Innherji

„Sann­kallað efna­hags­legt og pólitískt sjálfs­mark“ hjá ríkis­stjórninni

Hörður Ægisson skrifar
Ríkisstjórnin kynnti hallalaus fjárlög fyrir næsta ári í gær. Skuldabréfafjárfestar hafa hins vegar ekki brugðist við því með því að verðlegga inn meiri verðbólgu á næstunni en áður og einn þeirra segir að „miðað við boðaðar áherslur um lægri verðbólgu og þar af leiðandi lægri vexti þá átti markaðurinn von á beittari aðgerðum til að halda tökum á verðbólguvæntingum.“
Ríkisstjórnin kynnti hallalaus fjárlög fyrir næsta ári í gær. Skuldabréfafjárfestar hafa hins vegar ekki brugðist við því með því að verðlegga inn meiri verðbólgu á næstunni en áður og einn þeirra segir að „miðað við boðaðar áherslur um lægri verðbólgu og þar af leiðandi lægri vexti þá átti markaðurinn von á beittari aðgerðum til að halda tökum á verðbólguvæntingum.“ Anton Brink

Það „vekur furðu“ að ríkisstjórnin sé að endurtaka sömu mistökin frá því um áramótin með hækkunum á krónutölugjöldum sem ýtir undir verðbólguvæntingar og verðbólgu, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði, og kallar aðgerðirnar „sankallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá stjórnvöldum. Aðhaldið sem er boðað í fjárlögunum er töluvert í sögulegu samhengi, með nokkuð minni útgjaldavexti milli ára en hefur sést að jafnaði síðasta áratuginn, en á móti benda greinendur á að viðsnúningurinn sem á að nást í afkomunni sé að litlum hluta vegna niðurskurðar eða aðhalds í rekstri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×