Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar 29. september 2026 07:02 Kynheilbrigði er mikilvægur þáttur í lífi hvers og eins og hluti af almennu heilbrigði. Rannsóknir sýna að börn og ungmenni með öðruvísi taugaþroska eru allt að fjórum sinnum líklegri til að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi heldur en jafnaldrar þeirra sem fylgja dæmigerðu þroskaferli. Birtingamyndir og einkenni fjölbreytts taugaþroska eru margskonar en hér á eftir er einkum átt við taugafjölbreytta einstaklinga, taugaþroska sem vísar meðal annars til þroskahamlaðra ungmenna með eða án einhverfu. Kynfræðsla er mikilvæg fyrir öll ungmenni en í ljósi þessarar áhættu ætti hún að vera í meiri forgangi fyrir ungmenni með öðruvísi taugaþroska. Þessi hópur er stundum berskjaldaður þegar kemur að því að lesa í aðstæður, skilgreina hugtök, tjá vilja sinn og þekkja inn á sín eigin mörk og mörk annarra. Því miður er víða pottur brotinn í kynfræðslu á grunn- og framhaldskólastiginu hér á landi fyrir þennan hóp ungmenna. Vissulega eru sumir skólar að standa sig prýðilega hvað þetta varðar en það er ekki nóg, það þurfa allar skólastofnanir sem bera ábyrgð á menntun þessara barna að standa sig vel. Ný tækni með auknu aðgengi að vafasömum upplýsingum, jafnvel klámi reynst sérstaklega flókin fyrir þennan hóp sem eiga sum erfitt með að lesa í aðstæður og samskipti. Hvað er í lagi og hvað ekki? Hvað þarf að varast? Í hverju felast hætturnar t.d. í textaskilaboðum á samfélagsmiðlum? Allar þessar tækninýjungar sem verið er að bjóða upp á í símum og með tölvutækni geta skaðað kynheilbrigði og velferð ungmenna almennt en ekki síst þeirra sem eru berskjölduð vegna fötlunar sinnar. Þörfin hefur aldrei verið meiri en nú ekki síst í ljósi allra þeirra tækniframfara sem átt hafa sér stað á undanförnum áratug. Helstu aðferðirnar til að stuðla að því að kynverund barna og unglinga þroskist með eðlilegum hætti eru forvarnir. Tryggja þarf sérstaklega að þessi hópur fái nægilega kynfræðslu sem og þjálfun og tækifæri til að læra um atriði sem varða kynheilbrigði almennt til að hægt sé að stuðla að auknu sjálfstæði og velferð þessara ungmenna. Foreldrar bera lykilábyrgðina á að veita börnum sínum kynfræðslu. Hins vegar getur það stundum verið flókið vegna ýmissa áskorana sem tengjast taugaþroska barnsins. Það er sjaldnast á færi foreldris að geta borið þessa ábyrgð eitt þegar huga þarf að allskonar íhlutunarleiðum og séraðlöguðu námsefni til að mæta þörfum ungmenna á þessu sviði. Hér er mikilvægt að stuðningskerfið virki og heimili og skóli vinni saman. Rannsóknir sýna að ungmenni og fullorðið fólk með fjölbreyttan taugaþroska eru líklegri en aðrir til að sýna hegðun sem er ekki viðeigandi á almannafæri. Oft má rekja þessa hegðun beint til þess að viðkomandi hefur ekki hlotið næga kynfræðslu, eða t.d. fræðslu um ólíkar tegundir sambanda og mörk í samskiptum. Kynþroskaárin valda foreldrum þessara barna oft áhyggjum, það er meðal annars hvernig börn þeirra nái að takast á við allar þær líkamlegu og andlegu breytingar sem fylgja þessu þroskaskeiði. Að þau læri að tileinka sér færni sem þau þurfa til að geta borið ábyrgð á eigin hegðun, sett mörk og átt innihaldsríkt og farsælt líf. Rannsóknir sýna jafnframt að fagaðilar og stuðningsaðilum finnst stundum flókið að kenna þessum hópi kynfræðslu. Það skiptir máli að til sé sérhæft námsefni sem auðvelt er að nýta með áþreifanlegum dæmum og nemandinn fái tækifæri til að æfa sig. Dr. Kathryn Pedgrift sálfræðingur og samstarfsfólk hennar hafa þróað einstakt og gagnreynt kynfræðsluefni Relationships Decoded for Adolescents, eða Sambönd og samskipti fyrir ungmenni með öðruvísi taugaþroska. Efnið fjallar meðal annars um ólíkar tegundir sambanda, samskipti, mörk og öryggi. Það er sett fram á aðgengilegan hátt fyrir kennslu og inniheldur einnig efni sem nýtist foreldrum. Ráðgjafar- og greiningarstöð býður upp einstakan viðburð þar sem höfundar kynna námsefnið mánudaginn 5. október, fyrir foreldrum, aðstandendum og fagfólki. Þriðjudaginn 6. október sjá höfundar um þjálfun fyrir fagfólk sem vill nýta efnið í starfi. Skráningu lýkur 1. október. Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Ráðgjafar- og greiningarstöðvar. Höfundur er félagsráðgjafi á Ráðgjafar- og greiningarstöð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Börn og uppeldi Grunnskólar Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun