Viðskipti innlent

Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum fram­kvæmda­stjóra

Agnar Már Másson skrifar
Sylvía Kristín Ólafsdóttir er forstjóri Nova.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir er forstjóri Nova. Vísir/Vilhelm

Nova hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í félaginu Ofar og leitar nú að nýjum framkvæmdastjóra. Heildarvirði kaupanna er talið um 4,3 milljarðar króna.

Greint er frá því í kauphallartilkynningu frá Nova að með kaupunum verði Ofar, sem er þjónustufyrirtæki á sviði tæknibúnaðar og lausna, hluti af samstæðu Nova Klúbbsins frá og með 1. júní síðastliðnum. 

Tilkynnt var um fyrirhuguð kaup hinn 20. febrúar þessa árs.

Í ljósi þess hyggst Nova Klúbburinn endurskoða útgefnar fjárhagslegar horfur fyrir árið í heild og birta á markaði svo fljótt sem unnt er, segir í tilkynningunni.

Endanlegt heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna að teknu tilliti til nettóstöðu veltufjármuna og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi nemur 4.349 m.kr. sem greiðist með nýju láni, að fjárhæð 2.700 m.kr., og handbæru fé.

„Ofar hefur um árabil verið í fararbroddi á sviði tæknilausna fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir með framúrskarandi þjónustu og öflugu samstarfi við alþjóðlega tæknirisa á borð við Lenovo, Canon, IBM, Bose og Sony. Kaupin eru mikilvægt skref í að styrkja Nova Klúbbinn sem eignarhaldsfélag með aðgreindar tekjustoðir á sviði þjónustu, tækni og innviða,“ segir í tilkynningunni.

Leit stendur nú yfir að nýjum framkvæmdastjóra Ofar en stjórn félagsins munu skipa Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins, sem gegna mun stjórnarformennsku, Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, og Jón Björnsson, forstjóri Veritas, sem gegnt hefur stjórnarformennsku í Ofar.

„Ofar mun að öðru leyti starfa áfram undir eigin vörumerki og stjórnendum,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×