Skoðun

Þegar tíminn skiptir öllu

Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Í návígi við krabbamein fær tíminn gjarnan aðra og dýpri merkingu.

Það á við hvort sem um er að ræða greiningu eða meðferð og eftir að meðferð lýkur.

Tímanum meðan beðið er eftir rannsóknarniðurstöðum í aðdraganda greiningar krabbameins lýsir fólk oft sem einum þeim erfiðasta, með algerri óvissu. Tímanum í krabbameinsmeðferð lýsa margir eins og rússíbana með hæðum og lægðum og sléttum köflum á milli þar sem óljóst er hvað framundan er. Sá tími gleymist seint, bæði sjúklingum og aðstandendum.

Þá verður tíminn sérstaklega dýrmætur þegar fólk stendur í þeim sporum að hann sé takmarkaður.

Tíminn skiptir líka máli varðandi greiningu og meðferð krabbameins því að það hvenær krabbamein greinist hefur mikla þýðingu fyrir batahorfur og val á meðferð. Einmitt af þeim ástæðum snýst Bleika slaufan í ár um að fræða konur og samfélagið allt um þau einkenni sem geta bent til krabbameins og að hvetja fólk til að bíða ekki úr hófi með að leita læknis.

Sem betur fer eru einkenni oftast af völdum annars en krabbameins en þegar þau eru vegna krabbameins skiptir máli að þau greinist sem fyrst svo hægt sé að hefja viðeigandi meðferð. Í öllu þessu skiptir tíminn máli, að engar tafir verði á leiðinni og að allt sé gert sem unnt er, til að tíminn sé sem bestur.

Tímann teljum við oft í stundum. Á Bleika deginum sem er í dag sameinast samfélagið allt í stuðningi og hluttekningu með fólki og aðstandendum þeirra sem glíma við krabbamein eða hefur gert það og minnist þeirra sem við höfum misst úr krabbameinum. Bleiki dagurinn einkennist af samstöðu sem við hjá Krabbameinsfélaginu heyrum oft hve miklu máli skiptir fólk. En við heyrum líka af því að hann getur verið áminning um erfiðar stundir og það skulum við hafa bakvið eyrað.

Bleiki dagurinn snýst nefnilega ekki bara um að klæðast bleiku frá toppi til táar og gera sér glaðan dag, hann er líka innihaldsríkur. Bleiki dagurinn gefur tækifæri til að skapa góðar og innihaldsríkar stundir með hverjum þeim hætti sem fólki hentar, hvar sem er á heimilum, á vinnustöðum eða í skólum og hvernig sem aðstæður eru. Hver stund skiptir máli og við viljum nýta tímann með sem bestum hætti.

Við hjá Krabbameinsfélaginu þökkum samfélaginu af öllu hjarta fyrir stuðninginn í Bleiku slaufunni og fyrir að taka undir með okkur á Bleika daginn.

Höfundur er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.




Skoðun

Sjá meira


×