Byggingariðnaður
1 2 3 4 5 6 … 15 ›
Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Bæjarráð Hafnarfjarðarbæjar hefur samþykkt að fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara og sameiginlegra bifreiðageymslna. Markmiðið er að bílastæði færist í auknum mæli neðanjarðar. Innlent 4.9.2026 13:50
Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Forstjóri ÞG Verks fagnar því að nýr meirihluti Reykjavíkurborgar hafi dregið úr kvöðum á íbúðauppbyggingu. Breytingarnar muni ekki hafa afgerandi áhrif á erfiðan byggingarmarkað til skemmri tíma en geti auðveldað verktökum að byggja minni og ódýrari íbúðir sem eftirspurn sé eftir. Innlent 4.9.2026 12:58
Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Reykjavíkurborg ætlar að gefa uppbyggingaraðilum meira svigrúm til að ákveða stærð og herbergjafjölda íbúða og draga úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum. Samfylkingin segir breytingarnar veikja skipulagsramma borgarinnar og geta gert áætlanir um innviði ómarkvissar. Innlent 3.9.2026 16:33
Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Meirihlutinn í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur samþykkti í gær að fella niður bindandi hámark á fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar. Innlent 3.9.2026 13:48
Brýna stjórnvöld og Seðlabankann að horfa meira á framboðshlið markaðarins Stjórnendur fjárfestingafélagsins Langasjávar, sem er meðal annars umsvifamikið í verkefnum tengt byggingarstarfsemi, vara við því að langvarandi samdráttur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis geti leitt til vaxandi spennu á húsnæðismarkaði þegar vextir taka að lækka og eftirspurn eykst á ný. Þeir brýna fyrir stjórnvöldum og Seðlabankanum að horfa í auknum mæli til framboðshliðar markaðarins með því að stuðla að umhverfi sem ýti undir fjárfestingu og uppbyggingu. Innherji 3.9.2026 11:51
Varaseðlabankastjóri varar við hættu á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, eini nefndarmaður peningastefnunefndar Seðlabankans sem vildi halda vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun, varar við því að háir vextir og miklar birgðir af óseldum íbúðum muni auka hættuna á „skarpri aðlögun“ í byggingargeiranum. Hann bendir á að „raunveruleg fjármögnunarskilyrði“ heimila hafi versnað umfram stýrivaxtahækkanir samhliða mikilli hækkun verðtryggðra markaðavexta frá því í vor. Innherji 3.9.2026 10:09
Gluggi er ekki bara gluggi Kröfur til bygginga hafa aukist mikið undanfarin ár. Meiri áhersla er lögð á þéttleika, orkusparnað, burðarþol og almennt á að koma í veg fyrir byggingargalla með tilheyrandi kostnaði, málaferlum og viðgerðum sem geta tekið mörg ár. Gluggar og útihurðir eru þar engin undantekning enda mikilvægur hluti af veðurhjúp hússins. Samstarf 27.8.2026 09:35
Selt megnið af bréfum sínum í Stoðum á síðustu mánuðum Fjárfestingafélag Þorvalds Gissurarsonar, einn umsvifamesti byggingarverktaki landsins, hefur á fáeinum mánuðum selt mikinn meirihluta allra bréfa sinna í Stoðum. Viðskipti með hlutabréf Stoða, sem hafa sett stefnuna á skráningu í Kauphöll, hafa aukist nokkuð að undanförnu en tveir fjárfestar hafa þar einkum verið á söluhliðinni. Innherji 9.8.2026 14:16
Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Síðustu vikur hefur borun staðið yfir að næturlagi í sjónum úti fyrir Kársnesi en henni er nú lokið. Borunin er skref í smíði Fossvogsbrúar sem verður 270 metra löng, allt að sautján metra breið og opnar þann 16. júní árið 2028, ef allt fer eftir áætlun. Staðarstjóri segir framkvæmdina vera hreint út sagt ótrúlega en meðal þeirra sem hafa komið að smíðinni eru atvinnukafarar sem sérhæfa sig í logsuðu neðansjávar. Innlent 4.8.2026 16:49
Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Farið hefur verið fram á nauðungarsölu á lóð í Mosfellsbæ í eigu félagsins Render Centium. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er helmingseigandi félagsins á móti föður sínum. Krafan er upp á tæpan milljarð króna. Innlent 17.7.2026 08:01
Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Atvinnulausum í byggingariðnaði og mannvirkjagerð fjölgar um tæp fjörutíu prósent milli ára. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þetta mikið áhyggjuefni og að áform ríkisstjórnarinnar geri illt verra. Viðskipti innlent 12.7.2026 12:53
„Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Samdráttur í byggingariðnaði hefur gert það að verkum að fyrirtæki eru farin að horfa út fyrir höfuðborgarsvæðið í leit að verkefnum og þá bjóða margfalt fleiri í sama verkið nú en áður. Uppsagnir eru í geiranum og dæmi um að starfsmannafjöldi hafi helmingast hjá einu fyrirtæki. Innlent 1.7.2026 18:58
Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Þegar stórar framkvæmdir hefjast skiptir miklu máli að réttar vélar séu til staðar á réttum tíma. Það er einmitt kjarninn í starfsemi Arma Jarðvéla sem sérhæfa sig í útleigu á jarðvinnuvélum fyrir verkefni af öllum stærðum. Að sögn Þóris Kristmundssonar, verkstjóra hjá Örmum Jarðvélum, er markmiðið einfalt: að viðskiptavinir fái áreiðanlega þjónustu og þann búnað sem þeir þurfa, hvar sem er á landinu. Samstarf 1.7.2026 11:53
Ýtukarl á áttræðisaldri er enn að bæta vegina Sunnlenskur ýtustjóri á áttræðisaldri, sem sinnir vegagerð í Húnaþingi í sumar, segist í upphafi hafa ætlað að vera í þrjár vikur á vinnuvélum. Þær vikur séu núna orðnar 54 ár. Innlent 30.6.2026 07:08
Stytting hringvegarins sú næstmesta á þessari öld Ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð í dag. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra og leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar um næstum fimmtán kílómetra. Vegamálastjóri sagði í ávarpi við brúarvígsluna að slík stytting hefði ekki orðið á hringveginum frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998. Innlent 24.6.2026 22:24
Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Vinnupallar ehf. bjóða öruggar og hagkvæmar lausnir fyrir verktaka, iðnaðarmenn og aðra fagaðila sem sinna framkvæmdum af ýmsu tagi. Fyrirtækið sérhæfir sig í leigu og sölu vinnupalla en hefur á undanförnum árum einnig byggt upp öflugt framboð á öryggisgirðingum, umferðaröryggisvörum og fallvörnum ásamt fjölbreyttum fylgibúnaði. Samstarf 24.6.2026 10:09
„Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Sjaldan hafa verið jafn góðar aðstæður fyrir kaupendur að koma sér inn á fasteignamarkaðinn og nú að mati fasteignasala. Um fjórðungur íbúða hefur verið til sölu í eitt ár eða lengur og sölutíminn lengist sífellt. Innlent 18.6.2026 19:55
Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins. Innlent 16.6.2026 07:07
Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Opinber umræða um íbúðauppbyggingu varðar oftast fjölda íbúða í uppbyggingu, skipulag eða kostnað. Skoðun 9.6.2026 14:15
Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Stefnt er að því að nýi Arnarnesvegurinn um Vatnsendahæð verði opnaður að hluta í lok næsta mánaðar og vegurinn í heild í október í haust. Þetta tíu milljarða króna verkefni er stærsta vegagerð á höfuðborgarsvæðinu hin síðari ár. Innlent 27.5.2026 21:21
Úr Símanum í rörin Iðnaðarfyrirtækið Set ehf. á Selfossi hefur verið keypt. Fyrirtækið er einnig með starfsemi í Reykjavík, Danmörku og Þýskalandi en þar starfa að jafnaði um hundrað manns. Set veltir ríflega fimm milljörðum á ári. Viðskipti innlent 12.5.2026 13:16
Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Framtíð um sextíu fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða er í lausu lofti vegna óvissu um lóðarleigusamninga. Talsmenn þeirra segja gríðarlega hagsmuni í húfi og fjölda starfa undir. Þeir kölluðu frambjóðendur á sinn fund í dag sem voru á einu máli um að staðan þyrfti að skýrast. Innlent 11.5.2026 19:30
Raki og mygla í skólum er lýðheilsumál Rakaskemmdir eru dýrt og erfitt vandamál. En þegar heilsa barna, starfsfólks og almannafé eru í húfi þarf vönduð og þekkingarmiðuð nálgun að ráða för. Skoðun 10.5.2026 07:16
Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Framkvæmdir við Fossvogsbrú eru komnar á fullt skrið og voru fyrstu staurar fyrir brúarstöplana reknir niður í sjávarbotninn í fyrrinótt. Stefnt er að því að brúin verði opnuð umferð eftir tvö ár. Innlent 5.5.2026 21:41
Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Reitir og Hýsi hafa hafið viðræður við sveitarfélög um nýja lausn í leikskólamálum. Forstjóri Reita segir hægt að afhenda níutíu barna leikskóla á um sex mánuðum og að kostnaðurinn geti numið um helmingi þess sem þekkist í Reykjavíkurborg. Innlent 4.5.2026 12:50
Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Samtök iðnaðarins segja annan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar valda vonbrigðum. Pakkinn boði 1.200 til 1.400 íbúðir á ríkisreitum í Reykjavík, en taki ekki á boðuðum skattahækkunum, háum álögum eða erfiðum lánþegaskilyrðum sem halda aftur af sölu nýbygginga. Innlent 28.4.2026 18:31
Ráðabrugg Misvægi atkvæða er vopnið, sem ríki og borg beita af hörku gegn Reykvíkingum. Skoðun 27.4.2026 16:16
Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Á bak við stórar byggingar, brýr og mannvirki sem móta íslenskt samfélag leynist oft öflug þjónusta sem sér til þess að verkin gangi upp. Eitt þeirra fyrirtækja er Armar Mót og kranar, sem er hluti af Armar samstæðunni sem hefur verið leiðandi afl í byggingariðnaði hér á landi í yfir tvo áratugi. Samstarf 23.4.2026 09:16
Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Niðurrifi bygginga við Fannborg er lokið og þar með eru gamla félagsheimilið og gömlu bæjarskrifstofurnar í Kópavogi horfin af yfirborði jarðar og lítið stendur eftir af áralöngu deiluefni annað en urð og grjót. Innlent 23.4.2026 07:01
Landsbankinn með langmest undir í lánum til byggingageirans Eftir verulegan lánavöxt á liðnu ári til byggingageirans er Landsbankinn núna með um helminginn af öllum útistandandi lánum stóru bankanna til verktakafyrirtækja. Greinendur hafa varað við því að fyrirséð er að útlánasafn bankanna til geirans eigi eftir að „súrna“ núna þegar meðalsölutími nýrra íbúða hefur aldrei mælst lengri og þrengt hefur að aðgengi að lánsfé. Innherji 16.4.2026 11:51