Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar 16. ágúst 2026 23:52 Þann 29. ágúst næstkomandi býðst landsmönnum einstakt lýðræðislegt tækifæri til að ákveða hvort við viljum halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Kannanir hafa sýnt að almennt er meiri stuðningur við áframhaldandi viðræður á höfuðborgarsvæðinu, en minni stuðningur í landsbyggðunum. Það er skiljanlegt að meira sé um nei-sinna á þeim svæðum á landinu þar sem hærra hlutfall starfar í sjávarútvegi og landbúnaði, en það eru þeir atvinnuvegir sem mest óvissa liggur fyrir um þegar kemur að samningi við ESB. Góð vísa er þó aldrei of oft kveðin og vert er að minna kjósendur landsins á að í ágúst er aðeins verið að kjósa um að hefja aðildarviðræður á ný, ekki að ganga í Evrópusambandið. Það er aðeins ein leið að vita hvað myndi felast í samningi við ESB hvað varðar þessar atvinnugreinar, og það er með því að semja og fá svo að sjá samning. Óhætt er að mæla með nýlegri greiningu Þórodds Bjarnasonar á mögulegum áhrifum ESB-aðildar á landsbyggðirnar. Hann bendir á að ljóst er að talsvert meiri fjármunum yrði varið til byggðamála ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu, þar sem hvati sé til þess að auka við féð sem fer til byggðamála til þess að fá mótframlag frá ESB. Þóroddur lýsir því að ef farið yrði í aðildarviðræður og Ísland væri tilbúið að auka framlög sín til byggðamála úr tveimur milljörðum og upp í um 6 milljarða á ári gæti það leitt til fimmföldunar á heildarframlagi til málaflokksins í 9-10 milljarða á ári. Hins vegar segir Þóroddur óljóst hvort pólitískur vilji sé til þess – en hvatarnir eru til staðar. Við sem búum í landsbyggðunum viljum að Ísland vaxi og eflist. Við vitum hvaða stuðningur er í boði í núverandi umhverfi, en ég vil að við höfum kjark til að sjá hvort landsbyggðirnar geti blómstrað enn betur innan Evrópusambandsins. Segjum já 29. ágúst og sjáum hvað landsbyggðunum býðst! Höfundur er varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sæunn Gísladóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfylkingin Mest lesið Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Þann 29. ágúst næstkomandi býðst landsmönnum einstakt lýðræðislegt tækifæri til að ákveða hvort við viljum halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Kannanir hafa sýnt að almennt er meiri stuðningur við áframhaldandi viðræður á höfuðborgarsvæðinu, en minni stuðningur í landsbyggðunum. Það er skiljanlegt að meira sé um nei-sinna á þeim svæðum á landinu þar sem hærra hlutfall starfar í sjávarútvegi og landbúnaði, en það eru þeir atvinnuvegir sem mest óvissa liggur fyrir um þegar kemur að samningi við ESB. Góð vísa er þó aldrei of oft kveðin og vert er að minna kjósendur landsins á að í ágúst er aðeins verið að kjósa um að hefja aðildarviðræður á ný, ekki að ganga í Evrópusambandið. Það er aðeins ein leið að vita hvað myndi felast í samningi við ESB hvað varðar þessar atvinnugreinar, og það er með því að semja og fá svo að sjá samning. Óhætt er að mæla með nýlegri greiningu Þórodds Bjarnasonar á mögulegum áhrifum ESB-aðildar á landsbyggðirnar. Hann bendir á að ljóst er að talsvert meiri fjármunum yrði varið til byggðamála ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu, þar sem hvati sé til þess að auka við féð sem fer til byggðamála til þess að fá mótframlag frá ESB. Þóroddur lýsir því að ef farið yrði í aðildarviðræður og Ísland væri tilbúið að auka framlög sín til byggðamála úr tveimur milljörðum og upp í um 6 milljarða á ári gæti það leitt til fimmföldunar á heildarframlagi til málaflokksins í 9-10 milljarða á ári. Hins vegar segir Þóroddur óljóst hvort pólitískur vilji sé til þess – en hvatarnir eru til staðar. Við sem búum í landsbyggðunum viljum að Ísland vaxi og eflist. Við vitum hvaða stuðningur er í boði í núverandi umhverfi, en ég vil að við höfum kjark til að sjá hvort landsbyggðirnar geti blómstrað enn betur innan Evrópusambandsins. Segjum já 29. ágúst og sjáum hvað landsbyggðunum býðst! Höfundur er varaþingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar