Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2026 14:40 Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs var aukinn eftir hópárásina í mars. Vísir/Vilhelm Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá menn fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík aðfararnótt 17. mars síðastliðins. Sá sem fyrir árásinni varð fer fram á 10 milljónir króna í miskabætur.
RÚV greindi fyrst frá málinu. Í fyrri fréttum af málinu kom fram að um uppgjör í undirheiminum hafi verið að ræða. Tuttugu til þrjátíu manns hafi þar komið saman og eggvopni og kylfum verið beitt auk þess sem ekið var á mann. Alls voru ellefu manns handteknir í tengslum við rannsókn á málinu. Í ákærunni kemur fram að einum þeirra sem ákærður er í málinu er gefið að sök að hafa ekið Land Rover-bíl á 26 ára karlmann á mikilli ferð. Öðrum er gefið að sök að hafa barið manninn ítrekað með óþekktu áhaldi og þá er þeim þriðja gefið að sök að hafa stungið manninn í vinstri rasskinn með óþekktu stunguvopni. Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu sagði í samtali við fréttastofu í vor að brotaþolar í árásinni hefðu verið þrír og hafi einn þeirra dvalið á gjörgæslu í nokkra daga. Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs var aukinn eftir hópárásina. Að neðan má sjá sjónvarpsfrétt af málinu frá í vor.
Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Reykjavík Lögreglumál Tengdar fréttir Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn þar sem hann lá í blóði sínu. Maðurinn er kominn úr lífshættu. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið. 26. mars 2026 18:44 Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Lögregla hefur lokið rannsókn á lífshættulegri árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Málið er komið á borð héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um að gefa út ákæru. 4. júní 2026 14:04 Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun. 25. mars 2026 12:15 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira
Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök lögreglu eru talin hafa skipt sköpum í Höfðatorgsmálinu svokallaða. Mannslíf var í húfi eftir að ekið var kröftuglega á karlmann og hann síðar stunginn þar sem hann lá í blóði sínu. Maðurinn er kominn úr lífshættu. Ellefu hafa verið handteknir í tengslum við málið. 26. mars 2026 18:44
Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Lögregla hefur lokið rannsókn á lífshættulegri árás í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars. Málið er komið á borð héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um að gefa út ákæru. 4. júní 2026 14:04
Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun. 25. mars 2026 12:15