Komin með ný nöfn Bjarki Sigurðsson skrifar 3. september 2026 14:55 Við formlega afhendingu 1. september. Frá vinstri: Hrafnhildur Karlsdóttir, hótelstjóri Hótel Reykjavík Öskju, Jón Kolbeinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri framkvæmda hjá Reitum, Ingólfur Haraldsson, svæðisstjóri hótela í Reykjavík hjá Íslandshótelum, Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Ólöf Guðmundsdóttir, hótelstjóri Hilton Reykjavík, Hjörtur Valgeirsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Íslandshótelum, Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum. Reitir Hótelin sem áður hétu Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykjavík Natura Hotel eru nú orðin hluti af rekstri Íslandshótela. Hótelin heita nú Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Askja.
Íslandshótel tóku við rekstrinum 1. september af Berjaya eftir að hið síðarnefnda náði ekki að semja við Reiti um áframhaldandi leigu á hótelunum. Stefnt er á að þrír milljarðar verði settir í endurbætur þar og stóð til að endurráða allt starfsfólk. Hótelin hafa borið hin ýmsu nöfn í gegnum árin. Þeir minnugustu muna líklegast eftir upprunalegu nöfnunum, Hótel Esja og Hótel Loftleiðir. Bæði hótel eru voru hönnuð af Gísla Halldórssyni arkitekt sem hannaði meðal annars Þjóðarleikvanginn í Laugardal og Laugardalshöll. Hótel Loftleiðir við Öskjuhlíð í Reykjavík árið 1967.Ólafur K. Magnússon/LJósmyndasafn Í fréttatilkynningu frá Reitum vegna breytinganna er sagan rekin. „Árið 1962 var fyrsta skóflustungan tekin að stórbyggingu sem átti að hýsa skrifstofur Loftleiða og hótel á Reykjavíkurflugvelli. Hótelbyggingin reis á árunum 1965-1966 og var stækkuð til muna með nýrri álmu sem opnaði árið 1971. Fjölmargt þekkt fólk hefur gist á hótelinu. Þegar Bobby Fischer og Boris Spassky þreyttu heimsmeistaraeinvígið í skák 1972 bjó sá fyrrnefndi allan tímann í svítu á Hótel Loftleiðum og þótti nokkuð sérviskulegur í háttum,“ segir í tilkynningunni. Mynd frá því í janúar 1965. Lögreglan skipar ökumönnum að þrífa framrúður bifreiða sinna á ofanverðum Laugavegi. Bensínstöð Shell í forgrunni. Fjær eru nýbyggingar við Suðurlandsbraut. Bragi Guðmundsson/Ljósmyndasafn Við brottför af hótelinu þakkaði Bobby starfsfólki innilega fyrir hjálpsemi, vinsemd og góða umönnun á meðan hann dvaldi þar. „Hótelið var endurnýjað árið 2011 en á því eru 220 herbergi og byggir hvert þeirra á einu þema sem sótt er til íslenskrar náttúru: jarðhita, norðurljósa, eldvirkni og vatns. Nýja nafnið Hótel Askja er sömuleiðis vísun til íslenskrar náttúru og Öskjuhlíðarinnar sem veitir róandi græna umgjörð um næsta nágrenni hótelsins sem er þó steinsnar frá miðbænum,“ segir í tilkynningunni. Hótel Esja var tekið í notkun árið 1970 og var þá í eigu bílakóngsins Kristjáns Kristjánssonar frá Akureyri. Bob Dylan gisti þar sumarið 1990 þegar hann hélt tónleika í Laugardalshöll þar sem hann náði með listilegum hætti að forðast blaðamenn og aðdáendur sem höfðu safnast saman fyrir utan. „Hann hafði þá fengið lánað reiðhjól á hótelinu og hjólaði á svæðið eftir annarri leið en fólk bjóst við. Hann komst því óséður bakdyramegin inn í höllina,“ segir í tilkynningunni.
Hótel á Íslandi Reykjavík Ferðaþjónusta Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gagnaverafyrirtæki á Blönduósi stefnt vegna hundraða milljóna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira