Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 20. september 2026 22:17 Tommi segir alla þá vinnu sem fari fram í Parkour skúrnum hafa verið unna af sjálfboðaliðum síðustu fimm ár. Þau haldi úti tveimur skipulögðum opnunum á viku en gætu bætt í ef fengist fjámagn til. Aðsend Parkour-inniaðstaða á Sævarhöfða sem hefur verið nýtt af iðkendum jaðaríþróttarinnar í rúm fimm ár verður jöfnuð við jörðu innan nokkurra mánaða og enn hefur ekki fundist nýtt húsnæði fyrir starfsemina. Sjálfboðaliðar sem hafa leigt rýmið og boðið upp á kennslu sjá fram á að þurfa að færa það sem bjargað verður í gám og leggjast í dvala yfir veturinn.
Þetta staðfestir Tommi Thor Guðmundsson, einn stofnenda Parkour-skúrsins, en hann ásamt tveimur öðrum, Davíð Már Sigurðssyni og Viktor Yngva Ísakssyni, skrifaði innsenda skoðanagrein þar sem vakin er athygli á því að Reykjavíkurborg hafi sett þeim stólinn fyrir dyrnar og þeir loki að öllu óbreyttu í næsta mánuði. Ekki nóg á milli handanna „Þegar við byrjuðum var okkur sagt að þeir vissu aldrei hvenær það yrði rifið niður, það væri bara einhvern tímann á dagskránni en síðan var það fyrir núna nokkrum vikum þar sem við fengum að vita að við þyrftum að vera komnir úr húsi 1. nóvember,“ segir Tommi í samtali við blaðamann. Þeir hafi vitað síðustu árin að húsnæðið yrði ekki heimili Parkour-skúrsins til frambúðar en algjör óvissa hafi þó ríkt um hversu lengi þeir gætu leigt rýmið. Tommi segir áform um að færa starfsemina í hina svokölluðu toppstöð hafa hljómað mjög vel en að sá hængur væri á að þeir myndu ekki geta borgað svo dýra leigu enda allt úr eigin vasa. „Húsinu er skipt í þrennt, þannig að við erum með einn þriðja og síðan í miðjunni er Hringleikur sem er sirkus og síðan hinum megin á endanum eru það sem ég held að séu Hjólabændur sem er svona reiðhjólasamfélag sem er þá að gera upp reiðhjól og þannig,“ útskýrir Tommi en hann segir svekkjandi að öll sú vinna sem hafi verið unnin í húsinu fari mögulega fyrir bí. „Allt sem er búið að gerast er búið að vera sjálfboðaliðavinna. Allur tíminn og öll vinnan í að byggja allt og gera allt er búið að vera fyrir samfélagið og fyrir krakkana,“ segir hann og ítrekar „við erum aldrei búin að græða krónu á þessu.“ Dreymir um að fá aðstoð Hann segir hóp fólks taka þátt í keppnum og æfingum sem þeir haldi úti og að í hverri viku séu a.m.k. tveir hittingar haldnir í skúrnum þar sem fólk geti æft sig undir handleiðslu þeirra sem hafa iðkað íþróttina lengi. Sjálfboðaliðar halda úti opnum æfingum og reglulegum mótum og keppnum í Parkour-skúrnum. Aðsend „Núna erum við á sunnudögum með opið session frá 13:00 til 16:00 þar sem hver sem er getur mætt og þá getur fólk æft sig inni og þá eru tveir sjálfboðaliðar inni sem geta alltaf hjálpað. Síðan er enn þá bumbuparkour sem er þá á miðvikudagskvöldum, þar sem þá er sérhugsað fyrir fullorðið fólk til að koma og æfa og prófa.“ Tommi segist helst vona að borgin aðstoði þá félaga við að færa starfsemina í nýtt húsnæði og draumurinn væri að þeir fengju fjárhagslega aðstoð til að færa aðstöðuna upp á hærra plan. „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur með einhverja styrki eða eitthvað til þess að geta opnað nýjan stað,“ segir hann og tekur dæmi um að hann telji borgina vera að aðstoða Hjólabrettafélag Reykjavíkur með leigu. „Ég held að Reykjavíkurborg sé bara að redda húsi fyrir þá og mér finnst að Reykjavíkurborg ætti að styrkja fleiri jaðaríþróttir.“ Gætu gert þetta „alveg geggjað“ Það sé augljóst að staðir eins og Skopp þar sem börn og fullorðnir geti farið og leikið sér, stokkið og klifrað óhindrað séu vinsælir og Tommi segir Parkour ekki ósvipað. „Ef við gætum fengið fínt húsnæði þar sem við værum ekki að ströggla við að reyna að borga leigu, þar sem við fengjum hjálp frá borginni, þá gætum við gert þetta alveg geggjað,“ segir hann. Annars muni þeir reyna að færa megnið af áhöldunum og tækjunum inn í gám og geyma hann þar til það hlýnar í vor, þá verði í það minnsta hægt að bjóða upp á útiæfingar. „Um veturinn er miklu erfiðara hjá okkur út af því að við erum búin að vera í fimm og hálft ár í þessu húsi án þess að vera með neinn hita eða neitt,“ segir Tommi og bætir við: „Það er allt ískalt þegar maður mætir en eftir ca. hálftíma þar sem maður er að hreyfa sig þá er maður kominn á bolinn.“ Undirskriftalistann sem þeir Tommi og félagar settu í loftið er að finna hér.
Reykjavík Íþróttir barna Húsnæðismál Tímamót Borgarstjórn Skipulagsmál Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Sjá meira