Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 15. september 2026 12:02 Móðirin vill ekki koma fram undir nafni til þess að vernda barnið sitt. Vísir/Anton Brink Móðir sem lagði fram kæru gegn starfsmanni leikskóla í Múlaborgarmálinu segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn fyrir utan heimili sitt tæpum fimm mánuðum eftir að maðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn barni.
Dómur var kveðinn upp í Múlaborgarmálinu svokallaða í lok maí þar sem Hannes Valle Þorsteinsson, fyrrverandi starfsmaður leikskólans Múlaborgar, var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungri stúlku á leikskólanum. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga stúlku en sýknaður af ákæru fyrir kynferðislega áreitni gegn annarri stúlku. Hann hafði bitið þá stúlku ítrekað í rassinn en var sýknaður þar sem háttsemin var ekki talin kynferðislegs eðlis. Upphaflega kærðu foreldrar þrettán barna meint brot Hannesar til lögreglu en rannsókn tíu mála var látin niður falla. Maðurinn er nú vistaður á Sogni sem er opið úrræði. „Reiðin er það mikil ennþá“ Móðir sem lagði fram kæru á sínum tíma segir í samtali við fréttastofu að hún hafi séð Hannes fyrir utan heimili sitt þann 5. september, steinsnar frá leikskóla. Hann hafi þá verið í dagsleyfi. Hún kaus að koma fram undir nafnleynd til að verja barn sitt. „Ég sé hann labba upp götuna. Ég veit til þess að það eru börn sem voru viðriðin þetta mál sem að búa hérna í götunni þannig að ég get ekki ímyndað mér hvernig ég hefði brugðist við, hefði ég verið sjálf úti í göngutúr með mín börn. Börn eru auðvitað svo saklaus að þau myndu örugglega bara heilsa honum.“ Fangi getur að hámarki fengið tólf dagsleyfi á ári og að minnsta kosti 30 dagar þurfa að líða milli leyfa. Hún segir það leggjast gífurlega illa í sig að eiga mögulega von á að sjá hann aftur í götunni eða rekast á hann. „Ég gæti þess vegna bara séð hann aftur hérna eftir mánuð. Það er náttúrulega hræðilegt. Ég vil ekki hugsa út í það hvað ég hefði gert ef að börnin mín hefðu ekki verið heima og ég hefði getað farið út. Reiðin er það mikil enn þá. Maður vill ekki sjá þennan mann og ég veit að aðrir foreldrar í þessu máli eru sammála. Þriggja ára dómur fyrir svona brot er bara eitthvað grín.“ Rífi upp öll sár og kallar eftir breyttu verklagi Móðirin segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn. „Maður bara fyllist reiði og það er náttúrulega bara skelfileg tilhugsun að hugsa til þess að börnin mín hefðu getað verið úti að leika og rekist á hann. Það er náttúrulega bara svo stutt síðan að maður var á endalausum fundum og skýrslutökum og þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði. “ Hún kallar eftir því að betur sé staðið að veitingu dagsleyfa og að eftirliti með framkvæmd þeirra sé sinnt. „Það er bara svo margt sem stangast á þarna. Hann má ekki vera í kringum börn. Hann á ekki að vera í sama bæjarfélagi og brotaþolar, hann á ekki að vera í sama umhverfi og brotaþolar. Hann fær einhvern veginn bara að vaða yfir allt þetta. Ég spyr í rauninni bara hvernig á foreldri að geta upplifað öryggi fyrir börnin sín þegar skipulag dagsleyfa leyfir dæmdum gerendum að spóka sig um við útidyrnar hjá þolendum.“ Hún segir það senda skökk skilaboð til aðstandenda og til samfélagsins í heild að maðurinn gangi laus um hverfið. „Mér finnst náttúrulega bara algjörlega óásættanlegt að börn og foreldrar þurfi að búa við það að mæta dæmdum brotamanni í eigin götu á meðan á afplánun stendur. Það þarf greinilega að endurskoða umgjörðina á dagsleyfum og skoða betur hvaða reglur eru settar út fyrir dagsleyfi. Það á ekki að fara á skjön við þær. Er þetta bara í alvörunni kerfið okkar? Þetta er bara enn eitt áfallið að þurfa að sjá hann hérna í götunni,“ segir hún og heldur áfram: „Ég væri til í að vita hvernig ríkisstjórnin myndi taka á þessu sjálf ef hún væri í sömu sporum og við foreldrarnir. Að fá dæmdan brotamann bara beint í andlitið hérna í laugardagsgöngutúrnum sínum. Það er verið að bjóða okkur upp á þetta. Það væri gott ef þau myndu setja sig í spor almennings.“
Reykjavík Dómsmál Lögreglumál Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Fangelsismál Kynferðisbrot á Múlaborg Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg Sjá meira