Enn lítið um svör í Englandi Samúel Karl Ólason skrifar 29. september 2026 14:08 Enn er mikill viðbúnaður við Fairford-herstöðina. AP/Alastair Grant Yfirvöld í Bretlandi hafa enn litlu svarað um handtöku fimm manna nærri mikilvægri herstöð í Englandi á sunnudaginn. Mönnunum var sleppt í gær og hefur það vakið mikla furðu, þar sem þeir voru handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi var lýst yfir við herstöðina, þar sem enn má sjá mikinn viðbúnað.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Marco Rubio, utanríkisráðherra, hafa lýst yfir furðu sinni á því að mönnunum hafi verið sleppt úr haldi gegn tryggingu. Fimm ungir menn, allir breskir ríkisborgarar, voru handteknir í Whelford aðfaranótt sunnudagsins. Þá hafði bóndi á ferðinni nærri Fairford-flugstöðinni séð mennina á þremur sendiferðabílum og segir hún að þeir hafi verið grímuklæddir og reynt að fela sig fyrir henni. Hún hringdi á lögregluna og mennirnir voru handteknir vegna gruns um að þeir hefðu brotið gegn lögum um meðferð sprengiefna. Í kjölfarið var svo bætt við að þeir væru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Eins og áður segir var neyðarástandi lýst yfir og var lögreglan með gífurlegan viðbúnað á svæðinu. Öryggisráðstafanir í herstöðinni voru auknar til muna og embættismenn hafa talað um að komið hafi verið í veg fyrir hörmulega atburði. Sjá einnig: Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Einnig hafa breskir embættismenn talað um að erlent ríki hafi komið að málinu með einhverjum hætti, sem Rubio tók einnig undir í gærkvöldi. Í viðtali á Fox sagðist hann ekki geta tjáð sig almennilega um málið en gaf til kynna að atvikið hefði getað verið gífurlega alvarlegt. „Ég átta mig ekki á því af hverju Bretar slepptu þessum fimm mönnum,“ sagði Rubio. 🚨 MAJOR BREAKING: Sec. Marco Rubio announces a "FOREIGN ACTOR" was involved in the planned terrorist attack on RAF Fairford base UK — 5 of the suspects are now OUT ON BAIL"A LOT more news will come out on this.""I have to be careful, there are some things I cannot… pic.twitter.com/K5x3FjItI1— Eric Daugherty (@EricLDaugh) September 29, 2026 Flestum íbúum Whelford var gert að yfirgefa heimili sín og sýndi myndefni úr þyrlum og drónum að sprengjusérfræðingar voru að nota róbóta til að skoða sendiferðabílana þrjá. Búið var að merkja bílana tilteknu fyrirtæki, en nafnið var rangt og rangur litur á merki fyrirtækisins. Þetta fyrirtæki flytur eldsneyti á bóndabæi í Bretlandi og hefur verið talað um að tunnur hafi fundist í bílnum. Líklega engar sprengjur í bílnum Í gær var mönnunum fimm svo sleppt óvænt úr haldi lögreglu, sem vakti strax mikla furðu, og hafa litlar upplýsingar verið veittar um málið síðan. Það sem hefur verið sagt er að yfirvöld séu að skoða aðkomu annarra ríkja að málinu og það hvort að mennirnir hafi mögulega unnið ómeðvitað fyrir annað ríki. Spjótin hafa beinst að Íran, þar sem umrædd herstöð hefur verið notuð af Bandaríkjamönnum. Langdrægum sprengjuflugvélum hefur verið flogið þaðan til árása í Íran. Útlit er fyrir að engar sprengjur hafi fundist í sendiferðabílunum þremur og var íbúum Whelford í gær leyft að fara aftur heim til sín. Sjá einnig: Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Heimildarmenn Guardian segja það að mönnunum hafi verið sleppt benda til þess að talið sé að þeir hafi ekki haft í hyggju að fremja einhvers konar árás. Í frétt Sky News segir þó að öryggisgæsla sé enn mikil á svæðinu. Lögregluþjónar séu að stöðva bíla og ræða við fólk í þeim og vísa á brott þeim sem eiga ekki heima í þorpinu. Þá eru lögregluþjónar enn að störfum á vettvangi þar sem sendiferðabílarnir voru. Enn liggur ekkert fyrir um hvað mönnunum gekk til, eins og hvað þeir voru að gera og hvort þeir voru að gera það fyrir einhvern. Þá er ekki einu sinni vitað hvort þeir hafi verið að brjóta eitthvað af sér.
England Bretland Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira