Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Freyja Þórisdóttir skrifar 4. ágúst 2026 16:49 Brúin á að vera opnuð þann 16. júní árið 2028 en vinna hefur verið á áætlun síðan hún hófst í apríl þessa árs. Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks, segir framkvæmdir ganga vel. SÝN/Lýður Valberg/Vísir/Vilhelm Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar.
Undirstöður brúarinnar Öldu yfir Fossvog eru í sex hlutum, þar af eru fjórir burðarásar á sjó. Nota þarf stóran bor sem nær upp í 35 metra hæð til að koma staurunum fyrir í burðarvirki brúarinnar og eingöngu er heimilt að nota slík vinnutæki þegar flugvöllurinn er lokaður. Brúin verður 270 metrar á lengd og mest um tólf metrar á breidd.Vísir/Vilhelm „Það sem við höfum verið að brasa hérna á sjó, þessi stauravinna, henni er lokið,“ segir Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks, en Ístak og Per Aarsleff AS tóku formlega við framkvæmdasvæðinu á Kársnesi í janúar 2026 til að hefja undirbúning brúarsmíði og hófust framkvæmdir í apríl. „Ég er nú ekki að fara að vera bjartsýnn á að íbúarnir hérna [á Kársnesi] séu alveg lausir við okkur en við erum ekki að bora meira í sjónum,“ bætir Guðjón við. Þakka kærlega fyrir jákvæðnina Hægt er að fylgjast með framvindu mála á sérstakri vefsíðu um Fossvogsbrú en þar eru vikulega birtar upplýsingar um hvaða vinna er í gangi hverju sinni. Guðjón útskýrir að nú taki við vinna þar sem síðustu staurarnir á landfyllingunni við brautarenda Reykjavíkurflugvallar verði reknir niður. Kársnesmegin er unnið að svokölluðu landkari, uppsteypu á undirstöðum landstöpuls, en íbúar gætu orðið varir við einhverja dynki en ekkert jafn stanslaust og högghljóðin sem heyrðust þegar borað var í klöppina. „Við viljum þakka íbúunum hérna kærlega fyrir auðsýnda þolinmæði og jákvæðni í okkar garð,“ segir Guðjón í samtali við blaðamann og ítrekar að „við skynjum það hérna mjög sterkt að fólkið hérna í kring er jákvætt gagnvart framkvæmdinni.“ Líkt og fyrr segir gætu íbúar á Kársnesi áfram orðið varir við einhver hljóð frá framkvæmdasvæðinu en Guðjón segir mögulega dynki geta heyrst á næstu dögum og vikum þegar logsoðnir stálrammar, þurrkvíar, verða hífðar ofan á staurana sem hafa verið festir. Þurrkvíarnar séu á stærð við hús Til þess að komast að staurundirstöðunum verða settar upp flotbryggjur en þær verða ekki varanlegar. Á sjó verða staurarnir svo fylltir af steypu og að því loknu verða þurrkvíarnar hífðar á staurana. Hífingar sem fylgja þessum hluta verksins eru gerðar að næturlagi en eiga ekki að valda miklu raski og eru mun hljóðlátari en borunin. „Þetta eru fjórar þurrkvíar sem eru í raun svona stálkassar sem eru um sex metra langir, fimmtán metra breiðir og átta metra háir. Nánast eins og hús,“ segir Guðjón og bætir við: „Það er búið að smíða það allt og það verður sem sagt híft ofan á staurana.“ Meðal þeirra sem hafa komið að verkinu eru atvinnukafarar sem logsjóða neðansjávar en starfsgreinin er af mörgum talin ein sú hættulegasta í heimi.Vísir/Vilhelm Vinnan við stálrammana er áætluð út ágúst og í september en brúin á að vera fullkláruð um hásumar árið 2028. „Við erum langt komnir með undirstöðuna sem er hérna Kársnesmegin og erum að byrja núna á undirstöðunni sem er Reykjavíkurmegin,“ segir Guðjón en hann minnist á það að margir hlutar verkefnisins þyki spennandi, í það minnsta fyrir fólk sem hefur áhuga á svona framkvæmdum. „Við erum hérna með stóra pramma og framundan er að við verðum með menn í vatninu sem munu logsjóða á næturnar,“ segir hann en sjávarbotninn sé í um tíu til fimmtán metra dýpt þar sem unnið sé. Heyrist í starfsmönnunum syngja á prammanum Guðjón sér fram á að brúarsmíðin klárist hratt og örugglega en brúin Alda á að opna þann 16. júní árið 2028. Brúin sjálf sé smíðuð og álagsprófuð í Póllandi en hún sé svo flutt til Íslands í fimm pörtum og hífð á undirstöðurnar. „Allt þetta umstang sem er á okkur núna, þessir staurar og þurrkvíin og allt það, hún er í raun og veru hífð ofan á það.“ Hann nýtir tækifærið og þakkar íbúum Kársness enn og aftur kærlega fyrir þolinmæðina en þeir hjá Ístaki gera sitt besta til að hafa vinnuna sem hljóðlátasta. Stundum skapist aðstæður þar sem hljóð berist ótrúlega vel frá prammanum og það sé lítið við því að gera. „Þessari næturvinnu, þegar við erum að bora staurana ofan í klöpp, er lokið og við fylgjumst mjög vel með þessum hljóðmælingum sem eru í gangi,“ segir hann og útskýrir að „verstu næturnar eru þegar það er logn og alveg hljóðbært. Þá heyrist bara mælt mál hérna ef strákarnir úti á prammanum eru eitthvað að syngja.“ Því hafi verið fagnað um helgina þegar síðustu staurarnir voru klárir en útlit er fyrir að Guðjón og félagar hjá Ístaki muni vinna áfram að fleiri fösum Borgarlínunnar á næstu árum.
Fossvogsbrú Byggingariðnaður Borgarlína Kópavogur Reykjavík Samgöngumál Samgönguáætlun Vegagerð Umferð Reykjavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Ístak byggir Fossvogsbrú Betri samgöngur annars vegar og Ístak hf. & Per Aarsleff AS hins vegar skrifuðu undir verksamning um smíði Fossvogsbrúar fyrr í dag. Fyrirtækin áttu lægra af tveimur tilboðum í verkið og hljóðar samningurinn upp á um 7,7 milljarða króna. 20. nóvember 2025 12:24 Fyrsta lota Borgarlínu kosti 25 milljarða og þar muni mestu um byggingu brúa Reiknað er með að fyrsti áfangi Borgarlínu verði tekinn í gagnið seinni hluta ársins 2025. Frumdrög þessa áfanga upp á tuttugu og fimm milljarða voru kynnt í dag og munar þar mestu um kostnað við brýr yfir Fossvog og Elliðaárvog. 5. febrúar 2021 21:00 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira
Ístak byggir Fossvogsbrú Betri samgöngur annars vegar og Ístak hf. & Per Aarsleff AS hins vegar skrifuðu undir verksamning um smíði Fossvogsbrúar fyrr í dag. Fyrirtækin áttu lægra af tveimur tilboðum í verkið og hljóðar samningurinn upp á um 7,7 milljarða króna. 20. nóvember 2025 12:24
Fyrsta lota Borgarlínu kosti 25 milljarða og þar muni mestu um byggingu brúa Reiknað er með að fyrsti áfangi Borgarlínu verði tekinn í gagnið seinni hluta ársins 2025. Frumdrög þessa áfanga upp á tuttugu og fimm milljarða voru kynnt í dag og munar þar mestu um kostnað við brýr yfir Fossvog og Elliðaárvog. 5. febrúar 2021 21:00