Neytendur

Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Brynjar Freyr Valsteinsson framkvæmdastjóri Gosfélagsins.
Brynjar Freyr Valsteinsson framkvæmdastjóri Gosfélagsins.

Ekki verður lengur hægt að fá tveggja lítra flöskur af sódavatninu Klaka frá Gosfélaginu innan tíðar. Félagið ætlar að skipta tveggja lítra flöskunum út fyrir minni flöskur sem eru 1,5 lítrar að stærð.

Viðskiptablaðið greinir frá þessu og ræðir við Brynjar Frey Valsteinsson framkvæmdastjóra Gosfélagsins um málið. Hann segir ástæðuna vera ábendingar frá viðskiptavinum um að drykkirnir séu jafnan orðnir goslausir þegar lítið sé eftir í flöskunni. 

Þetta eigi ekki endilega einungis við um Klaka en Brynjar segir með þessu reynt að hafa vöruna sem ferskasta, ekki séu meiri vísindi en það að baki. Nýjar flöskur verði eðli málsins samkvæmt á lægra verði.

Gosfélagið tók yfir sölu og dreifingu á Klaka, Djúsí Klaka og fleiri vörum frá Rolf Johansen & Company haustið 2025. Í tilkynningu frá félaginu frá því í ágúst segir að Klaki og Djúsí Klaki séu drykkir án bragðefna eða með. Þar kom jafnframt fram að til standi að hefja framleiðslu á fleiri drykkjum þegar á þessu ári.

Gosfélagið var stofnað haustið 2025 og standa Brynjar Freyr Valsteinsson framkvæmdastjóri og Kristján Elvar Guðlaugsson fjármálastjóri ásamt fjárfestunum Ásgeiri Johansen og Lofti Bjarna Gíslasyni að baki rekstrinum. Brynjar ræddi opnun nýrrar verksmiðju í Hafnarfirði í Bítinu á Bylgjunni í upphafi septembermánaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×