Konum sem beita heimilisofbeldi fjölgar Lovísa Arnardóttir skrifar 24. júní 2026 11:27 Lögreglan hefur á fyrstu þremur mánuðum ársins sinnt fjölda verkefna vegna heimilisofbeldis víða um land. Vísir/Vilhelm Ný gögn ríkislögreglustjóra fyrir fyrsta ársfjórðung 2026, janúar til mars, sýna að konur beittu ofbeldi í rúmlega fjórðungi heimilisofbeldismála, eða 27 prósent þeirra. Það er fjölgun frá síðustu árum. Konur eru þolendur í flestum tilvikum, eða í tæpum 70 prósentum tilfella sama til hvaða flokks er litið.
Í tilkynningu ríkislögreglustjóra kemur fram að hlutfall kvenna hafi hækkað jafnt og þétt undanfarin ár, úr 17 prósentum árið 2021 í 24 prósent árið 2025, og hafi ekki mælst hærra á tímabilinu. Þar segir einnig að helst megi rekja þessa hækkun til mála þar sem fólk tengist fjölskyldutengslum. Tilkynningum um ágreining milli skyldra og tengdra aðila fækkaði verulega milli ára samkvæmt tilkynningu. Karlar eru þó enn í miklum meirihluta árásaraðila, eða 73,5 prósent og konur 67,9 prósent þolenda árása. Meðalaldur gerenda er samkvæmt skýrslu 36 ár og þolenda um 34 ár. Í tilkynningu ríkislögreglustjóra kemur einnig fram að tilkynningum um ágreining milli skyldra eða tengdra aðila, þar sem ekki er grunur um brot, fækkaði úr 332 málum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 258 mál á sama tímabili 2026, eða um 22 prósent. Heimilisofbeldismál, þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárás, hótun eða eignaspjöll, eru mjög svipuð að fjölda og í fyrra, eða 327 tilvik samanborið við 322, samkvæmt tilkynningunni. Þar kemur einnig fram að samanlagt hafi 585 tilvik heimilisofbeldis og ágreinings verið skráð á tímabilinu en 654 á sama tíma í fyrra og skýrist sú fækkun nær alfarið af færri ágreiningsmálum. Fleiri makar sem beita ofbeldi en færri fyrrverandi Í skýrslu ríkislögreglustjóra kemur fram að þegar heimilisofbeldismálin eru greind eftir tegund kemur í ljós að ofbeldi af hendi maka jókst úr 119 tilvikum fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 í 135 tilvik sama tímabils 2026, eða um 13 prósent. Á móti fækkaði ofbeldi af hendi fyrrum maka úr 70 tilvikum í 61. Ofbeldi foreldris í garð barns var 52 tilvik samanborið við 47 fyrstu þrjá mánuði ársins 2025 og ofbeldi barns í garð foreldris 57 tilvik samanborið við 51 á sama tíma í fyrra. Karlmenn voru oftast gerendur þegar um var að ræða ofbeldi af hendi maka, núverandi eða fyrrverandi, eða í 78,2 prósent tilfella og konur þolendur í 74,4 prósent tilfella. Þá fækkaði tilvikum sem flokkast undir endurtekna eða alvarlega hótun gegn lífi og heilsu samkvæmt 218. gr. b hegningarlaga úr 43 í 31 á sama tímabili. Beiðnir um nálgunarbann og/eða brottvísun voru 35, eða jafnmargar og á sama tímabili í fyrra. Samkvæmt skýrslunni áttu um 73 prósent heimilisofbeldismála á tímabilinu sér stað á höfuðborgarsvæðinu og 27 prósent á landsbyggðinni. Þá voru 63 prósent ágreiningsmála á höfuðborgarsvæðinu og 37 prósent á landsbyggðinni.
Heimilisofbeldi Kynbundið ofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira