Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Sigurgeir Þorkelsson skrifar 25. júní 2026 09:57 Mohamed Sayidali Ahmed mætti fyrir dóm í morgun. Vísir/Vilhelm Við þingfestingu Höfðatorgsmálsins svokallaða neituðu tveir hinna ákærðu sök en hinn þriðji var ekki viðstaddur. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Samkvæmt ákæru reyndu þrír menn, þeir Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed, að svipta brotaþola lífi aðfararnótt þriðjudagsins 17. mars 2026 í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík. Kareem og Mohammed mættu báðir fyrir dóminn. Samkvæmt skipuðum verjanda Qossay er hann staddur í Jórdaníu og er samband við hann stopult. Kareem og Mohammed neita báðir sök og hafna bótakröfu brotaþola. Settur verjandi Qossay Ali Yahya Alsadi sagði hann staddan í Jórdaníu og að samband við hann væri stopult. Vísir/Vilhelm Fólskuleg árás Í kæru kemur fram að Kareem hafi keyrt bifreið á mikilli ferð á brotaþola þannig að hann hafnaði á vélarhlíf bifreiðarinnar og féll í jörðina þar sem Qossay barði hann ítrekað í líkamann með óþekktu áhaldi og í kjölfarið stakk Mohamed brotaþola í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni. Var brotaþoli þannig settur í lífshættulegt ástand. Hlaut hann sár á vinstri rasskinn, lungnamar á báðum lungum, brot á vinstra upphandleggsbeini, mar, bólgur og sár á vinstri ökkla og eymsli á vinstri handlegg og kvið. Samkvæmt kæru var Kareem M. M. Abufarhah undir stýri þegar bifreiðinni var ekið á brotaþola. Vísir/Vilhelm Deilt um gögn máls Fyrir dómi deildu verjendur hinna ákærðu og saksóknari um hvort hinum ákærðu bæri að fá afrit af rafrænum gögnum máls. Var þar meðal annars vísað til sviðsetningar lögreglu á atburðinum og gagna úr öryggismyndavélum. Verjendur mannanna tveggja sem komu fyrir dóminn fóru fram á frest til að fara yfir greinargerð máls áður en tekin yrði afstaða til hennar. Saksóknari fer fram á að hinir ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Sækjandi og verjandi eins mannanna ræðast við að þinghaldi loknu. Vísir/Vilhelm Brotaþoli krefst miskabóta Þá gerir brotaþoli einkaréttarkröfu um að hinir ákærðu greiði honum miskabætur að fjárhæð kr. 10.000.000, með vöxtum frá tíma brotsins. Að auki skaðabætur að fjárhæð kr. 98.489, auk vaxta. Þá er þess krafist að ákærðu verði dæmdir óskipt til að greiða lögmannskostnað brotaþola. Málið verður næst tekið fyrir þann 8. júlí.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Lögreglumál Reykjavík Tengdar fréttir Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík aðfararnótt 17. mars síðastliðins. Sá sem fyrir árásinni varð fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. 22. júní 2026 14:40 Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun. 25. mars 2026 12:15 Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu. 18. mars 2026 21:01 Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira
Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík aðfararnótt 17. mars síðastliðins. Sá sem fyrir árásinni varð fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur. 22. júní 2026 14:40
Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun. 25. mars 2026 12:15
Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi er rannsökuð sem tilraun til manndráps en þar var eggvopni og kylfum beitt ásamt því að ekið var á einn brotaþola. Samkvæmt heimildum fréttastofu var um uppgjör í undirheimunum að ræða en tuttugu til þrjátíu manns komu saman í bílastæðahúsinu. 18. mars 2026 21:01