Á að kenna íslensku við Háskóla Íslands? Gauti Kristmannsson skrifar 16. júní 2026 12:32 Fyrir Alþingi Íslendinga liggur nú fyrir frumvarp um svokallaðar gjaldtökuheimildir opinberra háskóla til að taka skólagjöld af nemendum sínum. Lætur ekki mikið yfir sér en er þó afar afdrifaríkt í fleiri en einum skilningi. Í fyrsta lagi er verið að innleiða skólagjöld í opinberum háskólum sem ekki hefur verið. En í þessu tilfelli er verið að miða á tiltekinn hóp nemenda, nemendur utan EES eins og sagt er. Hvað þýðir þetta í raun? Nemendur frá Afríku, Asíu, Norður- og Suður-Ameríku, Ástralíu og Nýja Sjálandi og víðar verða að greiða full skólagjöld fyrir að stunda háskólanám hér á Íslandi. Það aftur á móti veldur því að þessum nemendum fækkar umtalsvert, því margra milljóna króna skólagjöld ofan á rándýra framfærslu á Íslandi kemur í veg fyrir að flestir þeirra geti eða vilji stunda hér nám. Hvaða afleiðingar hefur það fyrir Háskóla Íslands? Í fyrsta lagi verður hann miklu fátæklegri í alþjóðlegu starfi, hér er fjöldi nemenda utan EES sem stundar nám í ýmsum lykilgreinum íslenskrar menningar og vísinda. Þessir nemendur mynda tengsl við fræðasamfélagið á Íslandi og flytja út þekkingu sína til heimalanda sinna þegar að kemur. Þarna má nefna nemendur sem læra íslensku sem annað mál og þýðingafræði og verða síðan öflugir þýðendur íslenskra bókmennta á erlendri grund. Þarna má nefna fjölda nemenda sem leggja stund á íslenskar miðaldir í bókmenntum og sögu, eitt stærsta framlag Íslendinga til heimsmenningarinnar. Þarna má nefna allan þann fjölda meistara- og doktorsnema sem eru að stunda rannsóknir á íslenskum viðfangsefnum, hvort sem það er í jarðfræði, þjóðfræði, umhverfisfræðum og fjölmörgum öðrum námsgreinum þar sem Háskóli Íslands hefur haslað sér völl og nýtur virðingar fyrir, ekki síst vegna þess að erlendir nemendur sækjast eftir að stunda nám í honum. Hvarf þessara nemenda frá Háskóla Íslands gerir hann því að miklum mun veikari, fræðilega og alþjóðlega. Sú grein sem verður þó fyrirsjáanlega fyrir mestu höggi er íslenskan. Fjöldi nemenda stundar nám í íslensku sem annað mál á þremur námsleiðum: Hefðbundnu BA námi, hagnýtri íslensku fyrir þau sem vilja nota íslensku í starfi eða námi og loks íslenskustoð fyrir þau sem vilja starfa sem sérfræðingar á Íslandi, eins og til dæmis erlendir hjúkrunarfræðingar, og einnig þau sem vilja stunda nám á íslensku í Háskóla Íslands. Þessu til viðbótar er allnokkur fjöldi erlendra nemenda í meistaranámi við Íslensku- og menningardeild, og í doktorsnámi í íslensku eru þeir allt að helmingur nemenda sem er frábær árangur, því þegar þetta fólk útskrifast getur það breitt út þekkingu sína á þessu örlitla máli og menningu þess víða um heim, eins og mörg þeirra gera nú þegar. Afleiðingin af fyrirhugaðri löggjöf fyrir íslenskuna og miðaldafræðin íslensku verður ekki aðeins sú að nemendum fækkar heldur verður það einfaldlega til þess að fjárhagsgrundvöllur greinanna hrynur, því að í íslenska kerfinu eru skólarnir fjármagnaðir með tilliti til fjölda nemenda sem ljúka prófum. Afleiðingin af því er að segja verður upp störfum ungu og efnilegu fólki sem hefur unnið grettistak í íslenskukennslu og miðaldafræðum við Háskóla Íslands. En alvarlegasta afleiðingin er veiking íslenskunáms í Háskóla Íslands og þar með veiking íslenskunnar almennt, því það er vitað að íslenskunám í háskóla er hornsteinninn að viðhaldi þessarar örtungu og við eigum ekki að afþakka þann mikla liðsstyrk sem erlendir nemendur veita okkur í þeim efnum. Ég vona að þingmenn hafi hag íslenskunnar í huga þegar þeir greiða atkvæði sitt, daginn fyrir þjóðhátíðardaginn. Höfundur er forseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gauti Kristmannsson Íslensk tunga Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar