Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Árni Sæberg skrifar 22. júlí 2026 14:21 Núverandi aðstæður við jaðar Sólheimajökuls. Jón Heiðar Andrésson/Vedur.is Undanfarnar vikur hafa orðið verulegar breytingar við sporð Sólheimajökuls sem hafa gert aðkomu að jöklinum erfiðari og varasamari. Óstöðugur jökulís við jökullónin og grjóthrun úr hlíðum geta skapað hættu fyrir fólk sem fer um svæðið.
Í tilkynningu þess efnis á vef Veðurstofunnar segir að lítið lón hafi myndast austan við sporð Sólheimajökuls. Á milli þess og aðaljökullónsins framan við Sólheimajökul hafi myndast íshaft, sem myndi tengingu frá ströndinni að jöklinum. Haftið hafi minnkað hratt undanfarnar vikur vegna bráðnunar og kelfingar en til skýringar verði kelfingar þegar jakar brotna fram í lónið. Nú geti hætta skapast af því að fara um íshaftið. Bæði sé hætta á að óstöðugur ís gefi sig og að fólki skriki fótur og falli í lónin öðru hvoru megin við haftið. Aðkoma að sporði Sólheimajökuls sé því mun erfiðari og varasamari en áður. Hafa fellt niður ferðir Miklar breytingar á aðstæðum hafi orðið frá degi til dags og óvissa sé um áframhaldandi þróun. Mikilvægt sé að fólk sem fer um svæðið á eigin vegum gæti varúðar við jökulsporðinn og fari ekki út á óstöðugan jökulís og svæði þar sem hætta sé á falli ofan í köld og djúp jökullón. Leiðsögumenn á svæðinu vakti breytingarnar og ferðaþjónustufyrirtæki hafi nú í forvarnarskyni fellt niður ferðir og hugað sé að nýjum og öruggari leiðum. Hætta á grjóthruni Veðurstofan vekur jafnframt athygli á grjóthrunshættu úr Jökulhaus, fjallinu ofan aðkomuleiðarinnar að suðaustanverðum Sólheimajökli. Fólk ætti að lágmarka viðveru undir bröttum hlíðum. Grjót sem falli á aðkomuleiðina geti verið stór og skapað verulega hættu fyrir ferðafólk. Meðfram öllum göngustígunum sé grjóthrunshætta og því sé mikilvægt að sýna aðgát. Ferðafólk sé hvatt til að skoða brattar hlíðar vel og vera vakandi fyrir merkjum um grjóthrun, svo sem nýföllnu grjóti eða hljóðum úr hlíðinni. Grjóthrun verði skyndilega og ekki sé hægt að spá nákvæmlega fyrir um hvenær það á sér stað. Líkur á grjóthruni geti þó aukist í mikilli úrkomu og við snöggar hitabreytingar, til dæmis þegar frýs og þiðnar til skiptis. Aðstæður breytast vegna hops Loks segir að flestir jöklar landsins hörfi nú í hlýnandi loftslagi, sem leiði til margvíslegra breytinga við jökulsporðana, sem geti haft áhrif á öryggi fólks og aðstæður vegna jöklaferða. Jaðarlón myndist og stækki, sem geti hindrað för, aurbleytur myndist við jökulsporða og landslag sé óstöðugt þar sem jöklar hafi áður stutt við fjallshlíðar í dölum. Vert sé að hafa í huga að aðgengi að jökulsporðum er óvíða jafn auðvelt og hér á landi. Það sé aðeins á örfáum stöðum í heiminum þar sem finna má malbikaða vegi sem ná langleiðina að jökulsporði. „Óvant ferðafólk á því auðvelt með að koma sér í hættulegar aðstæður. Mikilvægt er að fólk geri sér grein fyrir hættunum, fylgi leiðbeiningum, sýni varúð, beri virðingu fyrir því umhverfi sem ferðast er um og hugi að síbreytilegum aðstæðum sem ríkja framan skriðjökla.“
Jöklar á Íslandi Ferðalög Ferðaþjónusta Veður Mýrdalshreppur Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira