Bjartsýni um að ljúka þingstörfum á morgun Áróra L Davíðsdóttir skrifar 18. júní 2026 22:18 Þingmenn halda brátt gleðbeittir inn í sumarið. Vísir/Anton Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokksins segjast nokkuð bjartsýnir á að þingstörf klárist á morgun eins og stefnt er á. Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokks, segir að mörg mál ríkisstjórnarinnar hafi komið vanbúin inn í þingið þennan þingvetur.
Nóg hefur verið að gera hjá þingmönnum í dag á lokaspretti þingsins en stefnt er að því að þingstörfum ljúki á morgun. Í morgun fór meðal annars fram atkvæðagreiðsla um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar og eftir hádegi voru nýtt innviðafélag og greiðsla séreignarsparnaðar inn á höfuðstóla húsnæðislána meðal mála sem voru rædd. Í kvöldfréttum á Sýn var rætt við Sigríði Á. Andersen, þingflokksformann Miðflokksins, og Ólaf Adolfsson, þingflokksformann Sjálfstæðisflokks, um þinglok og málin sem verða rædd á morgun. Sigríður segir mál Miðflokksins um gildistíma ökuskírteina, frumvarp Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur, fara fram í fyrramálið. Þar sé lagt til að fækka kröfum um endurnýjun ökuskírteina úr átján skiptum í fjögur, eins og núgildandi lög gera ráð fyrir. Hún segir þetta mál varða alla sem eru eldri en sjötíu ára. Þverpólitíska samstöðu segir Sigríður ríkja um málið og því bindur hún vonir við að það verði samþykkt í fyrramálið. Þingmannamál Sjálfstæðisflokksins um stimpilgjöld er einnig á dagskrá morgundagsins. Ólafur segir stimpilgjöldin mikilvægt mál fyrir þá sem ætla að fjárfesta í íbúðarhúsnæði. Hann segist eiga von á mögulegri fyrirstöðu ríkisstjórnarinnar varðandi málið en vonar þó að það fari í gegn. Sigríður segir á ýmsu hafa gengið þennan þingvetur og að mál ríkisstjórnarinnar hafi komið vanbúin inn í þingið sem hafi kallað á mikla vinnu í nefndum. Ekki sé algengt að breytingartillögur séu lagðar fram um mál í þriðju umræðu. „Þetta ættu ríkisstjórnarflokkarnir og ráðherrarnir að hafa í huga þegar þeir koma með mál næsta vetur, að koma með þau aðeins betur búin þannig að það þurfi ekki að redda þessum málum inni í atkvæðagreiðslu á síðustu dögum þingsins.“ Aðspurð hvort að þeim þyki líklegt að þing hefji störf áður en þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fari fram segir Sigríður að mögulega verði tilefni til þess að ræða atriði sem kunna koma upp á í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Hægt sé að kalla saman utanríkismálanefnd hvenær sem er, óski fjórðungur nefndarmanna eftir því. „Ef það verður tilefni til þess verður það gert,“ segir hún.
Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira