Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar 4. september 2026 13:30 Vart fer fram hjá neinum að gagnaver spretta nú upp um heimsbyggðina vítt og breitt. Á Íslandi eru a.m.k. fjögur og fer fjölgandi. Um leið berast fregnir miklum vexti þeirra og orkuþörfin virðist vaxa svo gegndarlaust að jafnast við fár. Víða um lönd spyrja menn sig spurninga varðandi gagnaver og helstu afurð þeirra gervigreindina, en hún rekur orkuþörfina áfram af óseðjandi ákafa. Það á ekki að vera náttúrlögmál að nýjungar í tækni og vísindum ryðji öllu frá eins og jökulhlaup. Spyrja þarf hvort slíkar nýjungar séu til framfara svo þær vaxi ekki eins og Fenrisúlfurinn og leysi úr læðingi Ragnarök. Að eitthvað sé tæknilega mögulegt er ekki sama og það sé siðferðilega rétt. Siðferðið og gagnrýnin hugsun skiptir máli til að leiða fram hið sanna og rétta. Í mínum huga hafa kviknað fjölmargar spurningar um gagnver á Íslandi og þann ofurvöxt sem virðist vera að hlaupa í þau. Fyrsta spurning hlýtur að vera hver á íslensku gagnaverin? Í upphafi var til þeirra sumra stofnað af Íslendingum. Það vill þó gerast að frumkvöðlar ganga út með gilda sjóði en erlend stórfyrirtæki taka við og reka vöxtinn áfram eins og fé af fjalli. Að baki glittir í græðgi í græna orku á hagstæðu verði. Samkvæmt mínum upplýsingum virðast Íslendingar nú eiga lítið í þeim sem nú eru starfrækt. Skoðum Verne aðeins nánar. Það er alfarið í eigu erlenda fjárfestingafyrirtækisins Ardian. Í maí s.l. sagði RÚV frá því í fréttum að Verne geti fengið fimm sinnum meiri orku með nýju tengivirki sem geri því mögulegt að kaupa orku upp í 240 megawött. Sú orkuþörf er að mestu tilkomin vegna gervigreindarinnar. Til samanburðar má geta þess að Hellisheiðarvirkjun framleiðir nú um 300 megawött af rafmagni. Samkvæmt frétt á RÚV 12. Júní 2025 hefur ofurtölva hollenska tæknifyrirtækisins Nebius verið hýst hjá Verne á Ásbrú. Einn aðaleigandi þess er rússneskur olígarki búsettur í Ísrael, A. Y. Volozh að nafni og þeir sem leiða það eru Ísraelsmenn. Það kom einnig fram í fréttum í fyrra að Nebius hafði verið valið til að byggja risatölvu Ísraelsríkis sem þjóna á gervigreindinni. Volozh þessi var áður í talsambandi við Putin en ekki lengur að eigin sögn. Hann virðist hins vegar vera auðfúsugestur í valdasölum Ísraelsríkis. Þá liggur næst við að spyrja: Hver eru tengsl gagnavers Verne á Ásbrú við Ísrael? Í umfjöllun vefritsins Mannlífs frá því í fyrra kemur fram að innflutningur frá Ísraelsríki rauk upp í tæpa 3,4 milljarða króna fyrir árið 2024. Samkvæmt Hagstofu Íslands var þar að mestu um tölvuvörur að ræða. Þrjú gagnaver af fjórum sóru þá af sér viðskipti við Ísrael. Engin svör bárust hins vegar frá Verne á Ásbrú þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Þetta gerist á sama tíma og Ísraelsríki hefur verið að fremja þjóðarmorð á Gaza og aukið ofbeldið á Vesturbakkanum og í Líbanon. Sé einhver í vafa um framferði Ísraels skal bent á nýútkomna bók eftir ísraelska sagnfræðinginn Omer Bartov: „Israel, What Went Wrong.“ Samkvæmt vefútgáfu Guardian frá 6. júlí s.l. notar ísraelski herinn gervigreindina til að finna þúsundir skotmarka á Gaza og annars staðar. Eitt helsta gervigreindarforritið til þessara voðaverka nefnist Habsora á hebresku, sem merkir guðspjall. Nöturleg kaldhæðni það. Skammt er að minnast mannskæðrar bandarískrar árásar á stúlknaskóla í Íran. Þarna kom gervigreindin víst eitthvað við sögu. Ekki er samt hægt að álykta að tölvukeyrsla hjá Verne knúin áfram af grænu íslensku rafmagni séu notuð til árása á Gaza eða annars staðar. Óneitanlega er þó komin tenging frá Ásbrú til Ísrael samkvæmt þessum heimildum. Þá vitum við í raun ekki hverjum þetta gagnaver, eða önnur eru að þjóna. Samkvæmt frétt í Guardian 2. Septermber s.l. vita yfirvöld í Bretlandi ekki hverjum gagnaver þar í landi eru að þjóna og til hvers. Hvað þá með opinbera aðila á Íslandi? Það er annar áhugaverður vinkill á starfsemi Verne á Ásbrú og annarra gagnavera en það er hin ákafa sókn í íslenska, græna raforku til að knýja áfram gervigreindina. Í skýrslu Umhverfis- og orkustofnunar 12. Júní 2025 segir orðrétt: „Helstu ástæður verðbreytinga heildsöluverðs og smásöluverðs raforku eru einkum mikill vöxtur í eftirspurn eftir raforku, sér í lagi frá gagnaverum.“ Sjá: https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/URN/%C3%9Er%C3%B3un%20raforkuver%C3%B0s.pdf Ásókn gagnavera er áhyggjuefni fyrir almenna notendur raforku á Íslandi en ekki síður fyrir minni fyrirtæki. Garðyrkjubændur hafa t.d. látið í ljós áhyggjur vegna þrýstings á orkuverð frá gagnaverum. Nú í vetur skoraði Aldin, eldri aðgerðasinnar gegn loftslagsvá á ríkisstjórnina að leggja strax fram frumvarp um forgang orkuskipta og orkuöryggis almennings við framleiðslu raforku hér á landi. Fulltrúar félagsins gengu svo á fund umhverfis- og orkumálaráðherra nú í maí til að fylgja málinu eftir. Enn sem komið er hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ekki séð ástæðu til að setja það mál í forgang. Gagnaverin bjóða vissulega upp á ýmsa möguleika – en ekki endilega alla góða. Skoðum þess vegna gagnaverin og gervigreindina hér á landi á gagnrýninn hátt – og krefjumst þess að fá skýringar frá Verne á Ásbrú á tengslunum við Ísrael. Höfundur er stjórnarmaður í Aldini, eldri aðgerðasinnum gegn loftslagsvá og tekur þátt í sniðgöngu á Ísrael Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Gervigreind Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun