Skoðun

Hand­bók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit

Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Steve Bannon, fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, sagði frægt í viðtali árið 2018: „Demókratarnir skipta ekki máli. Raunverulegi andstæðingurinn eru fjölmiðlarnir. Og leiðin til að eiga við þá er að fylla svæðið af skít“ (e. flood the zone with shit). Hann hélt áfram og útskýrði tæknina: „Það eina sem við þurfum að gera er að drekkja þeim í upplýsingaflóði. Á hverjum degi hendum við þremur málum í þá. Þeir bíta á agnið í einu þeirra og á meðan komum við öllu okkar í gegn. Bang, bang, bang. Þessir náungar munu aldrei ná að jafna sig. En við verðum að byrja af fullum krafti.“

Hann lýsir þarna aðferð sem gengur út á að yfirþyrma almenning og fjölmiðla með stöðugu og gríðarlegu magni af fréttum, orðrómi, hneykslismálum og fullyrðingum sem stangast á og jafnvel samsæriskenningum, þannig að hefðbundnir fjölmiðlar og andstæðingar ná aldrei að fylgja þeim eftir, sérstaklega í fjölmiðlaumhverfi nútímans. Þarna er nýtt að blaðamenn eru víða undirmannaðir og fjölmiðlar vanfjármagnaðir, sem gerir það að verkum að fréttastofur hafa einfaldlega ekki bolmagn til að rannsaka eða staðreyndatékka allt flóðið. Þessi aðferð Bannons á sér skýra hliðstæðu í rússneskri áróðurstækni sem nefnist Firehose of Falsehood.

Samfélagsmiðlar spila stórt hlutverk

Samfélagsmiðlar hafa gert þessa aðferð enn áhrifaríkari. Með hjálp gerviaðganga og svokallaðra botta er hægt að magna upp tiltekin mál og láta jaðarskoðanir virðast útbreiddari en þær eru í raun. Reiknirit samfélagsmiðla, sem spila inn á frumstæðustu hvatir mannsins, pikka þetta svo upp. Þau horfa ekki til þess hvort upplýsingarnar séu sannar, heldur mæla þau eingöngu viðbrögð notenda. Efni sem vekur upp sterk viðbrögð, sérstaklega reiði, ótta og fár, fær því langoftast mestu athyglina og dreifinguna.

Hvernig tæknin virkar í framkvæmd

Aðferðin gengur meðal annars út á að dreifa athygli fólks með því að dæla stanslaust út nýjum hitamálum, upphlaupum og deilum. Það getur til dæmis gerst þegar þingmaður, stjórnmálamaður, áhrifavaldur, hlaðvarpsstjórnandi eða annar þekktur einstaklingur hendir fram umdeildri fullyrðingu eða kveikir nýtt menningarstríð. Þegar upplýsingaflóðið verður nógu mikið verður sífellt erfiðara fyrir fjölmiðla og almenning að fylgjast með, hvað þá að átta sig á því hvað skiptir raunverulega máli.

Á sama tíma er umræðunni beint frá stærri málum. Eins og Bannon sagði:„Á hverjum degi hendum við þremur málum í fjölmiðla. Þeir bíta á agnið í einu þeirra og á meðan komum við öllu okkar í gegn.”

Þegar fjölmiðlar og pólitískir andstæðingar hlaupa á eftir hverri nýrri fullyrðingu, reyna að leiðrétta rangfærslur og slökkva elda, getur skapast svigrúm til að koma stórum og umdeildum ákvörðunum í gegn án þess að þær fái þá umfjöllun og gagnrýni sem þær annars hefðu fengið.

Annað sem einkennir þessa aðferð er hvernig hún getur grafið undan sjálfum sannleikanum. Tilgangurinn er ekki endilega að sannfæra fólk um eina ákveðna lygi, heldur að skapa svo mikinn glundroða að fólk gefist smám saman upp á að reyna að greina á milli staðreynda og ósanninda. Þeir sem beita þessari aðferð þurfa ekki einu sinni að hafa áhyggjur af því þótt fullyrðingar þeirra stangist á við fyrri yfirlýsingar eða augljósar staðreyndir, þetta snýst fyrst og fremst um magn fremur en gæði.

Þetta getur síðan grafið undan trausti á fjölmiðlum, vísindum og samfélagslegum stofnunum. Þegar fólk upplifir að enginn sé að segja satt og að ekki sé lengur hægt að treysta neinum, er hætt við að það dragi sig alfarið út úr samfélagsumræðunni, sem styrkir stöðu þeirra sem beita tækninni.

Á meðan heldur sá sem beitir tækninni frumkvæðinu. Um leið og fjölmiðlar eða andstæðingar hafa náð að hrekja eina fullyrðingu eru kannski fimm nýjar komnar fram. Athyglin færist stöðugt á milli mála, umræðan verður sundurlaus og heildarmyndin tapast.

Þetta er uppskriftin á pólitískum níhilisma.

Báðar hliðar eru hvort sem er að ljúga

Þegar almenningur getur ekki lengur áttað sig á hvað er satt eða logið verða viðbrögðin oft þau að treysta engu og segja: “Báðar hliðar eru hvort sem er að ljúga,“ “allir flokkar eru eins“ eða “allir stjórnmálamenn eru eins.“ Fólk hættir að geta greint rétt frá röngu og dregur sig í hlé. Þegar þangað er komið hefur sá sem beitti tækninni unnið.

Lúmskasti hluti þessarar tækni er hvernig hagsmunaöfl, peningaöfl, “óháðir álitsgjafar“, gervigrasrót og spunameistarar ná að stýra því um hvað allt samfélagið talar, með því að móta frásögnina, en búa á sama tíma til þá blekkingu að almenningur hafi sjálfur valið umræðuefnið. Mesta tálsýnin felst einmitt í því að láta fólk trúa því að umræðan spretti lífrænt að neðan, á meðan henni er í raun stýrt að ofan.

Lögmál Alberto Brandolini

Að lokum er rétt að nefna lögmál Alberto Brandolini (e Brandolini Law), en hann er ítalskur tölvunarfræðingur og forritari. Lögmálið varð til í febrúar 2013 þegar hann fylgdist með ítölskum stjórnmálakappræðum í sjónvarpinu á milli Silvio Berlusconi og blaðamannsins Marco Travaglio. Brandolini varð svo langþreyttur á að hlusta á Berlusconi spúa út ósannindum sem tók marga klukkutíma að hrekja að hann skrifaði þetta fræga tíst á Twitter (sem nú heitir X) “The amount of energy needed to refute bullshit is an order of magnitude larger than is needed to produce it.“Eða á íslensku “Sú orka sem þarf til að hrekja kjaftæði er margfalt meiri en orkan sem þarf til að búa það til.“ Eða með öðrum orðum. Það tekur sekúndu að ljúga eða dæla út vitleysu, en marga klukkutíma að hrekja hana með staðreyndum.

Fyrir þá sem vilja dýpka sig frekar í skyldum áróðurstæknum er rétt að benda á grein mína frá um Gish gallop tæknina

Höfundur er Pírati.




Skoðun

Sjá meira


×