Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Samúel Karl Ólason og Telma Tómasson skrifa 26. ágúst 2026 08:54 Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu. Bítið Líklegt er að fyrstu tölur sem birtar verða úr þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn muni sýna fleiri nei. Tölurnar munu líklega fyrst koma af landsbyggðinni þar sem fleiri ætla að segja nei, samkvæmt könnunum. Reykvíkingar eru líklegastir til að segja já.
Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, sem var gestur í Bítínu á Bylgjunni í morgun. Þar ræddi hún nýja könnun fyrirtækisins. Sú könnun var opinberuð í gær og sýndi hún að 51,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að segja já við aðildarviðræðum við Evrópusambandið en 48,7 prósent ætla að segja nei. Sjá einnig: Dregur saman milli fylkinga Þóra segir muninn innan vikmarka og því séu í raun helmingslíkur á hvorri niðurstöðunni, eins og staðan er núna. „Þetta er auðvitað könnun og það er ekkert eins erfitt og að reyna að átta sig á mannlegu eðli. Þess vegna segi ég nú stundum að svona kannanir séu það flóknasta sem maður þarf að eiga við.“ Hún segir að það að já-ið sé ofar en nei-ið bendi til einhvers en munurinn hafi verið að dragast saman. Þá segir hún spennandi að fylgjast með afstöðu milli mismunandi hópa. Bendir hún á mikinn mun milli íbúa höfuðborgarsvæðisins og íbúa landsbyggðarinnar. Það verði líklega mjög mikill munur á kjördæmum. Hún Þóra sagðist hafa heyrt að fyrstu tölur kæmu frá Suðurlandi, til dæmis, og þar væru nei-arar mun fleiri samkvæmt könnunum. Því væri mjög líklegt að fyrstu tölurnar sýndu fleiri nei en já. Það gæti þó breyst þegar líður á daginn, þar sem það væri margt fólk í Reykjavík og þar væri hlutfall þeirra sem ætla að segja já hæst. Hlusta má á viðtalið við Þóru í spilaranum hér að neðan. Aðeins þrír dagar eru í að kjörstaðir um land allt verði opnaðir fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður Íslands við Evrópusambandið. Kjörstaðir verða almennt opnir frá klukkan 9 að morgni til klukkan tíu að kvöldi kjördags á laugardag, 29. ágúst. Kjörstaðir geta verið opnir skemur en upplýsingar um opnunartíma má finna á heimasíðum sveitarfélaga. Rúmlega fjörutíu þúsund manns hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar, hjá öllum sýslumönnum, sendiráðum og ræðismönnum. Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, segir kjörsókn hafa verið góða og mikill áhugi sé hjá fólki að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Allar upplýsingar um kjörstaði og annað sem viðkemur þjóðaratkvæðagreiðslunni má finna inni á vefnum islands.is en einnig eru ítarlegar upplýsingar á vefnum thjodaratkvaedi.is.
Evrópusambandið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Bylgjan Bítið Tengdar fréttir „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. 25. ágúst 2026 22:01 Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. 25. ágúst 2026 15:11 Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Erlent Fleiri fréttir Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Sjá meira
„Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vel geta einbeitt sér að mörgum verkefnum í einu. Segi þjóðin já um helgina verði athyglin þar en hún muni ekki gleyma öðrum verkefnum. Tekist var á um þjóðaratkvæðagreiðsluna í pallborði á Vísi í dag en nei-sinnar óttast að of mikill tími og fjárráð fari í viðræður segi þjóðin já. Það séu vandamál og verkefni heima fyrir sem sé brýnna að takast á við. 25. ágúst 2026 22:01
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. 25. ágúst 2026 15:11