Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar 14. júlí 2026 11:31 Það eru ábyggilega margir sem telja að með ört vaxandi tækni gervigreindar muni ljósmyndarar hverfa fyrir fullt og allt, þar sem ekki sé lengur þörf á þjónustu þeirra. Þar held ég að gæti mikils misskilnings, þó svo að ég sé á því að einhverjir muni hverfa en aðrir breyta um verkfæri í myndgerð. Á þeim 40 árum sem liðin eru síðan ég fór að fikta við ljósmyndun fyrir alvöru hefur ansi margt breyst og tæknin tröllriðið ljósmyndun, rétt eins og ýmsum öðrum verksviðum. Á síðustu 15 árum sérstaklega hefur ýmis tækni, sem ekki hefur beinlínis verið kölluð gervigreind, laumað sér inn í myndvinnslu og að einhverju leyti tekið yfir verkefni sem þóttu krefjandi og flókin. Síminn þinn er búinn fullkominni gervigreind sem býr til myndir sem hann heldur að þú viljir sjá. Þar er einmitt vandinn, því ljósmyndarar, eða þeir sem hafa staðgóða þekkingu á ljósmyndun og sérstaklega ljósi, geta gert þetta mun betur. Síminn þinn fletur nefnilega út, endurlitar, lyftir skuggum, dekkir háljós og býr jafnvel til landslag án þess að þú fáir nokkuð um það sagt. Sama á við um gervigreind. Ef þú gefur henni skipun um að búa til faglegt portrett af fimmtugum manni gerir hún það. Vandamálið er bara að þú stjórnar hvorki lýsingu né sjónarhorni eða nokkru öðru í myndinni. Útkoman verður því miðjumoð sem gervigreindin heldur að þú viljir, byggt á því sem hún getur hnoðað saman úr ýmsum áttum. Stefnufestan í útkomunni er engin og ef þú gefur aftur sömu skipun færðu allt öðruvísi mynd og útkomu. Hér koma ljósmyndarar inn. Ljósmyndarar sem hafa stúderað ljós og skugga og eru vel að sér í tækninni, hvað varðar mismunandi linsur og áhrif þeirra á myndina, að ég tali nú ekki um ljós, uppstillingu þeirra og notkun ljósdreifara, munu hugsanlega lifa af, þó svo að aðferðir þeirra við að búa til myndir geti breyst. Það er ekkert víst að „ljósmyndari“ framtíðarinnar noti endilega myndavél og spurning hvort ljósmyndari verði rétta orðið eða hvort myndskapari, sem er skelfilegt orð, sé ekki nær lagi. Ljósmyndarinn mun skapa myndina með hjálp gervigreindar en nota til þess alla þá þekkingu sem hann hefur viðað að sér til að gera myndina þannig úr garði að hún standi framar því miðjumoði sem annars er í boði. Það er ansi margt sem ljósmyndari gerir og getur sem nútímatækni getur ekki apað eftir. Það eitt að ná góðum samskiptum við módel getur skapað augnablik sem ekkert gervigreindarforrit getur leikið eftir. Því held ég að dagar portrettljósmyndunar séu ekki liðnir, heldur muni hún styrkjast. Dagar dótaljósmyndarans, eða vöruljósmyndarans, eru hins vegar sennilega að mestu liðnir. Þeir ljósmyndarar sem hafa einblínt á að mynda vörur eru þó einmitt þeir sem ættu að tileinka sér gervigreindina sem fyrst og nýta þar alla þá þekkingu sem þeir hafa, allt frá því að byggja upp sett yfir í að lýsa hluti. Ljósmyndun hefur nefnilega aldrei snúist um myndavélar. Hún hefur alltaf snúist um ljós og skugga og þekkingu á þeim. Ef þú og þitt fyrirtæki hafið prófað að skera niður kostnað við góðan ljósmyndara og komist að því að nei, módelið sem þið bjugguð til í ChatGPT er ekki að hlýða og útkoman úr „ljósmyndunum“ er ekki viðunandi, þá er um að gera að ráða ljósmyndara til verksins. Ljósmyndara sem getur strax lesið hvað er að, hvað vantar, hvað þarf að bæta og veit hvernig á að bæta það með réttum skipunum. Ljósmyndarinn sem slíkur er því ekki dauður, né heldur greinin sjálf. Það verða enn verkefni sem ekki er hægt að leysa með gervigreind, að minnsta kosti ekki á næstu árum og hugsanlega aldrei. Það þýðir þó ekki að stór hluti ljósmyndastarfsins taki ekki breytingum og því fyrr sem ljósmyndarar, jafnt sem aðrir, átta sig á því, því betra fyrir alla. Stafræn myndataka olli töluvert miklum breytingum innan ljósmyndunar og á því hvernig unnið er. Gervigreindin á eftir að valda enn meiri breytingum en eftir stendur samt grunnurinn: þekking á ljósi. Í þeim tveimur myndum sem fylgja þessari grein er verulegur munur. Fyrir myndina til vinstri gaf ég einfalda skipun um portrett af fimmtugum manni. Fyrir myndina til hægri setti ég upp ljósmyndastúdíó. Ég gaf skipun um tegund myndavélar og linsu, fjölda ljósa, staðsetningu þeirra, tegund og stærð ljósdreifara, fjarlægð frá módeli, staðsetningu módelsins í myndinni og fleira og fleira. Eins og sjá má er útkoman töluvert önnur en á myndinni til vinstri. Þekking og það að sjá hefur alltaf verið grundvöllur ljósmyndunar, ekki myndavélin. Að vita hvað þarf. Að geta tekið ákvörðun, jafnvel án umhugsunar, af því að þekkingin er í vöðvaminninu. Að geta átt samskipti við viðfangsefnið og stjórnað því hvernig ná má fram bestu hliðum þess, hvort sem um er að ræða fólk eða fiðurfé. Að lesa ljós. Að kunna ljós og kunna að lesa manneskjur. Allt þetta hefur skipt miklu meira máli en myndavélin. Þekking á ljósi, fólki, tækjum og nú stafrænni tækni mun því til viðbótar hafa úrslitaáhrif á það hverjir geta starfað áfram í heimi myndgerðar, hvort sem unnið er með gervigreind eða gamaldags filmu. Höfundur er ljósmyndari með áhuga á gervigreind. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ljósmyndun Gervigreind Mest lesið Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Heimurinn bíður ekki eftir Íslandi Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Vextir á villigötum Agnar Tómas Möller skrifar Skoðun Rangfærslurnar standa enn og ekkert að þeim vikið Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hver lygi skapar skuld við sannleikann Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Herskylduhrakspár Haraldar skekkja raunhæfa sýn á varnarmál Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Sigmar Guðmundsson, Bandaríkin og öryggi Íslands Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Sjá meira
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun
Skoðun Leiðrétting vegna greinar um Kristrúnar í breskum hlaðvarpsþætti Guðmundur Edgarsson skrifar
Skoðun Hér eru sex veigamikil rök gegn inngöngu Íslands í Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Þegar gögn verða að upplýsingaóreiðu: Nokkrum staðleysum Halldórs Jörgens Olesen svarað Kristinn Sv. Helgason Skoðun