Viðskipti innlent

At­vinnu­lausum verka­mönnum fjölgar um fjöru­tíu pró­sent

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ingólfur Bender er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins.
Ingólfur Bender er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Vísir/Arnar

Atvinnulausum í byggingariðnaði og mannvirkjagerð fjölgar um tæp fjörutíu prósent milli ára. Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir þetta mikið áhyggjuefni og að áform ríkisstjórnarinnar geri illt verra.

Tæplega tólfhundruð einstaklingar í byggingariðnaði og mannvirkjagerð voru atvinnulausir í júní samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Á sama tíma í fyrra voru þeir 860 sem gerir fjölgun upp á tæp fjörutíu prósent. Atvinnuleysi í greininni mælist 6,3 prósent.

Samtök iðnaðarins hafa ítrekað vakið athygli á kulnun greinarinnar en Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur samtakanna, segir tölurnar sýna svart á hvítu að eitthvað þurfi að breytast.

„Þetta er alvarlegt. Greinin veltir um sjö hundruð milljörðum króna. Í henni starfa um tuttugu þúsund manns. Greinin er um átta prósent af hagkerfinu, skattsporið er um 190 milljarðar. Þar af áttatíu milljarðar í beinum sköttum. Um leið og það dregur úr finnur hagkerfið fyrir. Svo sinnir greinin mjög mikilvægum þáttum í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og innviða. Við erum með mikla innviðaskuld,“ segir Ingólfur. 

Samdrátturinn sé mestur við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Ýmsar skýringar séu á ástandinu en það þurfi að bregðast við.

„Almennt er búið að hægja á hagkerfinu og hægur hagvöxtur. Því til viðbótar hefur verið mikil hækkun á opinberum gjöldum og sköttum, sem dregur úr vilja til að byggja íbúðir,“ segir Ingólfur. 

Þá séu ekki endilega bjartari tímar framundan.

„Til þess að bæta gráu ofan á svart ætla stjórnvöld að gera það enn dýrara að byggja. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem var lögð fram í sumar kemur fram að fyrirhugað sé að lækka enn frekar endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað. Ef menn fara niður í núllið eru þetta tvær og hálf til þrjár milljónir á hverja íbúð. Það leggst á annan kostnað við uppbyggingu íbúða. Það dregur enn frekar úr uppbyggingu og skapar samdrátt. Þetta eru mjög neikvæð tíðindi ofan í þessar fréttir af samdrætti í greininni,“ segir Ingólfur. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×