Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Birgir Olgeirsson skrifar 7. september 2026 16:58 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra kynntu hallalaus fjárlög. Barnabótapotturinn stendur þó í stað að krónutölu á meðan ýmis ríkisgjöld hækka, þar á meðal kílómetragjaldið um 15,9 prósent. Anton Brink Ríkisstjórnin leggur til að 21 milljarður króna fari í barnabætur árið 2027, sömu fjárhæð og í ár. Á sama tíma á að hækka ýmis krónutölugjöld ríkisins um 5,2 prósent.
Fjárlagafrumvarpið sýnir aðeins heildarframlagið. Hámarksfjárhæðir barnabóta og skerðingarmörk fyrir árið 2027 verða ákveðin með breytingum á skattalögum. Því liggur ekki enn fyrir hvort greiðslur til einstakra fjölskyldna verði óbreyttar. Stjórnvöld benda á að 21 milljarðs framlagið sé í samræmi við yfirlýsingu sem gefin var samhliða kjarasamningunum árið 2024. Þá var boðað að framlög til barnabóta hækkuðu um þrjá milljarða króna árið 2024 og tvo milljarða til viðbótar árið 2025 og yrðu um 21 milljarður á ári. Stjórnvöld segjast því standa við loforðið og að framlagið yrði nokkrum milljörðum lægra ef viðmiðunarfjárhæðir barnabótakerfisins væru ekki uppfærðar. Hámarksfjárhæðin óbreytt milli ára Hámarksfjárhæð tekjutengdra barnabóta til hjóna og sambúðarfólks hækkaði úr 328 þúsund krónum árið 2024 í 345 þúsund krónur árið 2025. Hún var áfram 345 þúsund krónur árið 2026. Hámarksfjárhæð einstæðra foreldra var 514.500 krónur og viðbót vegna barna yngri en sjö ára 130 þúsund krónur. Þetta eru hámarksfjárhæðir því bæturnar lækka eftir því sem tekjur foreldra hækka. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti fjárlagafrumvarpið. Þar standa 21 milljarðs framlög til barnabóta í stað á milli ára en ýmis krónutölugjöld hækka um 5,2 prósent og kílómetragjaldið um 15,9 prósent.Anton Brink Skerðingarmörkin stóðu einnig í stað milli 2025 og 2026. Þau voru 11.688.000 krónur hjá hjónum og sambúðarfólki og 5.844.000 krónur hjá einstæðum foreldrum. Þegar laun hækka en mörkin standa í stað fer stærri hluti teknanna yfir mörkin og barnabæturnar geta lækkað. Fjárhæðirnar má sjá á vef Skattsins. Verði 345 þúsund króna hámarksfjárhæðin óbreytt árið 2027 verður hún sú sama þriðja árið í röð. Væri komin í 376 þúsund krónur Krónutölugjöld ríkisins hækkuðu almennt um 3,7 prósent í ársbyrjun 2026. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir 5,2 prósenta hækkun þeirra. Hefðu barnabæturnar hækkað jafnmikið og gjöldin þessi tvö ár væri 345 þúsund króna fjárhæðin komin í rúmar 376 þúsund krónur. Munurinn er rúmlega 31 þúsund krónur á hvert barn. Barnabætur eru ekki verðtryggðar og ekkert í lögum segir að þær eigi að fylgja gjöldum ríkisins. Útreikningurinn sýnir aðeins hver fjárhæðin væri ef hún hefði hækkað um sömu prósentur. Kílómetragjaldið hækkar Fyrirhuguð 5,2 prósenta hækkun nær meðal annars til áfengisgjalds, tóbaks- og nikótíngjalda, kolefnisgjalds, gistináttaskatts, innviðagjalds, bifreiðagjalds, útvarpsgjalds og gjalds í Framkvæmdasjóð aldraðra. Hækkunin á að skila ríkinu 6,5 milljörðum króna, að meðtöldum áhrifum á virðisaukaskatt. Kílómetragjaldið á að hækka meira, eða um 15,9 prósent. Fyrir almennan fólksbíl hækkar það úr 6,95 krónum í um 8,05 krónur á kílómetra. Aðrar tekjuaðgerðir eru meðal annars hærri bankaskattur, hækkun virðisaukaskatts á gufuböð og baðlón úr 11 í 24 prósent og lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði úr 35 í 20 prósent. Þá á að taka upp nýtt gjald á ferðamannastöðum í þjóðareign.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjárlagafrumvarp 2027 Alþingi Börn og uppeldi Skattar, tollar og gjöld Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar. 7. september 2026 14:14 Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Uppstilling ríkisstjórnarinnar við kynningu fjárlagafrumvarpsins í morgun var nánast eftirmynd af uppátæki sem Bill Clinton bauð upp á í Hvíta húsinu fyrir 28 árum. 7. september 2026 12:14 „Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. 7. september 2026 12:58 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárlagafrumvarpið þegar hafa haft áhrif á skuldabréfamarkaðinn. Fjárfestar verðleggi nú meiri verðbólgu á næsta ári en fyrir helgi. Gjaldahækkanir ríkisins valdi vonbrigðum og sendi röng skilaboð þegar kjarasamningar eru til endurskoðunar. 7. september 2026 14:14
Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Uppstilling ríkisstjórnarinnar við kynningu fjárlagafrumvarpsins í morgun var nánast eftirmynd af uppátæki sem Bill Clinton bauð upp á í Hvíta húsinu fyrir 28 árum. 7. september 2026 12:14
„Hvar ætla þau þá að spara?“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja jákvætt að ríkisstjórnin stefni að hallalausum ríkisrekstri en segja að það hangi á bláþræði hvort það muni takast og óttast að áætlanir muni ekki halda. Þá segist þingmaður Miðflokksins óljóst hvar skera eigi niður á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir bankaskatt eiga eftir að bitna mest á skuldurum. 7. september 2026 12:58