Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar 22. júlí 2026 11:33 Það er eðlilegt að vilja vernda barnið sitt og passa upp á að ekkert slæmt komi fyrir það. Þegar við eignumst barn er líka eðlilegt að upplifa ótta sem við höfum ekki fundið áður. Skyndilega erum við með það dýrmætasta sem við eigum í fanginu og ábyrgðin getur verið yfirþyrmandi. Ég er hvorki læknir né sálfræðingur, né sérstakur sérfræðingur í málefni greinarinnar. Ég er fjögurra barna móðir sem upplifði mikla vanlíðan á þremur af fjórum meðgöngum mínum og fyrstu mánuðina eftir fæðingu barnanna minna. Ég elskaði þau útaf lífinu en á sama tíma var ég stöðugt hrædd um að eitthvað hræðilegt myndi koma fyrir þau. Ég gerði ýmislegt til að koma í veg fyrir að það gerðist og lifði í því sem ég myndi kalla óttafangelsi. Eftir annað barnið mitt leið mér mjög illa í langan tíma án þess að ég áttaði mig á því hvað væri raunverulega að. Ég og fagfólk sem ég leitaði til merkti þessa líðan sem kvíða sem var hluti af vandanum, en ekki lausnin sem ég þurfti þá. Síðar eignaðist ég mitt þriðja og fjórða barn með stuttu millibili. Þá versnaði líðanin. Ég sá hættur alls staðar. Ég sá fyrir mér börnin mín slasast eða deyja á ótal mismunandi vegu, á hverjum einasta degi, oft á dag, allt í huganum. Ég hugsaði með mér að þetta hlyti að lagast, en það gerði það ekki. Ég var dugleg að deila til ljósmæðra í mæðravernd og sálfræðinga sem voru allir boðnir og búnir að aðstoða. En enginn minntist á það sem ég var að fara að uppgötva. Ég þurfti að leita út fyrir landsteinana til að finna skýringu á því sem ég var að upplifa. Þegar ég lærði um hugtakið “perinatal OCD” varð það mikill léttir. Þess vegna skrifa ég þennan pistil. Mig langar að vekja athygli foreldra og þeirra sem sinna mæðravernd á því að til er röskun sem kallast meðgöngu og eftir fæðingu OCD (Perinatal OCD). Hvað er Perinatal OCD? Perinatal OCD er áráttu- og þráhyggjuröskun sem getur komið fram á meðgöngu eða á fyrsta árinu eftir fæðingu barns. Röskunin einkennist af ágengum og kvíðavaldandi hugsunum og endurteknum athöfnum eða hugsunum sem einstaklingurinn framkvæmir til að draga úr kvíðanum. Margir tengja OCD við stöðugan handþvott eða það að allt þurfi að vera í röð og reglu. Það sem margir vita ekki er að OCD getur birst á mjög fjölbreyttan hátt og getur verið mjög leynt. OCD á sér ótal þekktar birtingarmyndir og snýst í grunninn um að heilinn festist í vítahring ótta og kvíða og athöfnum eða hugsunum til að láta kvíðann hverfa. OCD hefur tilhneigingu til að ráðast á það sem okkur er kærast. Þegar við eignumst barn verður það oft það dýrmætasta sem við eigum og því er ekki óalgengt að hugsanirnar snúist um velferð þess. Hugsanirnar og ímyndirnar sem OCD skapa geta orðið mjög brenglaðar og margir þora ekki að deila því sem þeir eru að upplifa. Þegar heilinn sendir fölsk skilaboð Perinatal OCD snýst ekki um að foreldri vilji skaða barnið sitt. Þvert á móti. Foreldrar með þessa röskun eru oft einstaklega umhyggjusamir og vilja gera allt til að vernda börnin sín. Heilinn sendir hins vegar fölsk skilaboð í formi hugsana, ímynda eða tilfinninga sem vekja mikinn kvíða. Til að róa kvíðann framkvæmir einstaklingurinn síðan ákveðnar athafnir eða hugsunarferli til að létta kvíðanum en heldur ferlinu gangandi án þess að átta sig á því. Þess vegna er vitundavakning um perinatal OCD mikilvæg. Í perinatal OCD getur árátta til dæmis verið að: ● Tékka óvenju oft hvort barnið andi ● Forðast ákveðnar aðstæður ● Leita stöðugt eftir fullvissu um öryggi barnsins ● Hrista hausinn eða tala sig frá óvelkonmu hugsununum ● Reyna að stjórna óvelkomnum hugsunum með því td að biðja bæn/möntru eða rökræða hugsunina í huganum Þessar athafnir veita stundarlétti frá kvíða en næra um leið hugsanirnar og viðhalda vítahringnum. Þær geta verið mjög mismunandi eftir einstaklingnum. Þegar ég lít til baka sé ég hversu mikið þessi röskun tók frá mér. Hún stal stórum hluta af gleðinni sem fylgir því að eiga ungabarn. Í stað þess að njóta augnablikanna var ég oft upptekin af því að vernda börnin mín gegn hættum sem voru aðeins til í huganum. Ég var uppgefin af hræðslu og einangraði mig mikið. Ég upplifi depurð yfir því að hafa ekki heyrt um þessa röskun fyrr en fjórða barnið mitt var orðið eins og hálfs árs og ég búin að vera í andlegu óttafangelsi lengi. Sérstaklega vegna þess að um leið og ég áttaði mig á þessu og tók mikilvæg skref í átt að bata tók það ekki langan tíma að líða betur. Nokkrar mikilvægar staðreyndir sem ég hef lært um Perinatal OCD: ● Röskunin getur komið fram hjá öllum sem eignast barn, hvort sem um er að ræða móður, föður eða aðra nána umönnunaraðila. ● Hún getur komið fram á meðgöngu eða eftir fæðingu, við ættleiðingu eða á hvern þann hátt sem barn kemur inn í líf viðkomandi. ● Óvelkomnu hugsanirnar skilgreina ekki einstaklinginn og segja ekkert um það hvernig foreldri hann er. Þær eru síendurtekin fölsk skilaboð frá sérstöku viðvörunarkerfi heilans sem verður ofvirkt. ● Allir foreldrar geta upplifað óvelkomnar hugsanir, en hjá þeim sem eru með perinatal OCD eru þær tíðari, ákafari og hafa veruleg áhrif á líðan og lífsgæði. ● Til eru árangursríkar meðferðir og batahorfur eru góðar. Ef þú ert foreldri eða forráðamáður sem upplifir ógnvekjandi hugsanir um að eitthvað hræðilegt geti komið fyrir barnið þitt aftur og aftur, eða stöðugan ótta við að þú gætir skaðað barnið þitt óvart, þá ertu ekki einn eða ein. Þú ert ekki slæmt foreldri. Þú ert ekki hættuleg manneskja. Og þú þarft ekki að skammast þín. Þú átt skilið að líða betur og njóta þess að vera með barninu þínu. Ég fagna nýlegum samtökum á Íslandi, OCD félagið veitir fræðslu og stuðning fyrir þá sem vilja kynna sér þetta mikilvæga málefni nánar. Heimasíða félagsing er www.ocdfelagid.is Höfundur er stolt 4 barna móðir á batavegi frá perinatal OCD. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun