Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar 21. október 2026 09:47 Steve Bannon, fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, sagði frægt í viðtali árið 2018: „Demókratarnir skipta ekki máli. Raunverulegi andstæðingurinn eru fjölmiðlarnir. Og leiðin til að eiga við þá er að fylla svæðið af skít“ (e. flood the zone with shit). Hann hélt áfram og útskýrði tæknina: „Það eina sem við þurfum að gera er að drekkja þeim í upplýsingaflóði. Á hverjum degi hendum við þremur málum í þá. Þeir bíta á agnið í einu þeirra og á meðan komum við öllu okkar í gegn. Bang, bang, bang. Þessir náungar munu aldrei ná að jafna sig. En við verðum að byrja af fullum krafti.“Hann lýsir þarna aðferð sem gengur út á að yfirþyrma almenning og fjölmiðla með stöðugu og gríðarlegu magni af fréttum, orðrómi, hneykslismálum og fullyrðingum sem stangast á og jafnvel samsæriskenningum, þannig að hefðbundnir fjölmiðlar og andstæðingar ná aldrei að fylgja þeim eftir, sérstaklega í fjölmiðlaumhverfi nútímans. Þarna er nýtt að blaðamenn eru víða undirmannaðir og fjölmiðlar vanfjármagnaðir, sem gerir það að verkum að fréttastofur hafa einfaldlega ekki bolmagn til að rannsaka eða staðreyndatékka allt flóðið. Þessi aðferð Bannons á sér skýra hliðstæðu í rússneskri áróðurstækni sem nefnist Firehose of Falsehood. Samfélagsmiðlar spila stórt hlutverk Samfélagsmiðlar hafa gert þessa aðferð enn áhrifaríkari. Með hjálp gerviaðganga og svokallaðra botta er hægt að magna upp tiltekin mál og láta jaðarskoðanir virðast útbreiddari en þær eru í raun. Reiknirit samfélagsmiðla, sem spila inn á frumstæðustu hvatir mannsins, pikka þetta svo upp. Þau horfa ekki til þess hvort upplýsingarnar séu sannar, heldur mæla þau eingöngu viðbrögð notenda. Efni sem vekur upp sterk viðbrögð, sérstaklega reiði, ótta og fár, fær því langoftast mestu athyglina og dreifinguna. Hvernig tæknin virkar í framkvæmd Aðferðin gengur meðal annars út á að dreifa athygli fólks með því að dæla stanslaust út nýjum hitamálum, upphlaupum og deilum. Það getur til dæmis gerst þegar þingmaður, stjórnmálamaður, áhrifavaldur, hlaðvarpsstjórnandi eða annar þekktur einstaklingur hendir fram umdeildri fullyrðingu eða kveikir nýtt menningarstríð. Þegar upplýsingaflóðið verður nógu mikið verður sífellt erfiðara fyrir fjölmiðla og almenning að fylgjast með, hvað þá að átta sig á því hvað skiptir raunverulega máli. Á sama tíma er umræðunni beint frá stærri málum. Eins og Bannon sagði:„Á hverjum degi hendum við þremur málum í fjölmiðla. Þeir bíta á agnið í einu þeirra og á meðan komum við öllu okkar í gegn.” Þegar fjölmiðlar og pólitískir andstæðingar hlaupa á eftir hverri nýrri fullyrðingu, reyna að leiðrétta rangfærslur og slökkva elda, getur skapast svigrúm til að koma stórum og umdeildum ákvörðunum í gegn án þess að þær fái þá umfjöllun og gagnrýni sem þær annars hefðu fengið. Annað sem einkennir þessa aðferð er hvernig hún getur grafið undan sjálfum sannleikanum. Tilgangurinn er ekki endilega að sannfæra fólk um eina ákveðna lygi, heldur að skapa svo mikinn glundroða að fólk gefist smám saman upp á að reyna að greina á milli staðreynda og ósanninda. Þeir sem beita þessari aðferð þurfa ekki einu sinni að hafa áhyggjur af því þótt fullyrðingar þeirra stangist á við fyrri yfirlýsingar eða augljósar staðreyndir, þetta snýst fyrst og fremst um magn fremur en gæði. Þetta getur síðan grafið undan trausti á fjölmiðlum, vísindum og samfélagslegum stofnunum. Þegar fólk upplifir að enginn sé að segja satt og að ekki sé lengur hægt að treysta neinum, er hætt við að það dragi sig alfarið út úr samfélagsumræðunni, sem styrkir stöðu þeirra sem beita tækninni. Á meðan heldur sá sem beitir tækninni frumkvæðinu. Um leið og fjölmiðlar eða andstæðingar hafa náð að hrekja eina fullyrðingu eru kannski fimm nýjar komnar fram. Athyglin færist stöðugt á milli mála, umræðan verður sundurlaus og heildarmyndin tapast. Þetta er uppskriftin á pólitískum níhilisma. Báðar hliðar eru hvort sem er að ljúga Þegar almenningur getur ekki lengur áttað sig á hvað er satt eða logið verða viðbrögðin oft þau að treysta engu og segja: “Báðar hliðar eru hvort sem er að ljúga,“ “allir flokkar eru eins“ eða “allir stjórnmálamenn eru eins.“ Fólk hættir að geta greint rétt frá röngu og dregur sig í hlé. Þegar þangað er komið hefur sá sem beitti tækninni unnið. Lúmskasti hluti þessarar tækni er hvernig hagsmunaöfl, peningaöfl, “óháðir álitsgjafar“, gervigrasrót og spunameistarar ná að stýra því um hvað allt samfélagið talar, með því að móta frásögnina, en búa á sama tíma til þá blekkingu að almenningur hafi sjálfur valið umræðuefnið. Mesta tálsýnin felst einmitt í því að láta fólk trúa því að umræðan spretti lífrænt að neðan, á meðan henni er í raun stýrt að ofan. Lögmál Alberto Brandolini Að lokum er rétt að nefna lögmál Alberto Brandolini (e Brandolini Law), en hann er ítalskur tölvunarfræðingur og forritari. Lögmálið varð til í febrúar 2013 þegar hann fylgdist með ítölskum stjórnmálakappræðum í sjónvarpinu á milli Silvio Berlusconi og blaðamannsins Marco Travaglio. Brandolini varð svo langþreyttur á að hlusta á Berlusconi spúa út ósannindum sem tók marga klukkutíma að hrekja að hann skrifaði þetta fræga tíst á Twitter (sem nú heitir X) “The amount of energy needed to refute bullshit is an order of magnitude larger than is needed to produce it.“Eða á íslensku “Sú orka sem þarf til að hrekja kjaftæði er margfalt meiri en orkan sem þarf til að búa það til.“ Eða með öðrum orðum. Það tekur sekúndu að ljúga eða dæla út vitleysu, en marga klukkutíma að hrekja hana með staðreyndum. Fyrir þá sem vilja dýpka sig frekar í skyldum áróðurstæknum er rétt að benda á grein mína frá um Gish gallop tæknina Höfundur er Pírati. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun