Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Eiður Þór Árnason skrifar 12. september 2026 23:58 Dario Amodei er forstjóri Anthropic. Getty Forstjóri Anthropic sem þróar gervigreindarlíkön og spjallmennið Claude kallaði í dag eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar á heimsvísu. Yfirlýsingin kemur nokkrum dögum eftir að starfsmaður bandaríska fyrirtækisins sagði upp störfum og vísaði í áhyggjur sínar af öryggi tækninnar.
Dario Amodei, forstjóri og meðstofnandi Anthropic, segir að þróunin sé í dag það hröð að ekki sé hægt að tryggja öryggi á sama tíma. Þetta kemur fram í 3.800 orða pistli sem hann birtir í dag. Leiðtogar annarra bandarískra gervigreindarfrumherja hafa tekið undir ákallið. The New York Times (NYT) greinir frá þessu en Sam Altman, forstjóri OpenAI, og Elon Musk, sem þróar spjallmennið Grok og hefur aukið útgjöld til gervigreindar innan SpaceX, segjast vera sammála um að hægja þurfi á þróuninni. „Undanfarna mánuði hef ég orðið sannfærður um að til að bregðast fyllilega við áhættunni þurfum við að sýna enn meiri varfærni – ekki bara fjárfesta í forvörnum, heldur að hægja á framþróunargetunni svo að forvarnirnar geti fylgst að,“ skrifar Amodei. „Við verðum að hægja á því hversu hratt við aukum getu gervigreindarlíkana.“ Elon Musk er auðugasti maður heims og hefur sett mikið fjármagn í þróun gervigreindar og uppbyggingu gagnavera.AP/Mark Schiefelbein Amodei hefur varað við áhættunni sem fylgir gervigreind í fleiri ár, að því er fram kemur í frétt NYT. Þrátt fyrir það eru nýjustu skrif hans sögð vera eitt afdráttarlausasta ákallið fram að þessu frá stjórnanda gervigreindarfyrirtækis sem telst í fremstu röð. Hann kallar eftir því að óháðir eftirlitsaðilar yfirfari öryggisstaðla fyrirtækjanna og að reglur um þróun gervigreindar verði lagðar fram sem hluti af alþjóðlegri samvinnu. Vaxandi órói Ákall Amodei kemur í kjölfar vaxandi óróa í tæknigeiranum sem hefur farið vaxandi síðustu mánuði. Miklar framfarir hafa verið í þróun gervigreindarlíkana hjá fyrirtækjum eins og Anthropic, OpenAI sem þróar ChatGPT, og Google. Þá jókst spennan eftir að gervigreindarfyrirtæki uppgötvuðu að hugbúnaður þeirra hafði framið öryggisbrot án þeirra vitundar. Fyrr á þessu ári brutust kerfi OpenAI inn í kerfi gervigreindarsprotafyrirtækisins HuggingFace og uppgötvaðist það ekki fyrr en hið síðarnefnda tilkynnti OpenAI um atvikið vikum síðar. Á þriðjudag sagði Jacob Coxon upp störfum hjá Anthropic og birti röð færslna á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt var að leiðandi gervigreindarfyrirtæki væru ekki að þróa tæknina með ábyrgum hætti. Þau væru þar með að tefla lífi fólks í tvísýnu. Að sögn NYT hafa aðrir sérfræðingar í geiranum kallað eftir því að vinnuveitendur sínir geri hlé á þróuninni. Þá hafa enn aðrir myndað klofningshópa til að vekja meiri athygli á áhættunni sem fylgi gervigreind. Leiðtogar í geiranum stefna að því að þróa gervigreindarkerfi sem getur þróað sig áfram á eigin vegum, án aðkomu mannsins. Telja sumir hátt settir sérfræðingar að slíkt fyrirkomulag gæti leitt til þess að fyrirtæki missi stjórn á gervigreindinni. „Ef ekkert er að gert gætu þau farið fram úr getu okkar til að skilja og stjórna þessum kerfum og því verður að fara mjög varlega í þessa átt, og jafnvel sleppa því,“ skrifar Amodei. Verið rætt innan OpenAI Nokkrum klukkustundum eftir að Amodei birti langa færslu sína birti Altman, forstjóri OpenAI, yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem hann tók undir það að nauðsynlegt væri að hægja á þróuninni. Sam Altman er forstjóri OpenAI, fyrirtækisins á bak við ChatGPT.Getty „Þetta hefur verið aðalumræðuefnið í samtölum okkar hjá OpenAI undanfarnar vikur,“ skrifaði Altman. „Það er frábær hugmynd að skuldbinda sig til að veita óháðum matsmönnum aðgang á við starfsmenn, og við munum gera slíkt hið sama. Við munum hafa meira um þetta að segja innan skamms.“ „Dario hefur rétt fyrir sér,“ skrifar Musk í stuttri færslu á samfélagsmiðli sínum X, áður Twitter. Vísar hann þar til áðurnefnds forstjóra Anthropic. Stjórnendur OpenAI sögðu í síðasta mánuði að þeir hefðu vísvitandi hægt á þróun gervigreindarlíkansins Astra vegna framfara í netárásagetu.
Gervigreind Bandaríkin Elon Musk Tengdar fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Óttar Guðmundsson, gagnasérfræðingur hjá Gangverk, segir mikilvægt að starfsmenn verði ekki að eins konar „kjötstykkjum“ við notkun gervigreindarinnar. Gervigreindin sé aðeins eitt tól af mörgum sem fólk hafi sér til aðstoðar í vinnu en eigi ekki að stýra vinnunni. Hann segir segir stjórnendur reglulega leita til þeirra sem vilji beita gervigreindinni en viti ekki hvernig sé best að gera það. 12. september 2026 19:50 Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Ekkert lát virðist ætla að verða á velgengni bandaríska tæknifyrirtækisins Nvidia, sem er verðmætasta fyrirtæki heims. Forsvarsmenn þess birtu í gær ársfjórðungsuppgjör sem fór fram úr björtustu vonum greinenda og ýtti til hliðar áhyggjum fjárfesta hvað varðar eftirspurn eftir tölvuflögum fyrirtækisins fyrir gervigreind en fyrirtækið hefur hagnast gífurlega á slíkri framleiðslu. 27. ágúst 2026 10:48 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Sjá meira
Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Óttar Guðmundsson, gagnasérfræðingur hjá Gangverk, segir mikilvægt að starfsmenn verði ekki að eins konar „kjötstykkjum“ við notkun gervigreindarinnar. Gervigreindin sé aðeins eitt tól af mörgum sem fólk hafi sér til aðstoðar í vinnu en eigi ekki að stýra vinnunni. Hann segir segir stjórnendur reglulega leita til þeirra sem vilji beita gervigreindinni en viti ekki hvernig sé best að gera það. 12. september 2026 19:50
Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Ekkert lát virðist ætla að verða á velgengni bandaríska tæknifyrirtækisins Nvidia, sem er verðmætasta fyrirtæki heims. Forsvarsmenn þess birtu í gær ársfjórðungsuppgjör sem fór fram úr björtustu vonum greinenda og ýtti til hliðar áhyggjum fjárfesta hvað varðar eftirspurn eftir tölvuflögum fyrirtækisins fyrir gervigreind en fyrirtækið hefur hagnast gífurlega á slíkri framleiðslu. 27. ágúst 2026 10:48