Innlent

Milduðu refsingu burðardýrs um hálft ár

Kjartan Kjartansson skrifar
Litáinn smyglaði þremur lítrum af kókaínvökva með sér. Talið var að hann jafngilti tæpum 1,9 kílóum af hreinu kókaíni. Myndin er úr safni.
Litáinn smyglaði þremur lítrum af kókaínvökva með sér. Talið var að hann jafngilti tæpum 1,9 kílóum af hreinu kókaíni. Myndin er úr safni. Vísir/Getty

Landsréttur mildaði fangelsisdóm yfir litáskum karlmanni úr þremur og hálfu ári í þrjú ár. Maðurinn var sakfelldur fyrir að smygla vökva til kókaínframleiðslu til landsins.

Efnin flutti maðurinn með sér í fjórum flöskum í farangri þegar hann flaug til Íslands frá Riga í Lettlandi. Hann játaði brotið skýlaust og var ekki talinn hafa komið nálægt innflutningnum að öðru leyti en að hafa tekið að sér að flytja efnin gegn greiðslu.

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi manninn í þriggja og hálfs árs fangelsi í janúar. Landsréttur staðfesti dóminn í gær en mildaði hann niður í þrjú ár. Frá refsingunni dregst gæsluvarðhald sem maðurinn hefur sætt frá 23. nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×