Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Samúel Karl Ólason skrifar 29. júlí 2026 11:26 Pavel Durov, stofnandi Telegram býr í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Yfirvöld í Rússlandi saka hann um stuðning við hryðjuverkastarfsemi. AP/Tatan Syuflana Yfirvöld í Rússlandi hafa ákært Pavel Durov, stofnanda samfélagsmiðilsins Telegram, fyrir að styðja hryðjuverkastarfsemi og hafa sett hann á alþjóðlega lista yfir yfirlýsta menn. Rússnesk stjórnvöld hafa þjarmað verulega að samfélagsmiðlinum í Rússlandi og vilja þess í stað að Rússar noti ríkissnjallforrit sem auðveldar yfirvöldum að fylgjast með borgurunum.
Öryggisstofnunin FSB, arftaki KGB, hefur sakað Durov og aðra stjórnendur Telegram um að hafa ekki fjarlægt Telegram-rásir, botta og annað sem úkraínskar leyniþjónustur, hryðjuverkasamtök og önnur „öfgasamtök“ eiga að hafa notað til að skipuleggja skemmdarverk, hryðjuverk, morð og svik, svo eitthvað sé nefnt. Samkvæmt rússnesku fréttaveitunni RIA segja forsvarsmenn FSB að 46 Rússar á aldrinum tólf til 22 hafi verið handteknir fyrir að taka þátt í árásum eða skemmdarverkum fyrir hönd Úkraínumanna. Þeir hafi verið fengnir til þess í gegnum Telegam. Úkraínumenn eru sagðir hafa notað vinsælar stefnumótarásir á Telegram til að eiga í samskiptum við þessa ungu menn. Sjá einnig: Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Durov tilkynnti sjálfur fyrr á árinu að yfirvöld í Rússlandi væru að rannsaka hann. Þá sakaði hann ríkisstjórn Rússlands um að búa til átyllu til að koma höndum yfir Telegram og takmarka aðgengi Rússa að samfélagsmiðlinum. Þannig vildu ráðamenn draga úr rétti fólks til tjáningarfrelsis. Þegar stjórnvöld reyndu fyrst að takmarka aðgengi íbúa að Telegram leiddi það til nokkurrar reiði, bæði í borgum Rússlands og á víglínunni. Margir rússneskir hermenn notuðu samfélagsmiðilinn til að eiga í samskiptum við aðra hermenn og yfirmenn sína. Einnig ákærður í Frakklandi Durov er rússneskur og stofnaði Telegram upprunalega í Rússlandi árið 2013. Fyrirtækið er nú skráð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, þar sem Durov býr einnig. Hann er með ríkisborgararétt þar en einnig í Frakklandi, þar sem hann bjó áður. Sjá einnig: Stofnandi Telegram ákærður fyrir glæpastarfsemi á miðlinum Vestræn ríki hafa einnig átt sökótt við Telegram og var Pavlov ákærður í Frakklandi árið 2024 fyrir að neita að vinna með löggæsluyfirvöldum sem rannsökuðu barnaníðsefni, fíkniefnasmygl og fjársvik á Telegram. Honum var þó leyft að fara aftur heim til Dúbaí í furstadæmunum í fyrra þótt málið væri enn í gangi. Durov er 41 árs gamall og heldur því fram að hann hafi feðrað á annað hundrað börn í gegnum árin, þótt hann sé skráður faðir einungis sex barna með þremur mismunandi konum. Þessu til viðbótar segir hann að sæði úr sér, sem hann hafi gefið frjósemisstofu fyrir einhverjum árum síðan til að hjálpa félaga sínum, hafi verið nýtt til að frjóvga egg á annað hundrað kvenna í tólf mismunandi löndum. Taka stjórn á internetinu í Rússlandi Á undanförnum árum hafa stjórnvöld í Rússlandi gripið til umfangsmikilla aðgerða til að sporna gegn andófi á internetinu. Flestir samfélagsmiðlar og samskiptaforrit sæta bönnum og lokunum eða umfangsmiklum takmörkunum í Rússlandi. Eftir að innrásin í Úkraínu hófst hefur rússneska ríkið einnig gengið hart fram gegn mannréttinda-, félaga- og hjálparsamtökum. Forsvarsmönnum fjölmargra þeirra hefur verið gert að hætta starfsemi og á það sama við fjölmarga fjölmiðla. Sjá einnig: Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Löngu áður en hann stofnaði Telegram bjó Durov til samfélagsmiðilinn VK, sem líkist mjög Facebook, og náði hann miklum vinsældum í Rússlandi. Fyrirtæki hliðholl yfirvöldum í Rússlandi hafa komið höndum yfir þann samfélagsmiðil. Í staðinn vilja ráðamenn í Rússlandi að Rússar noti forrit sem kallast MAX. Það er nokkurs konar sambland af samfélagsmiðli og opinberri vefgátt og er stýrt af yfirvöldum. Fólk á að geta greitt atkvæði gegnum forritið, greitt opinber gjöld og margt annað. Þá gerir forritið yfirvöldum kleift að fylgjast betur með fólki. Max hefur af mörgum verið líkt við WeChat forritið í Kína. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, skrifaði fyrr á árinu undir ný lög sem skilyrða samskiptafyrirtæki til að loka á internetið og samskipti í Rússlandi þegar yfirvöld fara fram á það.
Rússland Samfélagsmiðlar Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Sjá meira