Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar 19. október 2026 14:30 Mikilvægt er að Íslendingar geri sér grein fyrir þeim miklu og víðtæku réttaráhrifum sem felast í því að samþykkja frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35. Með samþykkt frumvarpsins yrði sett í íslensk lög almenn forgangsregla sem mælir svo fyrir að EES-reglur sem leiddar hafa verið réttilega í landsrétt njóta forgangs fram yfir íslensk lög ef þeim lýstur saman. Þegar EES-samningurinn tók gildi hér á landi þann 1. janúar 1994 fylgdu samningnum rúmlega 1.850 gerðir. Á þeim tæpu 33 árum sem liðin eru síðan hefur umfang samningsins meira en fimmfaldast en hann telur nú yfir 9.200 gildandi gerðir. Bæði inntak og eðli samningsins hefur því sannarlega breyst á síðustu áratugum. Af sögu EES-samningsins er óhætt að fullyrða að samningurinn mun þróast enn frekar og umfang hans bæði aukast og breytast í framtíðinni. Við lögfestingu EES-samningsins árið 1993 innleiddi Ísland bókun 35. Ísland gerði það hins vegar í formi túlkunarreglu/lögskýringarreglu en ekki sem forgangsreglu. Ástæðan var einfaldlega sú að hefði bókunin verið innleidd sem forgangsregla í þágu erlends regluverks hefði verið farið yfir hina rauðu línu stjórnarskrár Íslands, sem hvorki þá né nú, geymir neinar heimildir til að framselja löggjafarvald til alþjóðlegra stofnana. Þessi aðstaða okkar er önnur en t.d. Noregs þar sem norska stjórnarskráin geymir heimild til framsals á löggjafarvaldi að uppfylltum þröngum skilyrðum. Við lögfestingu EES-samningsins á Íslandi vildu stjórnvöld gæta þess að virða stjórnarskrána og tryggja að samningurinn rúmaðist innan hennar. Í 25 ár var þessi innleiðing bókunar 35 formlega athugasemdalaus af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). En núna vilja stjórnvöld breyta bókun 35 í forgangsreglu að kröfu ESA og það án þess að byrja þá á rétta endanum, stjórnarskrá landsins. Sú forgangsregla sem ætlunin er að setja verður tímalaus. Hún mun þannig ekki aðeins virka afturvirkt um allar gildandi EES reglur sem teknar hafa verið upp í EES samninginn síðustu 33 ár, heldur sömuleiðis mun hún gilda fyrir allar EES-reglur framtíðarinnar sem síðar verða teknar upp í samninginn. Þær fá forgangsáhrif einungis vegna þess að þær eru EES-reglur. Tökum eitt lítið dæmi um möguleg framtíðaráhrif. Það er alls ekki ólíkleg sviðsmynd að reglur orkulöggjafar EES-samningsins kunni að taka breytingum síðar sem koma muni illa við það skipulag sem til staðar er hér á landi sem einkennist af einangruðu raforkukerfi þar sem víðtæk samfélagsleg sátt ríkir um þjóðarfyrirtækið Landsvirkjun. Slíkar „neikvæðar“ framtíðarreglur munu þá njóta forgangsáhrifa og ráða umfram okkar reglur, verði bókun 35 innleidd sem forgangsregla. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að fyrirvarar hinnar fyrirhuguðu forgangsreglu eru haldslausir því þeir kalla á óraunhæfa yfirlegu allra EES-reglna hverju sinni og samrýmanleika við landslög þegar þær eru innleiddar í landsrétt. Sé litið til fjölda allra EES-gerða sem teknar hafa verið upp í EES samninginn eru þær nú þegar fleiri en dagarnir sem eru liðnir síðan EES samningurinn tók gildi hér á landi fyrir tæpum 33 árum. Slíkt er umfangið og reglufarganið sem fellur undir bókun 35. Þess vegna er mál bókunar 35 fjarri því að vera einungis lagatæknilegt mál heldur varðar málið mikilvæga þætti í stjórnskipun lýðveldisins og um leið skyldu alþingismanna gagnvart þeirri stjórnskipun. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókun 35 Mest lesið Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Sjá meira
Mikilvægt er að Íslendingar geri sér grein fyrir þeim miklu og víðtæku réttaráhrifum sem felast í því að samþykkja frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35. Með samþykkt frumvarpsins yrði sett í íslensk lög almenn forgangsregla sem mælir svo fyrir að EES-reglur sem leiddar hafa verið réttilega í landsrétt njóta forgangs fram yfir íslensk lög ef þeim lýstur saman. Þegar EES-samningurinn tók gildi hér á landi þann 1. janúar 1994 fylgdu samningnum rúmlega 1.850 gerðir. Á þeim tæpu 33 árum sem liðin eru síðan hefur umfang samningsins meira en fimmfaldast en hann telur nú yfir 9.200 gildandi gerðir. Bæði inntak og eðli samningsins hefur því sannarlega breyst á síðustu áratugum. Af sögu EES-samningsins er óhætt að fullyrða að samningurinn mun þróast enn frekar og umfang hans bæði aukast og breytast í framtíðinni. Við lögfestingu EES-samningsins árið 1993 innleiddi Ísland bókun 35. Ísland gerði það hins vegar í formi túlkunarreglu/lögskýringarreglu en ekki sem forgangsreglu. Ástæðan var einfaldlega sú að hefði bókunin verið innleidd sem forgangsregla í þágu erlends regluverks hefði verið farið yfir hina rauðu línu stjórnarskrár Íslands, sem hvorki þá né nú, geymir neinar heimildir til að framselja löggjafarvald til alþjóðlegra stofnana. Þessi aðstaða okkar er önnur en t.d. Noregs þar sem norska stjórnarskráin geymir heimild til framsals á löggjafarvaldi að uppfylltum þröngum skilyrðum. Við lögfestingu EES-samningsins á Íslandi vildu stjórnvöld gæta þess að virða stjórnarskrána og tryggja að samningurinn rúmaðist innan hennar. Í 25 ár var þessi innleiðing bókunar 35 formlega athugasemdalaus af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). En núna vilja stjórnvöld breyta bókun 35 í forgangsreglu að kröfu ESA og það án þess að byrja þá á rétta endanum, stjórnarskrá landsins. Sú forgangsregla sem ætlunin er að setja verður tímalaus. Hún mun þannig ekki aðeins virka afturvirkt um allar gildandi EES reglur sem teknar hafa verið upp í EES samninginn síðustu 33 ár, heldur sömuleiðis mun hún gilda fyrir allar EES-reglur framtíðarinnar sem síðar verða teknar upp í samninginn. Þær fá forgangsáhrif einungis vegna þess að þær eru EES-reglur. Tökum eitt lítið dæmi um möguleg framtíðaráhrif. Það er alls ekki ólíkleg sviðsmynd að reglur orkulöggjafar EES-samningsins kunni að taka breytingum síðar sem koma muni illa við það skipulag sem til staðar er hér á landi sem einkennist af einangruðu raforkukerfi þar sem víðtæk samfélagsleg sátt ríkir um þjóðarfyrirtækið Landsvirkjun. Slíkar „neikvæðar“ framtíðarreglur munu þá njóta forgangsáhrifa og ráða umfram okkar reglur, verði bókun 35 innleidd sem forgangsregla. Í þessu sambandi er mikilvægt að hafa í huga að fyrirvarar hinnar fyrirhuguðu forgangsreglu eru haldslausir því þeir kalla á óraunhæfa yfirlegu allra EES-reglna hverju sinni og samrýmanleika við landslög þegar þær eru innleiddar í landsrétt. Sé litið til fjölda allra EES-gerða sem teknar hafa verið upp í EES samninginn eru þær nú þegar fleiri en dagarnir sem eru liðnir síðan EES samningurinn tók gildi hér á landi fyrir tæpum 33 árum. Slíkt er umfangið og reglufarganið sem fellur undir bókun 35. Þess vegna er mál bókunar 35 fjarri því að vera einungis lagatæknilegt mál heldur varðar málið mikilvæga þætti í stjórnskipun lýðveldisins og um leið skyldu alþingismanna gagnvart þeirri stjórnskipun. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun