Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Lovísa Arnardóttir skrifar 23. júní 2026 06:45 Maðurinn hafði samband við stúlkurnar í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Vísir/Getty Karlmaður hefur verið dæmdur til sextán mánaða fangelsisdóms, skilorðsbundið, fyrir að brjóta kynferðislega á átta stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára á um fjögurra mánaða tímabili árið 2022. Maðurinn er einnig dæmfur fyrir að hafa í fórum sínum mikið magn barnaníðsefnis.
Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að hann hafi sent á allar stúlkurnar kynferðisleg myndbönd af karlmanni á samfélagsmiðlinum Snapchat, til dæmis af karlmanni að fróa sér, og fengið þær til að senda af sér kynferðisleg myndbönd og myndir. Hann hafi einnig viðhaft kynferðislegt tal við þær. Maðurinn var einnig dæmdur fyrir að hafa í fórum sínum farsíma þar sem lögregla fann mikið magn barnaníðsefnis, 924 ljósmyndir og 193 myndbönd. Síminn var gerður upptækur. Sýni merki barnagirndar Þar kemur einnig fram að Kristinn Tómasson geð- og embættislæknir hafi verið dómkvaddur sem matsmaður vegna geðrannsóknar. Maðurinn sé í matsgerð metinn með alvarleg athyglisbrestseinkenni og einkenni á einhverfurófi. Hegðun hans sé lituð af Asperger-heilkenni og hvatvísi en hann viti mun á réttu og röngu. Umfang samskipta hans við ungar stúlkur bendi til barnagirndar en slíkt verði ekki staðfest í málinu. Maðurinn var því talinn sakhæfur og að refsing gæti borið árangur. Í dómi kemur fram að maðurinn játaði skýlaust brot sín og var litið til þess við ákvörðun refsingar og það metið til refsilækkunar en á móti til refsiþyngingar að hann braut á stúlkum á aldrinum tólf til fjórtán ára og hafi „látið sér í léttu rúmi liggja ungur aldur þeirra“. Ein tengd manninum fjölskylduböndum Refsing var ákveðin sextán mánuðir en vegna verulegs dráttar á málinu var ákveðið að fresta fullnustu refsingar og ákveðið að hún skuli falla niður að þremur árum liðnum haldi hann skilorði. Í dómi kemur einnig fram að fyrir liggi bótakröfur fyrir hönd þolenda en engin sérfræðigögn um afleiðingar. Háttsemi hans sé þó til þess valdin að valda þeim miska og voru hæfilegar miskabætur ákveðnar 400 þúsund krónur. Ein stúlkan tengist manninum fjölskylduböndum og voru bætur hennar ákveðnar 500 þúsund krónur.
Lögreglumál Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Maður hefur verið ákærður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa ítrekað mælt sér mót við 12 ára stúlku í þeim tilgangi að áreita hana kynferðislega. 16. júní 2026 22:05 Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum. 5. mars 2026 16:25 Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir Ívari Gísla Vignissyni, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga táningsstúlku sem tengist honum fjölskylduböndum. Hann bar fyrir sig að sönnunarmat Landsréttar hefði verið í skötulíki þar sem sakfelling hans hefði fyrst og fremst byggt á því að tiltekin Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá honum. 18. febrúar 2026 16:55 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira
Mælti sér mót við 12 ára stúlku á Snapchat Maður hefur verið ákærður í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa ítrekað mælt sér mót við 12 ára stúlku í þeim tilgangi að áreita hana kynferðislega. 16. júní 2026 22:05
Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum. 5. mars 2026 16:25
Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir Ívari Gísla Vignissyni, sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að nauðga táningsstúlku sem tengist honum fjölskylduböndum. Hann bar fyrir sig að sönnunarmat Landsréttar hefði verið í skötulíki þar sem sakfelling hans hefði fyrst og fremst byggt á því að tiltekin Snapchat-skilaboð hefðu stafað frá honum. 18. febrúar 2026 16:55