Segir ekki tilefni til að endurskoða lyfjaakstursmál síðustu ára Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. júní 2026 23:24 Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður og Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari. Samsett Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til þess að yfirfara frekar lyfjaakstursmál sem þegar hefur verið lokið. Hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur síðastliðinna sex ára.
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tóku gildi árið 2020 í skoðanagrein á Vísi í dag. Skjólstæðingur hans var sýknaður af því að hafa brotið umferðarlög í Landsrétti eftir að hafa ekið bíl undir áhrifum oxýkódons sem hann hafði fengið uppáskrifuð frá lækni. Í skriflegu svari til fréttastofu segir Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari að ekki sé talið tilefni til þess að yfirfara frekar lyfjaakstursmál sem þegar hefur verið lokið með ákvörðum viðurlaga en að slíkum málum sé yfirleitt lokið með sektargerð. Hlutverk ríkissaksóknara sé að samæma og hafa eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá lögreglustjórum. Allar sektargerðir séu því yfirfarnar af ríkissaksóknara og geti hann fellt þær úr gildi telji hann þær þær ekki í samræmi við lög. Sakborningur hafi þann valkost að hafna sektarboði lögreglustjóra og geti eftir atvikum fengið dómstóla til að leysa endanlega úr ágreiningi mála. „Þannig er ljóst að dómstólar og ríkissaksóknari, í samræmi við eftirlitshlutverk embættisins, hafa nú þegar yfirfarið öll mál sem lokið hefur verið hjá lögreglustjóra af þessum toga og telur ríkissaksóknari umræddan dóm Landsréttar ekki gefa tilefni til frekari endurskoðunar á slíkum málum,“ segir í svari ríkissaksóknara. Ríkissaksóknari bendir á að innviðaráðuneytið hafi birt drög að reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja. Samkvæmt upplýsingum frá innviðaráðuneytinu stendur til að setja reglugerð um slík mál bráðlega. Reglugerðin sé komin í gegnum samráðsgátt en samráði lauk formlega 6. júní. Verið sé að vinna úr umsögnum áður en reglugerðin taki gildi.
Dómsmál Lögreglumál Dómstólar Lyf Umferðaröryggi Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Fleiri fréttir Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en klukkan slær tólf Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Sjá meira