Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. júní 2026 22:01 Anna Kristín Sigurðardóttir, forsöðumaður Vesturbæjarlaugar, segir að vænta megi þess að laugin verði lokuð í langan tíma næsta sumar. Enn heldur botninn í Vesturbæjarlaug áfram að flagna og er búið að loka lauginni fyrir nauðsynlegar viðhaldsframkvæmdir. Forstöðukona segir ljóst að lauginni verði aftur lokað næsta sumar í enn lengri tíma.
Vesturbæjarlaug hefur verið lokað enn eina ferðina til að bregðast við flögnun á botni laugarinnar en eins og frægt er var lauginni lokað ítrekað síðasta sumar vegna tíðra viðhaldsframkvæmda. Þeir sem ætluðu að gera ser góðan dag i bliðviðrinu og stinga sér til sunds í Vesturbæ neyddust til að leita á önnur mið. Umfangsmikil viðhaldsframkvæmd fór fram í lauginni síðasta sumar og var henni fyrst lokað 26. maí og opnuð aftur 19. júlí en þá drógust framkvæmdir á langinn. Þá fór laugin að flagna og var henni lokað aftur 18. ágúst en opnuð viku síðar. Í þriðja sinn var henni lokað í sólarhring 29. ágúst og stóð hún opin þangað til henni var lokað aftur 13. október fram til 28. október. Laugin verður lokuð í viku í þetta sinn. Forstöðumaður sundlaugarinnar bindur vonir við að atburðarásin endurtaki sig ekki. „Á síðasta ári var viðhaldslokun líka þar sem var ákveðið að fara rosalega vel í laugarkarið og því miður tókst það ekki betur en svo að hér erum við aftur ári síðar. Á einhverjum tímapunkti í vetur var orðin svona mikil flögnun í vatninu að börnin voru að synda og allt í einu var bara komið plast framan í þau.“ Ekki verður ráðist í þær framkvæmdir sem þarf til að koma í veg fyrir frekari flögnun heldur verður laugin blettuð. „Það liggur fyrir að næsta sumar verði aðallaugin tekin aftur almennilega í gegn. Þannig eftir því sem ég veit liggur fyrir ágætlega löng viðhaldslokun næsta sumar.“ Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg voru þau mistök gerð í fyrra að málningin fékk ekki nægilegan tíma til að þorna en þar spilaði kalt veður einnig inn í. „Ég held að það hafi verið vonbrigði fyrir alla. Það langaði [alla] að þetta myndi endast næstu sjö árin og við þyrftum ekki að loka nema eitthvað smotterí.“
Sund Reykjavík Sundlaugar og baðlón Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést í starfsmannaferð Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira