„Við ætlum að vinna rest“ Árni Gísli Magnússon skrifar 10. október 2026 18:35 Sigurður Höskuldsson er staðráðinn í að bjarga Þór frá falli. Hulda/Vísir Þór hafði betur gegn ÍBV, 1-0, í fallbaráttuslag Bestu deildarinnar fyrir norðan í dag.Vonir Þórs um að forðast fall lifa á meðan ÍBV er fallið.
Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var ánægður með frammistöðuna í dag. Ertu búinn að ná þér niður eftir þessari lokamínútur? „Já já ég er búinn að því. Himinlifandi með frammistöðuna í dag, hún var frábær og sérstaklega fyrri hálfleikurinn skóp þennan sigur þar sem við vorum miklu betra liðið. Allt sem við lögðum upp með einhvern veginn svínvirkaði. Leikmennirnir gerðu þetta bara frábærlega vel, vorum mjög orkumiklir, pressan frábær. Varnarleikurinn, þeir fá varla upphlaup á okkur, bara ótrúlega svekkjandi að vera ekki meira en 1-0 yfir í hálfleik því mér fannst við vera skila frammistöðu sem ætti að vera tvö, þrjú núll yfir í hálfleik.“ „Í seinni hálfleik þá eigum við náttúrulega tvö færi bara eiginlega fyrir opnu marki sem hefði getað lokað þessu þannig að pínu svekkjandi að hafa bara ekki klárað það. Á hinn bóginn þeir fá varla færi, það er eitthvað svona boltinn skoppandi eftir föst leikatriði annars bara var varnarleikurinn í dag stórkostlegur.“ ÍBV skoraði tvívegis en í bæði skiptin í ólöglega þar sem í fyrra skiptið var brot og seinna skiptið rangstaða. Sigurður segir ekki hafa verið stutt á milli og leikurinn þ.a.l. geta endað með jafntefli. „Nei nei, það er augljóst að þessu mörk áttu ekki að standa þannig þú getur bara kastað honum inn ef þú ætlar að skora eitt mark og segja bara heyrðu við skoruðum eitt en mér fannst við bara verðskulda þennan sigur mjög.“ Tveir úrslitaleikir framundan Hvernig undirbúið þið ykkur fyrir þessa tvo úrslitaleiki sem eru eftir? „Bara svipað og þennan; við ætlum bara eins og ég sagði fyrir leik við ætlum að keyra á þetta, við ætlum að sækja þessa sigra, við ætlum að vinna rest og frábær byrjun á því plani hérna í dag. Ef við vinnum síðustu tvo leikina myndi ég halda að við verðum áfram í deildinni á næsta tímabili.“ ÍBV er fallið og ljóst að annað hvort Þór eða KA fylgir Eyjamönnum niður þar sem FH er gott sem hólpið eftir sigur þeirra á Val í dag. „Já sem er ótrúlegt og ótrúlega svekkjandi að það skuli vera staðan því að þessir leikir sem eru búnir að vera hérna er búin að vera frábær skemmtun og frábær upplifun fyrir bæjarbúa. Svekkjandi að annað liðið þurfi að fara niður en við ætlum að vinna þá baráttu“, sagði Sigurður að lokum.“
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Þór Akureyri Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Fleiri fréttir Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira