Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar 25. ágúst 2026 10:33 Þann 1. júlí síðastliðinn tilkynnti heilbrigðisráðuneytið að það muni taka upp sérstakt komugjald þann 1. september fyrir komur til sjúkraþjálfara, iðjuþjálfara og talmeinafræðinga. Komugjaldið verður 1.500 kr. fyrir almenna, 1.000 kr. fyrir aldraða og 500 kr. fyrir öryrkja en börn yngri en 18 ára greiða ekki komugjald. Samkvæmt tilkynningunni frá ráðuneytinu er komugjaldið ótengt greiðsluþátttökukerfinu og er því ekki hluti af afsláttarstofni sjúklinga. Komugjaldið er það sama óháð gjaldalið meðferðaraðilans. Það hefur skiljanlega ekki verið mikið pláss í umræðunni fyrir þessa auknu gjaldtöku upp á síðkastið en það er nauðsynlegt að benda á dæmi um hversu mikil hækkun á kostnaðarhlut sjúklinga þessi breyting getur valdið. Ef þessi breyting fengi það pláss í umræðunni sem hún á skilið þá er ég viss um að sú umræða yrði hávær. Tökum nokkur dæmi um mögulegar hækkanir 1. Einstaklingur eftir axlaraðgerð Almennur einstaklingur sem slasar sig á öxl, fer í aðgerð og þarf í kjölfarið 15 skipti í sjúkraþjálfun á tveimur mánuðum greiðir samkvæmt núverandi kerfi 44.093 krónur í sinn hlut. Með nýju komugjöldunum gæti kostnaðurinn hækkað í 65.537 krónur. Það er 21.444 króna hækkun eða 49% aukning á kostnaðarhlut sjúklingsins. 2. Einstaklingur eftir heilablóðfall Einstaklingur sem fær heilablóðfall og verður óvinnufær vegna helftarlömunar fer eftir innlögn á sjúkrahúsi í sjúkraþjálfun tvisvar í viku í sex mánuði (Samtals 52 komur). Sá einstaklingur, sem er nýlega dottinn út af vinnumarkaðnum og kominn á örorkubætur, greiðir samkvæmt núverandi kerfi 46.853 krónur á þessu sex mánaða tímabili. Með nýju komugjöldunum gæti kostnaðurinn hækkað í 72.353 krónur. Það er 25.500 króna hækkun eða 54% aukning á kostnaðarhlut sjúklingsins. 3. Aldraður einstaklingur með langvinn veikindi Aldraður einstaklingur með taugasjúkdóm, sem er ekki öryrki, sækir hópþjálfun tvisvar í viku yfir veturinn, í samtals átta mánuði. Það gera 80 komur. Samkvæmt núverandi kerfi greiðir einstaklingurinn 55.515 krónur. Með nýju komugjöldunum gæti kostnaðurinn hækkað í 135.515 krónur. Það er 80.000 króna hækkun eða 144% aukning á kostnaðarhlut sjúklingsins. * Útreikningarnir eru byggðir á gefnum forsendum þar sem nákvæm útfærsla komugjalda hefur ekki verið kynnt. Upphæðirnar eru því áætlaðar og ætlað að sýna um það bil hversu mikil hækkun kostnaðarhluti sjúklinga getur orðið. Gert er ráð fyrir að komugjaldið geti ekki verið hærra en hlutur Sjúkratrygginga Íslands og að útreikningar séu án greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga Íslands í annarri þjónustu. Gert er ráð fyrir 11.480 kr. fyrir hverja meðferð og 5.510 kr. fyrir hverja hópmeðferð. Hærri kostnaður fyrir þá sem þurfa mestu þjónustuna Þessi dæmi sýna einungis mögulega hækkun á kostnaði vegna sjúkraþjálfunar en ekki annarri þjónustu svo sem heilsugæslu, talþjálfun og iðjuþjálfun. Það er erfitt að sjá hvernig það samræmist markmiðum um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag að hækka kostnaðarhlut sjúklinga um tugi prósenta og í sumum tilfellum um meira en 100%. Þetta gerist á sama tíma og landsmenn finna fyrir háum vöxtum og auknum framfærslukostnaði. Jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag er eitt stærsta heilbrigðismál sem við eigum að berjast fyrir. Fyrir efnaðan einstakling sem þarf litla heilbrigðisþjónustu eru þetta kannski ekki stórar upphæðir en fyrir þá sem eru veikastir og þurfa að nota heilbrigðiskerfið meira geta gjöldin safnast upp í háar upphæðir. Þetta kerfi sem sett verður á 1. september getur leitt til þess að þeir sem verst hafa það fjárhagslega eigi erfiðara með að sækja sér heilbrigðisþjónustu og jafnvel þurfi í sumum tilfellum að neita sér um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Hvers vegna þessi útfærsla og hver á að innheimta þetta gjald? Það er sérkennilegt að heilbrigðisráðuneytið ætli sér að láta sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk innheimta komugjöld fyrir sína hönd. Það er í gildi samningur milli sjúkratrygginga og sjúkraþjálfara um gjaldskrá og þar er hvergi minnst á komugjöld. Þessi útfærsla skapar einnig þá hættu að almenningur upplifi það eins og sjúkraþjálfarar séu sjálfir að bæta aukagjaldi við þjónustuna, þegar um er að ræða gjald sem stjórnvöld ákveða og innheimta í gegnum heilbrigðisþjónustuna. Ef markmiðið er að auka hlut sjúklinga í kostnaði þá væri heiðarlegra að hækka þann kostnaðarhlut sem sjúklingar greiða innan greiðsluþátttökukerfisins. En er það sú stefna sem við viljum hafa í heilbrigðiskerfinu eða viljum við heilbrigðiskerfi þar sem aðgengi að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu ræðst fyrst og fremst af þörf en ekki greiðslugetu? Heilbrigðisþjónusta á að vera fyrir okkur öll – ekki bara þá sem hafa efni á henni. Höfundur er sjúkraþjálfari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar