Gengið aldrei verið lægra Bjarki Sigurðsson skrifar 14. september 2026 15:48 Virði hlutabréfa Icelandair hefur aldrei verið lægra. Icelandair/Ágúst Sigurjónsson Við lokun markaða í dag stendur hlutabréfaverð Icelandair í 0,64 krónum. Virðið hefur aldrei verið lægra og lækkaði um 5,87 prósent í dag eftir að flugvirkjar tilkynntu að þeir ætluðu að hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september.
Virði Icelandair hefur verið síbreytilegt síðustu ár. Við lokun markaða 2. janúar var virðið 0,90 krónur á hlut. Það hefur því fallið um tæp 29 prósent á árinu. Viðskipti dagsins voru 103 talsins fyrir tæpar 83 milljónir króna. Virðið var lægst 0,59 skömmu fyrir lokun markaða. Ótímabundið verkfall Í hádeginu lauk atkvæðagreiðslu flugvirkja um verkfallsaðgerðir. Þar samþykktu rúm 88 prósent þeirra sem greiddu atkvæði að hefja aðgerðir klukkan 0:01 aðfaranótt miðvikudagsins 23. september. Aðgerðirnar munu hafa gríðarleg áhrif á starfsemi flugfélagsins og ljóst að fjöldi farþega mun finna fyrir raski á flugáætlun félagsins. Icelandair hefur staðið í ströngu síðustu misseri. Eldsneytisverð hefur hækkað gríðarlega vegna átaka í Miðausturlöndum og flugmenn Icelandair eru enn í ströngum kjaraviðræðum. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í október á síðasta ári. Flugmenn ósáttir með kaupin Félagið keypti nýlega 49 prósenta hlut í Fly Play Europe Holdco ehf. sem flugmenn voru ekki ánægðir með. Félag íslenskra atvinnuflugmanna gaf út yfirlýsingu í kjölfarið þar sem sagt var að tilvonandi rekstrarform Icelandair byggði á félagslegu undirboði, sniðgöngu kjarasamninga og flutningi starfa úr landi. Á síðasta ársfjórðungi tapaði félagið fjórum milljörðum króna þrátt fyrir mettekjur. Í ársfjórðungsuppgjöri sem birt var í júlí segir að búist sé við rekstrarbata og meteiningartekjum á þriðja ársfjórðungi sem lýkur um mánaðamótin næstu.
Icelandair Flug Kauphöllin Kjaramál Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Mest lesið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Sjá meira