunnar lækkar úr 7,9 milljörðum í 7,3 árið 2027, ári eftir að Ísland hét því á leiðtogafundinum í Ankara að axla aukna ábyrgð á vörnum á Norður-Atlantshafi.

Spáin um 1% árið 2031 þarfnast líka skoðunar. Ef hlutföllin í töflu ráðuneytanna eru reiknuð til baka virðist gengið út frá því að landsframleiðsla vaxi ekkert að raungildi til 2031. Með hóflegum hagvexti, um 2% á ári, yrðu sömu útgjöld nær 0,9% af landsframleiðslu það ár. Leiðin að 1% er þá frekar reikningsdæmi en ný framlög.

Stærsta spurningin snýr að 2035. Markmiðið um 1,5% jafngildir um 80 milljörðum króna miðað við hagkerfið í dag, og 95–100 milljörðum árið 2035 ef það vex eðlilega. Áætlun stjórnvalda nær 53 milljörðum árið 2031. Fyrstu fimm árin bætast því aðeins við um fjórir milljarðar, en síðustu fjögur árin þyrfti að bæta við 27 til 46 milljörðum. Nær öll leiðin er geymd fram yfir núverandi fjármálaáætlun.

Fjárlaganefnd hefur á innan við ári fengið tölur á bilinu 10 til 49 milljarða króna um sömu útgjöldin. Ráðuneytin kalla matið sjálf frummat, og engin langtímaáætlun hefur verið lögð fyrir Alþingi þrátt fyrir ítrekaðar óskir. Á meðan svo er geta tölurnar hækkað með endurflokkun einni saman, án þess að nokkur ný geta bætist við.

Alþingi ætti að gera þrjár kröfur. Í fyrsta lagi að birt verði hvaða hlutfall hvers málaflokks er talið fram og á hvaða forsendum. Í öðru lagi að hlutfall af landsframleiðslu verði reiknað út frá opinberri hagspá. Í þriðja lagi að kostnaðarmetin og fjármögnuð áætlun til 2035 liggi fyrir áður en fjárlög ársins 2027 verða afgreidd.

Ísland hefur engan her. Einmitt þess vegna skiptir máli að framlag okkar sé raunverulegt og mælanlegt. Bandamenn okkar munu ekki meta okkur eftir því hversu marga útgjaldaliði við teljum fram, heldur eftir því hvað við getum lagt af mörkum þegar á reynir.

Höfundur er framkvæmdastjóri Varðmanna Íslands.




Skoðun

Sjá meira


×