Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Samúel Karl Ólason skrifar 2. september 2026 11:24 Lars Løkke Rasmussen segir að fjölþáttaógnir frá Rússum verði ekki liðnar. EPA/EMIL NICOLAI HELMS Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefur boðað sendiherra Rússlands þar í landi á sinn fund í dag. Løkke segist ætla að ræða sjálfsprengidróna sem fundust á flugvelli í Þýskalandi í síðasta mánuði en ráðamenn í Þýskalandi sögðu í gær að Rússar bæru ábyrgð á þeim og að um fjölþáttaárás væri að ræða. „
Við vitum hvað þið eruð að gera og við ætlum ekki að sætta okkur við það,“ sagðist Løkke ætla að segja Sergey Nechayev, sendiherranum rússneska. Hann sagði einnig að næstu refsiaðgerðir gegn Rússlandi ættu að taka mið af atvikinu í Þýskalandi og öðrum sambærilegum í Evrópu. Þýskir ráðherrar sögðu frá því í gær að rannsókn hefði leitt í ljós að sjálfsprengidrónar sem fundust á Leipzig/Halle flugvellinum í síðasta mánuði væru á ábyrgð Rússa. Einn dróni sem bar sprengju fannst nærri úkraínskum fraktflugvélum en flugvöllurinn hefur lengi verið notaður til að flytja hergögn til Úkraínu. Þann 4. ágúst sá starfsmaður á umræddum flugvelli dróna nærri úkraínskum fraktflugvélum en flugvöllurinn hefur lengi verið notaður til hergagnaflutninga til Úkraínu. Sprengibúnaður drónans, sem bar öflugt plastsprengiefni, var bilaður og sprakk hann því ekki. Þjóðverjar gerðu Rússum að loka ræðismannsskrifstofu sinni í Bonn þann 18. september og ætla að rifta samningi sem gerir Rússum kleift að reka menningarmiðstöð í Berlín. TASS-fréttaveitan, sem er í eigu rússneska ríkisins, hefur eftir Nechayev að ásakanirnar gegn Rússum séu „fáránlegar“ og ósannar. Þá segir í frétt TASS að Rússar muni bregðast við. Rússar hafa hafnað þessum ásökunum og Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur jafnvel gefið til kynna að ráðamenn í Þýskalandi hafi falsað sönnunargögn til að bendla Rússa við málið. Ítrekaðar fjölþáttaógnir Rússar hafa verið bendlaðir við fjölmargar fjölþáttaógnir í Evrópu á undanförnum árum og er útlit fyrir að tíðni þeirra hafi aukist á undanförnum mánuðum. Sjá einnig: Sviptu hulunni af skósveinum GRU sem sendu sprengjur í flugvélar Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, funduðu í Brussel í dag. Fyrir fundinn ræddu þau við blaðamenn og þá sagði von der Leyen að Evrópusambandið myndi standa þétt við bak Þjóðverja. Enn fremur sagði hún að ef markmið Rússa væri að reyna að draga úr stuðningi við Úkraínumenn, hefðu fjölþáttaárásir sem þessar þveröfug áhrif. Þrýstingurinn á Rússland yrði aukinn. We meet today to discuss Russia’s attack in Leipzig.This was an attack using military-grade material, carried out by Russian operatives on EU soil.We won't tolerate it.Europe & @NATO won't just maintain our pressure on Russia.We will increase it ↓ https://t.co/r3MyyAqFjg— Ursula von der Leyen (@vonderleyen) September 2, 2026 Kaja Kallas, sem stýrir utanríkismálum ESB, sagði í morgun að árásartilraunin í Þýskalandi bæri öll einkenni ríkisstyrktrar hryðjuverkastarfsemi. Umfangsmiklar refsiaðgerðir væru til skoðunar en utanríkisráðherrar ESB eru saman komnir á Írlandi. Hún sagði rússneska sendiherra víða um Evrópu hafa verið kallaða á teppið vegna atviksins og annarra. Frakkar hafa boðað rússneska sendiherrann þar á fund en Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, sagði í morgun að árásir sem þessar yrðu ekki liðnar og að þær myndu hafa afleiðingar. Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, sló á svipaða strengi. Markmiðið væri að grafa undan samheldni innan Evrópusambandsins og að hræða íbúa. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, rætti atvikið í Leipzig við Friedrich Merz, kanslara Þýskalands í morgun. Hann bauð Þjóðverjum aðstoð við drónavarnir og sameiginlega drónaframleiðslu. Friedrich Merz @bundeskanzler and I discussed Russia’s attack on the airfield in Leipzig. This is yet another Russian escalation, and it is important that Germany responded. Friedrich briefed me on the measures taken. For my part, I assured him that Ukraine is ready to help –… pic.twitter.com/ohYn0b6PkR— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 2, 2026
Danmörk Rússland Evrópusambandið Þýskaland Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Sjá meira