Leik lokið: Víkingur-FH 2-5 | FH-konur á toppnum eftir markaveislu í Víkinni

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
FH-konur eru búnar að vinna sex leiki í röð í deildinni og eru komnar upp í toppsætið.
FH-konur eru búnar að vinna sex leiki í röð í deildinni og eru komnar upp í toppsætið. Vísir/Guðmundur

FH-konur eru komnar á toppinn í Bestu deild kvenna í fótbolta eftir 5-2 sigur á heimakonum í Víkingi í dag.

FH nýtti sér það að Blikar töpuðu fyrir Stjörnunni á sama tíma og Hafnarfjarðarkonur eru því með eins stigs forskot á toppnum.

Fimm FH-konur skiptu mörkunum á milli sín eða þær Nia Raisa Christopher,

Ingibjörg Magnúsdóttir, Deja Jaylyn Sandoval, Thelma Lóa Hermannsdóttir og

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir.

Freyja Stefánsdóttir skoraði bæði mörk Víkingsliðsins sem komst í 1-0 í leiknum.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira