„Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 7. júlí 2026 13:36 Albert Jónsson bendir á að trúverðugleiki sé viðkvæmt fyrirbæri og veiking trúverðugleika geti haft afleiðingar í för með sér. samsett „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir.“ Þetta segir Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum og fyrrverandi sendiherra, um yfirstandandi leiðtogafund NATÓ sem fer fram í Ankara á Tyrklandi. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru mættar til Tyrklands til að sækja fundinn.
Albert var beðinn um að greina stöðuna og segja okkur hvers við gætum vænst af fundinum. Hann benti á að eitt sé víst að menn hlusti eftir því sem Donald Trump Bandaríkjaforseti mun hafa að segja. „Þeir NATO-fundir sem hann hefur tekið þátt í á fyrra kjörtímabilinu og í fyrra hafa verið dálítið skrautlegir á köflum vegna ummæla hans. Það er mikill ófyrirsjáanleiki þegar hann á í hlut. Stefna Trumps í garð NATO og ýmis óheppileg ummæli hans um bandalagið og bandalagsríki veikja auðvitað bandalagið og geta verið hvatning til Rússa um að halda áfram í Úkraínustríðinu þrátt fyrir ömurlegt gengi rússneska hersins í því. Svona ummæli veikja auðvitað trúverðugleika og trúverðugleiki er viðkvæmt fyrirbæri.“ Veiking trúverðugleika bandalagsins geti haft alvarlegar afleiðingar. „Það getur hvatt Rússa til að halda út lengur en ella væri þannig að það verður líka horft til þessara hluta. Hvað mun Bandaríkjaforseti segja á þessum fundi og hvernig verður framkoma hans?“ Fundað í skugga mannskæðra árása Á stuttum blaðamannafundi í gær lagði Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATÓ, línurnar fyrir fundinn og sagðist vilja sjá trúverðugar áætlanir aðildarþjóðanna um hvernig þær hygðust ná fimm prósenta útgjaldaviðmiði bandalagsins. „Þess er vænst að fókus fundarins verði mjög á fjármál bandalagsins enn eina ferðina og þá er fyrst og fremst horft til framlaga Evrópuríkjanna í NATO og Kanada auðvitað einnig til landvarna. Á heildina litið er það mál nú á réttri leið eftir reyndar áratuga vanrækslu af hálfu þessara aðila og það tekur auðvitað tíma að snúa þessu við en þessi ríki eru að taka við sér, þó reyndar 12 árum eftir hernám Krímar af hálfu Rússa.“ Sannfærður um að áframhaldandi stuðningur verði tryggður Talandi um Rússa. Fundurinn er haldinn í skugga mannskæðra árása Rússa á Kænugarð. Á aðeins einni viku hafa Rússar gert tvær umfangsmiklar eldflauga- og drónaárásir á Kænugarð sem samanlagt hafa kostað á sjötta tug mannslífa. Talsmaður úkraínska flughersins sagði að vegna skorts á loftvörnum hefðu Úkraínumenn ekki getað varist sem skyldi. Skilaboð Selenskís Úkraínuforseta til NATÓ voru að taka stórhuga ákvarðanir varðandi Rússa. „Evrópuríkin eru að standa sig vel og betur en þau hafa gert um langa hríð og þau hafa staðið sig mjög vel hvað varðar stuðning við Úkraínu. Þau hafa tekið við boltanum að þessu leyti frá Bandaríkjunum og standa næstum alfarið núna undir kostnaði við hergagnakaup og vopnasendingar til Úkraínu. Ekki gleyma því að þó að Úkraínumenn hafi staðið sig vel í þessu stríði og sérstaklega síðustu mánuði, þar sem þeir hafa bara stöðvað framsókn Rússa, eru þeir sem fyrr algjörlega háðir utanaðkomandi stuðningi og hann kemur núna eiginlega um 100% frá þessum Evrópuríkjum og Kanada og leiðtogafundurinn mun staðfesta þennan stuðning samkvæmt fréttum og tilkynna um framhald á honum.“
NATO Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bandaríkin Donald Trump Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands. 7. júlí 2026 10:07 NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann. 7. júlí 2026 09:45 Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Alvarlegur skortur á flugskeytum í bandarískt loftvarnarkerfi leiddi til þess að Úkraínumenn gátu ekki stöðvað neina þeirra rúmlega tuttugu skotflauga sem Rússar skutu á Kænugarð í nótt. Tæplega tuttugu manns létust í árásum næturinnar. 6. júlí 2026 13:42 Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Fleiri fréttir „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Sjá meira
Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Aukin framlög til varnarmála, jafnari skipting byrða og stuðningur við Úkraínu er talinn verða í forgrunni á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem hefst í Ankara í Tyrklandi í dag. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sækja fundinn fyrir hönd Íslands. 7. júlí 2026 10:07
NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann. 7. júlí 2026 09:45
Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Alvarlegur skortur á flugskeytum í bandarískt loftvarnarkerfi leiddi til þess að Úkraínumenn gátu ekki stöðvað neina þeirra rúmlega tuttugu skotflauga sem Rússar skutu á Kænugarð í nótt. Tæplega tuttugu manns létust í árásum næturinnar. 6. júlí 2026 13:42