„Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2026 13:02 Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra. Vísir/Einar Atvinnuvegaráðherra segir að ekki hafi verið skoðað að stöðva eða setja hömlur á uppbyggingu sjókvíaeldis í Seyðisfirði. Ráðherra fær fulltrúa náttúruverndarsamtaka á fund til sín á morgun.
Áformum um uppbyggingu sjókvíaeldis í Seyðisfirði hefur verið mótmælt undanfarna daga og um helgina kom fjöldi fólks saman til mótmæla bæði á Seyðisfirði og í Reykjavík. Um er að ræða mikið hitamál fyrir austan en í gær fékk umhverfisráðherra afhentar um 13 þúsund undirskriftir þar sem skorað er á stjórnvöld að vernda Seyðisfjörð. Þá hefur verið bent á annmarka varðandi leyfisveitingar í tengslum við uppbygginguna og starfsmaður MAST meðal annars verið sakaður um að standa beggja megin borðsins. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun málið eiga sér langan aðdraganda og það einfaldi það ekki að fjöldi ráðuneyta komi að því. Fiskeldi sé í heildina mjög umdeilt, hluti íbúa sé fylgjandi uppbyggingu og málið ekki klippt og skorið. „Það eru leyfisveitingar sem hafa verið hjá stofnunum undir mínu ráðuneyti og þar hafa hlutirnir svona gengið vel fyrir sig en þetta er auðvitað hluti af þessu ferli líka, fólk getur kært. Það koma úrskurðir og ef það finnast einhverjir annmarkar þá er málið skoðað,“ sagði Hanna Katrín að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Kemur til greina að grípa inn í með afgerandi hætti, stöðva eða setja einhverjar hömlur á þetta verkefni? „Allar aðgerðir stjórnvalda til að grípa inn í ferli sem er samkvæmt núgildandi lögum og í fullu samræmi við lög og reglur myndu hafa afleiðingar í för með sér þannig að það hefur ekki verið skoðað.“ „Það er ekkert að gerast á þessu ári eða næsta“ Fulltrúar þeirra sem skiluðu inn undirskriftunum þrettán þúsund til umhverfisráðherra í gær koma á fund Hönnu Katrínar á morgun. „Þó svo að Matvælastofnun hafi gefið út rekstrarleyfið núna í síðasta mánuði og Umhverfis- og orkustofnun hjá umhverfisráðherra gefið út starfsleyfi þá eru ennþá fjölmörg skref eftir. Það er ekkert að gerast á þessu ári eða því næsta,“ segir Hanna Katrín. „Þannig að málið er í ferli og ef það eru einhverjar ábendingar um hverju breyta mætti í því ferli sem eftir er þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum,“ sagði Hanna Katrín að lokum.
Fiskeldi Múlaþing Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Matvælastofnun Umhverfismál Sjókvíaeldi Tengdar fréttir Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta „Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika. 12. október 2026 13:52 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira
Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta „Þegar 13 þúsund manns skrifa undir svona áskorun þá verða stjórnvöld auðvitað að hlusta.“ Þetta sagði umhverfisráðherra eftir fund með andstæðingum sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Þeir segjast vona að það verði forgangsmál stjórnvalda að koma í veg fyrir að sjókvíaeldið verði að veruleika. 12. október 2026 13:52