„Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Smári Jökull Jónsson skrifar 28. júní 2026 14:31 Ólafur Jóhann er framkvæmdastjóri Herjólfs en hér má sjá Herjólf sigla til hafnar í Vestmannaeyjum. Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ekki hafa áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þó enn verði tafir á viðgerð Herjólfs. Þá gangi vel að koma fólki frá Eyjum eftir Orkumótið sem fram fór þar um helgina þrátt fyrir að fella hafi þurft niður ferðir með Baldri.
Á föstudag var tilkynnt að enn verði tafir á að viðgerð á öðrum mótor Herjólfs klárist. Í færslu á samfélagsmiðlum Herjólfs er sagt að viðgerð hafi tafist vegna seinkunar á afhendingu koparvírs en nú sé unnið af kappi á verkstæði í Hollandi. „Upphaflega var gert ráð fyrir að viðgerðir myndu taka sjö vikur á verkstæðum ytra en nú erum við búin að vera síðan 11. apríl að sigla á annarri skrúfunni. Til að byrja með gekk viðgerð vel en síðan urðu tafir á afhendingu koparvírs sem mér skilst að skýrist af aðstæðum í heiminum,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri Herjólfs og bætir við að vírinn hafi skilað sér síðastliðinn mánudag. Gert er ráð fyrir að viðgerð ljúki um miðjan júlí og í kjölfarið verður Herjólfur tekinn úr áætlun og mótorinn settur upp. Sú vinna gæti tekið allt að fjóra sólarhringa en skipið hefur siglt á einni vél af tveimur eftir að bilun kom upp í apríl. „Það er ekki komin nákvæm dagsetning hvenær verklok verða en það er miðað við að þau verði um miðjan júlí. Þá tekur einhverja daga að flytja mótorinn hingað til lands og um leið þá fer Herjólfur til Þorlákshafnar þar sem mótorinn verður settur í. Það er talsverð aðgerð því það þarf að rjúfa gat á gólfið á bíladekkinu og láta mótorinn síga þar niður.“ Hefur ekki áhyggjur af samgöngum fyrir Þjóðhátíð Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er einn af stærstu viðburðum hvers árs í Eyjum og stærsta útihátíðin um verslunarmannahelgina. Ólafur segir að ekki séu uppi áhyggjur um að viðgerð tefjist enn frekar og hafi áhrif á samgöngur fyrir Þjóðhátíð. „Við höfum það ekki og erum bara bjartsýn á að þetta geti gengið svona. Svo má líka segja að við höfum getað sinnt flutningsþörfinni á meðan Landeyjahöfn er opin og Herjólfur siglt sjö ferðir á dag og Baldur þrjár til fimm ferðir á dag,“ en Breiðafjarðarferjan Baldur hefur aðstoðað með siglingar á milli lands og Eyja undanfarið. „Flutningsgetan er eins og ef Herjólfur væri bara einn í átta ferða áætlun og jafnvel heldur meiri með stöðuni núna. Í rauninni höfum við ekki áhyggjur en við ætlum samt rétt að vona að þessi tímalína standist, því þetta er orðinn allt of langur tími síðan mótorinn bilaði.“ Allir komast til síns heima í dag Orkumóti ÍBV lauk í Eyjum í gær og gestir verið á leið til síns heima bæði í gær og í dag. Í gærkvöldi var hins vegar greint frá því að fella þyrfti niður þrjár ferðir Baldurs í dag, tvær í morgun og eina í kvöld, af óviðráðanlegum orsökum. „Það hefur auðvitað áhrif en flutningur á þessum álagsdegi hefur gengið mjög vel og við verið að taka inn af biðlistum þannig að við reiknum með að allir komist til síns heima í dag,“ segir Ólafur Jóhann. Óánægja er á meðal sveitarfélaga á Vesturlandi og Vestfjörðum vegna brotthvarfs Baldurs til Eyja en öllu jöfnu siglir Baldur á milli Stykkishólms á Snæfellsnesi og Brjánslækjar á sunnanverðum Vestfjörðum með viðkomu í Flatey. Ólafur Jóhann segist skilja að þegar þjónusta skerðist fyrir vestan verði fólk ósátt. „Við viljum ekki vera í þeirri aðstöðu að koma öðrum í vandræði en engu að síður þá er þetta fyrirkomulag, að Baldur er varaskip fyrir Herjólf og við þurfum svo sannarlega á honum að halda. Bæði vegna þess að það þarf minna til að Herjólfur komist ekki í Landeyjahöfn auk þess sem flutningsgetan er takmörkuð.“ Vill skila Baldri sem fyrst Sumaráætlun Herjólfs gerir ráð fyrir átta ferðum á milli Eyja og Landeyjahafnar en nú eru sigldar sjö ferðir. „Það hefur verið gríðarleg hjálp að hafa Baldur með okkur. En við vinnum að því öllum árum og höfum lagt á það þunga pressu að þessi viðgerð og öll sú vinna sem henni tengist gerist eins hratt og mögulegt er. Einmitt til þess að skapa ekki vandræði, hvorki hér né fyrir vestan.“ „Þannig að við erum mjög þakklát fyrir að Baldur sé með okkur en við viljum endilega að hann komist heim í Breiðafjörð sem allra, allra fyrst,“ segir Ólafur Jóhann að lokum.
Herjólfur Vestmannaeyjar Samgöngumál Vesturbyggð Ferjan Baldur Þjóðhátíð í Eyjum Landeyjahöfn Rangárþing eystra Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Innlent „Konungur norðursins“ sjöundi forsætisráðherrann á áratug Erlent Usha og JD Vance eignast sitt fjórða barn Erlent Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Fleiri fréttir Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Maðurinn sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Sjá meira