Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. júlí 2026 12:18 Ómar Örn Bjarnþórsson, hæstaréttarlögmaður, er réttargæslumaður mannsins. vísir/getty Lögmaður manns sem missti aleigu sína til óprúttinna aðila á rúmlega ári segir lögregluna hafa brugðist manninum. Hann lýsir seinagangi og viðbragðsleysi í upphafi rannsóknar málsins og telur að lögreglan beri mögulega bótaábyrgð.
Fréttastofa fjallaði um helgina um mál manns á áttræðisaldri sem hafði nýlega misst aleiguna til fjárkúgara. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru það að minnsta kosti þrír sem kúguðu fjárhæðir frá manninum sem nema samtals 108 milljónum króna yfir um fjórtán mánaða tímabil eða frá því í apríl á síðasta ári. Þremenningarnir hafi beitt hótunum um ofbeldi og villt á sér heimildir með fölskum aðgöngum á netinu en þann 17. júní gengu hótanir það langt að sérsveit lögreglu var kölluð til á heimili mannsins þar sem honum var hótað með eggvopni. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengjast sakborningarnir þrír brotaþola ekki með beinum hætti. Rannsókn lögreglu sé nokkuð umfangsmikil. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu voru þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Hafi ítrekað ekki fengið að veita skýrslu Réttargæslumaður mannsins, Ómar Örn Bjarnþórsson, segir lögregluna hafa brugðist í upphafi málsins. Vinna lögreglunnar hafi einkennst af skeytingarleysi þegar skjólstæðingur hans leitaði aðstoðar. „Þau voru ekki góð, vægast sagt, ekki til að byrja með, hann byrjaði á því að leita sjálfur á að minnsta kosti tvær lögreglustöðvar og senda tölvupóstserindi þar sem að hann reyndi að kæra þessa háttsemi en fékk lítil viðbrögð og engin svör.“ Þá hafi skjólstæðingurinn leitað til Ómars en þrátt fyrir hjálp hans fékk hann ekki að veita skýrslu. „Okkur var tjáð að hann þyrfti að senda enn eitt erindið með ákveðnum hætti. Þetta þyrfti að vera þannig úr garði gert að uppfylla einhver formskilyrði sem að ég hef aldrei heyrt um. Það endaði með því að ég sendi formlegt erindi á yfirmenn hjá lögreglunni og eftir það var þessu nú öðruvísi tekið og hann fékk loksins að gefa skýrslu og lögreglan tók þetta föstum tökum, en það tók því miður sinn tíma.“ Lögreglan baki sér mögulega skaðabótaskyldu Að hans sögn hefur lögreglan tekið vel á málinu síðan og það komið í góðan farveg. Seinagangurinn gæti þó haft afleiðingar í för með sér. „Ef það er þannig að gerendur í þessu máli hafi með einhverjum hætti getað komið undan fjármunum á þeim tíma sem þarna leið, þ.e.a.s. frá því að hann reyndi að kæra þetta til lögreglu og þar til lögreglan tók þetta formlega til rannsóknar, þá getur lögreglan borið skaðabótaábyrgð gagnvart honum.“ Hvað heldurðu að hafi valdið því að lögreglan tók þessu ekki alvarlega í fyrstu? Er það sumartíminn eða ástand skjólstæðings þíns eða jafnvel aldur? „Ég átta mig ekki á því. Sumarfrí á aldrei að vera einhver afsökun fyrir því að geta ekki tekið við málefnum fólks sem leitar til lögreglu. Ég vona að það sé ekki skýringin. Þannig að ég hugsa að lögreglan verði bara að svara fyrir það hvernig á því stóð í upphafi að honum var illa tekið hjá lögreglu. En að sama skapi, þó að þetta hafi gengið illa í þennan langa tíma, þá er hann sáttur við það hvernig þetta hefur gengið fyrir sig eftir að tekið var á móti honum og kæran skráð.“
Lögreglumál Eldri borgarar Efnahagsbrot Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Sjá meira