Skoðun

Ó­sýni­legt fólk og sýni­leg á­byrgð

Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar

Kristbjörg Þórisdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði spyr í skoðanagrein sinni „Ósýnilega fólkið“ á Vísi nýverið, hvort tækniframfarir séu farnar að grafa undan mannlegum tengslum og gera fólk ósýnilegt. Spurningin er tímabær og áhyggjurnar skiljanlegar. En þegar tækninni er stillt upp sem helsta ógnvaldinum er hætta á að okkur sjáist yfir það sem mestu ræður – hvernig við kjósum að skipuleggja samfélagið og hver fær að taka þær ákvarðanir.

Ósýnilegt fólk er nefnilega ekki nýtt fyrirbæri. Fátækt, einangrun, fordómar og valdaleysi gerðu fólk ósýnilegt löngu fyrir tilkomu internets, snjallsíma og gervigreindar. Tæknin getur vissulega aukið slíka útilokun, en líka rofið hana. Hún getur veitt fólki sem býr fjarri öðrum, glímir við hreyfihömlun eða hefur takmarkaðan aðgang að menntun nýjar leiðir til þátttöku. Sama gildir um þau okkar sem notum önnur tungumál en íslensku til samskipta. Það skiptir því máli að greina á milli tækninnar sjálfrar og þeirra aðstæðna sem hún er notuð við.

Við þurfum líka að greina á milli samskipta og tengsla. Stutt spjall við bankagjaldkera getur glatt einhvern, en slíkt tryggir hvorki vináttu né samfélagslega viðurkenningu. Að sama skapi getur manneskja búið ein, átt samskipti á netinu og lifað innihaldsríku félagslífi. Einvera er ekki endilega einmanaleiki. Og sýnileiki er ekki það sama og að vera metinn að verðleikum. Fólk getur verið í stöðugu sambandi við aðra, jafnvel fyrir allra augum á samfélagsmiðlum, án þess að nokkur hlusti í raun.

Þegar við tölum um að fólki líði verr en áður þarf líka að gæta nákvæmni. Einmanaleiki og vanlíðan eru alvarleg viðfangsefni, en orsakasamhengi þeirra við tæknina er hvorki einfalt né hið sama fyrir alla. Sumir missa tengsl þegar tiltekin þjónusta færist yfir á skjámiðla; aðrir öðlast í fyrsta sinn aðgang að samfélagi, upplýsingum og rödd. Hvor reynslan fær að telja? Er pláss fyrir alla?

Það er rétt að líkami okkar og taugakerfi mótuðust við aðrar aðstæður en þær sem nú ríkja. En þróunarsagan er ekki fyrirmæli um að hverfa aftur til fortíðar. Forvitni, sköpunargáfa, samvinna og aðlögunarhæfni eru ekki síður hluti mannlegs eðlis en þörfin fyrir öryggi og nánd. Við höfum alla tíð breytt umhverfi okkar með verkfærum, þekkingu og hugviti. Spurningin er ekki hvort við eigum að gera það, heldur hvernig.

Bankar, pósthús og verslanir loka ekki afgreiðslustöðum sínum vegna þess að algrímið (reikniritið) hafi sjálfstætt ákveðið það. Ákvarðanirnar taka þau okkar sem fara með stjórn þeirra og ákveða hvernig tæknin er innleidd og hvaða þjónusta er tekin upp eða lögð niður. Sé hagkvæmni og hámarksarðsemi látin ráða öllu geta mannleg samskipti orðið að kostnaðarlið sem auðvelt þykir að strika út. Sama gildir um samfélagslega forgangsröðun í þjónustu stofnana ríkis og sveitarfélaga við almenning. Stjórnmálamenn kosnir af almenningi til löggjafar og framkvæmda bera þar mesta ábyrgð. Forgangsröðun er mannanna verk en ekki óhjákvæmileg afleiðing tækniframfara. Þar liggur ábyrgðin — og einnig möguleikinn á breytingum til hins betra.

En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott segir máltækið. Það gildir um tækniframfarir líka. Þannig getur t.d. gervigreind hjálpað okkur að bæta við þekkingu, örvað sköpun og veitt betri úrlausnir verkefna. Hún getur líka svarað af slíkri lipurð núorðið að okkur finnist á okkur hlustað. En svar frá kerfi er ekki hið sama og gagnkvæm mannleg umhyggja. Nýting tækninnar afsalar okkur ekki ábyrgðinni hvert á öðru.

Kristbjörg hvetur okkur í sinni grein til góðvildar og jákvæðra tengsla við samferðafólk okkar. Undir það má heilshugar taka, en góðvild einstaklinga ein og sér getur ekki bætt upp samfélagsgerð sem útilokar fólk. Til þess þarf aðgengilega þjónustu, raunveruleg tækifæri til þátttöku og lýðræðislega stjórn á þeim ákvörðunum sem móta daglegt líf okkar.

Við þurfum því hvorki að velja milli mannúðar og tækniframfara, hliðræns eða stafræns veruleika, né leita aftur til ímyndaðrar gullaldar eða sakleysis æsku vorrar. Við þurfum að spyrja hver hefur völdin, hver nýtur ávinningsins og hver situr eftir. Framfarir felast ekki eingöngu í því sem tæknin gerir mögulegt, heldur líka því sem við ákveðum að fórna ekki á altari gróðans.

Andst æða ó sýnileika er ekki aðeins sýnileiki, heldur viðurkenning – að vera talin með, hafa r ö dd og skipta má li.

Höfundur er listamaður á eftirlaunum.




Skoðun

Sjá meira


×