Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar 15. júlí 2026 09:00 Mamma mín er harðdugleg kona. Ekki er ýkja langt síðan mamma trítlaði upp um mela og móa þar til forlögin kipptu undan henni fótunum. Í byrjun desember fyrir rúmu hálfu ári fór hún að finna fyrir miklum verkjum í neðra baki sem leiddu langt niður í fót. Verkirnir fóru hratt versnandi og nú fyrr í sumar voru þrautirnar orðnar einfaldlega óbærilegar. Öll hennar tilvera snerist um að reyna að gera líðanina ögn bærilegri með réttum hreyfingum, matarræði og lyfjakokteilinum sem hún neyðist til að innbyrða með tilheyrandi aukaverkunum og áhrifum á önnur kerfi líkamans. Þessi staða sem er raunveruleiki fjölda fólks á Íslandi, meira af því síðar. Það er til lausn Mamma hefur alla tíð staðið sína plikt, gefið af sér til samfélagsins og borgað sína skatta. Hún á að baki langa starfstíð sem grunnskólakennari og hefur sinnt eigin heilsu vel. Við Íslendingar erum rík þjóð og höfum lengst af getað treyst á öflugt heilbrigðiskerfi sem grípur okkur þegar heilsan bregst eða neyðin skellur á. Samkvæmt okkar reynslu er það einfaldlega ekki svo lengur. Til allrar hamingju er hægt að ráða bót á ástandinu með aðgerð og allt er til staðar – aðstaða, vel menntað heilbrigðisstarfsfólk sem á tíma í vinnutöflunni sinni til þess að bregðast við og lina þrautir sem þessar. Eeeeen „Computer says NO“. Og hvar stendur hnífurinn í kúnni? Talan 100 Aðgerðir af þessu tagi hafa verið framkvæmdar af tveimur aðilum, annars vegar Landspítalanum, sem hefur alls ekki náð að sinna þeim fjölda fólks sem þarf nauðsynlega á aðgerð að halda, og hins vegar einkastofum. En þrátt fyrir að einkaaðilar séu í stakk búnir til að lina þjáningar þessa hóps þá gera Sjúkratryggingar Íslands einungis ráð fyrir 100 aðgerðum í þessum flokki árið 2026. Kvótinn er löngu uppurinn, það gerðist í mars. Og haldið ykkur nú fast, þörfin fyrir aðgerðir af þessu tagi er að lágmarki þreföld þessi tala að mati læknis sem sinnir sjúklingum með sambærilegan vanda. Um 200 manns úti í kuldanum og samfélaginu blæðir Það er því stór hópur fólks í okkar litla landi sem líður þrautir vegna sambærilegs vanda og tilvera þessa fólks hverfist um það að Sjúkratryggingar Íslands og heilbrigðisyfirvöld lagi „Excel-skjalið“. Með þessu áframhaldi mun þessi hópur fara stækkandi og biðlistar lengjast. Ekki nóg með það, heldur er í mörgum tilfellum hætta á varanlegum heilsuskaða sé ekki gripið inn í nógu snemma. Á sama tíma lekur fjármagnið út um glufur velferðarkerfisins þar sem samfélagið missir fólk af vinnumarkaðnum, fólk sem tapar lífsgæðum sínum og heilsu, sem veldur álagi á aðra pósta heilbrigðiskerfisins og í mörgum tilfellum örorku og öðrum kostnaði fyrir samfélagið. Er ekki bara betra að laga „Excelskjalið“ og veita þessum sjúklingum þá læknisfræðilegu meðferð sem væri sannarlega í boði ef skaðlegt og ósanngjarnt regluverk kæmi ekki í veg fyrir það? Jón og séra Jón Mamma er svo heppin að vera séra Jón. Hún átti nefnilega smá pening og gat borgað sig í aðgerð. Það var ekki lítil fjárhæð, skal ég segja ykkur, og alls ekki á færi hvers manns að reiða fram. En annað kom ekki til greina því við ástandið var engan veginn unað. Sérfræðilæknirinn gerði á henni aðgerð sem var dagsett um leið og ákvörðun var tekin – með óbragð í munni þó, þar sem hann veit að ósanngjarnt skipulag í „Excelskjali“ varð til þess að sjúklingur hans þurfti að reiða fram rúmlega 1,5 milljón til þess að laga ástand sem ekki var með nokkru móti unað við. Mér svíður það að við sem rík þjóð gerum ekki betur. Og ég finn virkilega til með móður minni og öðrum sem að ósekju og óþörfu líða miklar þrautir. Ég vona að þessi greinaskrif mín opni augu þeirra sem halda um stjórnartaumana. Ég veit fyrir víst að móðir mín er ekki ein í þessari stöðu. Á bak við ákvarðanir sem teknar eru er fólk sem vafalaust vill samfélaginu hið besta. Þess vegna ákváðum við að láta í okkur heyra í þeirri von að einhver vakni og vinni sem hraðast í því að kippa hlutunum í lag. Höfundur er aðstandandi sjúklings. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar