Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. júlí 2026 20:00 Verkið felur í sér að skorið sé inn í hlíðina á um 360 metra kafla og efni notað í lagfæringu vegfláa á um kílómetra löngum kafla. Vísir/Vilhelm Unnið er að hrunavörnum við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum, meðfram Hringveginum. Staðurinn hefur verð til skoðunar um nokkurt skeið en þar varð banaslys í mars í fyrra.
Í mars á þessu ári bauð Vegagerðin út hrunavarnir á svæðinu. Á vef Vegagerðarinnar segir að verkinu skuli að fullu lokið eigi síðar en 15. ágúst 2026. Verkið feli í sér að skorið sé inn í hlíðina á um 360 metra kafla og efni notað í lagfæringu vegfláa á um kílómetra löngum kafla. Hrunvarnir úr svokölluðum „gabion grindum“ verði reistar á um 300 metra kafla og þá eigi að setja púða úr styrktarlagsefni undir grindurnar. Fjölmargir þekktir grjóthrunsstaðir séu við þjóðvegi landsins og varnarmannvirki hafi verið sett upp við nokkra þeirra en þörf sé fyrir fleiri slík mannvirki.Vísir/Vilhelm Kona lést samstundis þann 31. mars í fyrra þegar gríðarstórt grjót losnaði úr Steinafjalli og féll ofan á þak bíls sem hún ók. Rannsóknarnefnd samgönguslysa birti snemma þessa árs skýrslu um slysið þar sem kallað er eftir viðeigandi úrbætum til að bæta umferðaröryggi á svæðinu. Vegagerðin hefur einnig haft til skoðunar að færa veginn sem væri framtíðarlausn en töluvert kostnaðarmeiri. Við Holtsnúp er þekktur grjóthrunsstaður en frá banaslysinu í mars á síðasta ári hefur tvisvar hrunið grjót úr hlíðinni, síðast í desember með þeim afleiðingum að hætta skapaðist og ökumaður ók á grjótið. 86 þekktir grjóthrunsstaðir Fjölmargir þekktir grjóthrunsstaðir séu við þjóðvegi landsins og varnarmannvirki hafi verið sett upp við nokkra þeirra en þörf sé fyrir fleiri slík mannvirki. Þekktir grjóthrunsstaðir við vegakerfi landsins eru nú 86 talsins samkvæmt gögnum frá Vegagerðinni og eru grjótvarnir við fimm verstu staðina. Tæplega hundrað tilvik hafa verið skráð síðustu 25 árin þar sem bílar hafa ekið á grjót. Þar af voru sex með minni háttar meiðsl en önnur án meiðsla. „Skráð tilvik um grjót á vegum hafa verið á bilinu 30 til 60 ár ári og má telja mikla mildi að ekki hafi fleiri slasast en raun ber vitni,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Umferðaröryggi Rangárþing eystra Slysavarnir Samgöngumál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira