Rangárþing eystra „
1 2 3 4 5 6 … 14 ›
„Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Þrjú ungmenni í skólaferð á vegum Menntaskólans við Hamrahlíð voru afgreidd um áfengi í söluskála N1 á Hvolsvelli í gær. Framkvæmdastjóri félagsins segist harma málið. Það stafi af fljótfærni starfsmanna sem hafi ekki beðið um skilríki. Innlent 25.9.2025 15:09
Hefur farið 100 sinnu á fjall á Fljótshlíðarafrétti Rúnar Ólafsson, sauðfjárbóndi á Eystri-Torfastöðum í Fljótshlíð er nú í sínum hundruðustu leitum á fjalli á Fljótshlíðarafrétti og var því fagnað um helgina með fjallmönnum á afréttinum. Rúnar segir bjart yfir sauðfjárræktinni. Innlent 21.9.2025 13:06
Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Það verður mikið um að vera í íþróttahúsinu á Hellu á morgun, sunnudaginn 21. september því þá fer fram svonefndur „Lífsgæðadagur í Rangárþingi“ þar sem íbúar í Rangárvallasýslu fá kynningu á öllu því fjölbreytta tómstunda- og íþróttastarfi, sem verður í boði í vetur. Lífið 20.9.2025 14:03
3,7 stiga skjálfti í Árnesi Snarpur skjálfti átti sér stað við Ketilsstaðaholt í Holtum í Rangárvallasýslu klukkan 08:39 í morgun. Hann var 3,7 stig að stærð. Innlent 11.9.2025 08:47
BMX brós strákarnir hafa skemmt á flestum bæjarhátíðum sumarsins Strákarnir í BMX brós kalla ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að sýna ótrúlegar listir á hjólum, en þeir fara til dæmis heljarstökk afturábak á hjólunum sínum eins og ekkert sé. Þeir eru líka duglegir að fá áhorfendur til að taka þátt í ýmsum áhættuatriðum með sér. Lífið 31.8.2025 20:04
Kjötsúpu í boði á Hvolsvelli fyrir alla sem vilja Kjötsúpa mun flæða um Hvolsvöll og næsta nágrenni um helgina því Kjötsúpuhátíð stendur yfir á svæðinu þar sem allir geta fengið eins mikið af ókeypis kjötsúpa eins og þeir geta í sig látið. Fjölmörg skemmtiatriði verða einnig í boði og risa grillveisla í dag svo eitthvað sé nefnt. Lífið 30.8.2025 12:12
Gunnfaxi ekki á safnið nema annar þristur fáist á sandinn Samgöngusafnið á Skógum fær ekki þristinn Gunnfaxa til varðveislu nema það takist að útvega landeigendum Sólheimasands aðra DC 3-flugvél til að sýna ferðamönnum á sandinum. Þetta er meginefni svars sem stjórn Loðmundar, landeigendafélags Ytri-Sólheima, hefur sent Vinum Gunnfaxa, áhugahópi um verndun gamallar Douglas Dakota-flugvélar Flugfélags Íslands. Innlent 28.8.2025 20:40
Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Í morgun voru björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin á Hellu kallaðar út á mesta forgangi vegna tilkynningar um bíl með fimm manns um borð sem var fastur í Markarfljóti rétt við Gilsá á Emstruleið. Innlent 27.8.2025 17:26
„Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Björgunarsveitin Þorbjörn hefur staðið í ströngu frá því snemma í morgun við að aðstoða ferðamenn að Fjallabaki og þar um kring. Gríðarlegir vatnavextir eru á svæðinu og aðstæður leiðinlegar. Innlent 26.8.2025 16:19
Miklir vatnavextir og Fjallabak illfært flestum bílum Mikið hefur rignt að Fjallabaki síðastliðinn sólarhring og ár og vötn bólgnað í miklum vatnavöxtum í kjölfar rigningarinnar. Innlent 26.8.2025 09:41
Það logaði glatt í Bergþórshvoli á Njáluhátíð í Rangárþingi Það var mikið sjónarspil á Gaddstaðaflötum á Hellu í gærkvöldi þegar kveikt var í Bergþórshvoli, eftirlíkingu af húsi Njáls Þorgeirssonar, bónda, höfðingja og lögspekings úr Brennu – Njálssögu. Þúsundir gesta fylgdust með brennunni úr brekkunni, en með henni lauk fjögurra daga Njáluhátíð í Rangárþingi. Innlent 24.8.2025 20:05
Fjögurra daga Njáluhátíð sett á Hvolsvelli í kvöld Það er mikið líf og fjöri í íþróttahúsinu á Hvolsvelli í kvöld en þar fer nú fram setning fjögurra daga Njáluhátíðar í Rangárþingi með skemmti-, lista og fræðikvöldi. Sérsaminn leikþáttur verður meðal annars sýndur og Hundur í óskilum ætlar að taka nokkur Njálulög svo eitthvað sé nefnt. Við vorum í beinni útsendingu frá Hvolsvelli í fréttatíma Sýnar. Lífið 21.8.2025 21:04
Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Þyrslusveit Landhelgisgæslunnar sinnti í morgun útkalli vegna veiks skipverja á rússnesku fiskiskipi. Tvær þyrlur voru notaðar í útkallinu þar sem skipið var langt úti á hafi. Önnur þyrlan var svo notuð til að sækja slasaða göngukonu strax í kjölfarið. Innlent 19.8.2025 12:19
Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð Grjót hrundi úr Holtsnúpi undir Eyjafjöllum í morgun og stór hnullungur fór yfir þjóðveginn. Þetta var á svipuðum stað og banaslys varð vegna grjóthruns í mars á þessu ári. Innlent 17.8.2025 17:36
Sóttu mann sem féll niður bratta Björgunarsveitir voru boðaðar út á mesta forgangi á tólfta tímanum í dag vegna ferðamanns sem hafði fallið niður nokkurn bratta á leið að Merkurkeri við Þórsmerkurleið. Innlent 16.8.2025 14:47
Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Hið minnsta einn er slasaður eftir árekstur tveggja bíla á Suðurlandsvegi. Bílarnir urðu fyrir miklu tjóni að sögn lögreglu, sem segir slys algeng á gatnamótunum. Innlent 13.8.2025 16:54
Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli varar ferðalanga við svelgi skammt rétt við gönguleiðina yfir Fimmvörðuháls. Nánar tiltekið er svelgurinn í gilinu sunnan við Fimmvörðuskála. Innlent 10.8.2025 21:50
Alelda bíll á Emstruleið Rallýbíll af Land Rover-tegund er gjöreyðilagður eftir að eldur kviknaði í honum á Emstruleið nærri Þórsmörk í morgun. Innlent 9.8.2025 11:47
Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út auk um tuttugu björgunarsveitarmanna um tvöleytið í dag eftir að tilkynnt var um veikan göngumann á Fimmvörðuhálsi. Innlent 6.8.2025 14:39
Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Konu á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í gær var sagt að hún væri bær til að aka þegar hún blés í áfengismæli lögreglu við Landeyjahöfn en var handtekin vegna gruns um ölvunarakstur eftir að hafa blásið á næsta eftirlitspósti, nokkrum mínútum síðar. Hún reiknar með hárri sekt og að missa ökuréttindin. Aðalvarðstjóri segir ökumenn alfarið ábyrga í tilfellum sem þessu og að áfengismælar gefi einungis vísbendingu um vínandamagn. Innlent 5.8.2025 18:46
Allir blása í Landeyjahöfn Lögreglan á Suðurlandi fylgist með umferð í Landeyjahöfn en Þjóðhátíðargestir flykkjast nú í land. Enginn bílstjóri kemst af svæðinu án þess að vera athugaður af lögreglu. Innlent 4.8.2025 10:57
„Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Björgunarsveitir hjálpuðu þremur ferðamönnum á Fimmvörðuhálsi í nótt. Fólkið var orðið blautt, skalf af kulda og var varla gangfært. Einnig þurfti að aðstoða ferðamenn sem festu bíl í Stóru-Laxá í nótt og hafa björgunarsveitir sinnt tveimur útköllum á Snæfellsnesi í dag. Innlent 2.8.2025 14:58
Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Stjórn Skógasafns hefur lýst sig tilbúna að taka við Flugfélagsþristinum Gunnfaxa í sýningarhæfu ástandi til varðveislu á Samgöngusafninu á Skógum. Áhugafélagið „Vinir Gunnfaxa“ bíður núna svara frá eigendum flugvélarinnar, landeigendum Sólheimasands, um hvort þeir séu tilbúnir að láta hana af hendi til safnsins. Innlent 26.7.2025 07:27
Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Njálsbrenna verður sviðsett og Bergþórshvoll brenndur með hópreið 99 brennumanna á fjögurra daga Njáluhátíð sem nýstofnað Njálufélag undir forystu Guðna Ágústssonar, fyrrverandi ráðherra, efnir til í Rangárþingi í næsta mánuði. Guðni segir þetta verða tignarlegustu sjón allra tíma. Innlent 22.7.2025 22:23
Sækja mann sem datt af hestbaki Þyrla landhelgisgæslunnar flýgur nú að Landmannalaugum þar sem verið er að sækja mann sem datt af hestbaki. Innlent 22.7.2025 18:19
Laugavegurinn að „deyja úr velgengni“ Ísland er leiðandi á sviði ferðamennsku á alþjóðasviðinu og hefur á undanförnum árum laðað að sér gífurlegan fjölda ferðamanna. Laugavegur, ein vinsælasta gönguleið hálendisins, er farin að líða fyrir vinsældirnar vegna margmennis og á í hættu á að „deyja úr velgengni.“ Innlent 22.7.2025 08:49
Hjólreiðamaður féll í Reykjadölum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á ellefta tímanum vegna hjólreiðamanns sem hafði slasast á sunnanverðu hálendinu. Innlent 19.7.2025 11:04
Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Heilbrigðisnefnd Suðurlands áformar að krefjast lokunar rekstrar Seljalandsfoss ehf. innan mánaðar, þar sem ekki liggur fyrir heimild fyrir salernisgámum á svæðinu samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Innlent 11.7.2025 12:22
Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá syðri og Skálm sem hófst í dag heldur áfram. Vegfarendum er ráðlagt dvelja ekki að óþörfu við árfarvegi, þar sem gasmengun gæti verið á svæðinu. Innlent 9.7.2025 23:52
Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Liturinn á hestinum Prins Greifa í Vestur Landeyjum vekur alltaf mikla athygli en hann er Brún ýruskjóttur varblesóttur og eini hesturinn hér á landi með þannig litasamsetningu. Innlent 6.7.2025 20:07