Solbakken neitar að hafa sýnt Ancelotti vanvirðingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2026 21:11 Ståle Solbakken, þjálfari norska landsliðsins, og Erling Braut Haaland eftir sigurinn á Fílabeinsströndinni í 32 liða úrslitunum. Getty/Torbjorn Tande Erlendir fjölmiðlar gerðu mikið úr yfirlýsingu norska landsliðsþjálfarans eftir sigur í 32 liða úrslitum heimsmeistaramótisins í fótbolta en hann segir að orð hans hafi misskilist.
Ståle Solbakken, þjálfari Noregs, sagði að það væri „mikill heiður“ að mæta Carlo Ancelotti í 16-liða úrslitum HM gegn Brasilíu á sunnudag, eftir að hafa hafnað ásökunum um að hann hefði sýnt þjálfara Seleção vanvirðingu í myndbandsupptöku úr búningsklefanum þar sem hann lýsti yfir: „Ancelotti, við erum á leiðinni!“ Þegar Solbakken ræddi við fjölmiðla fyrir leikinn gegn Brasilíu var hann fljótur að hrósa sigursælasta þjálfara í sögu Meistaradeildarinnar. Aðeins til að hrósa honum „Þetta var aðeins til að hrósa honum [Ancelotti] því hann er einn af stærstu þjálfurum í evrópskum fótbolta,“ sagði Solbakken þegar hann var spurður út í ummæli sín. „Hann er kannski sá besti með fimm Meistaradeildartitla og titla í mismunandi löndum.“ 😅🇳🇴 Stale Solbakken, técnico da Noruega, manda recado para o Brasil após classificação para as oitavas de final da Copa do Mundo:“Pode esperar, Carlo Ancelotti, estamos chegando!”🗞️ @ESPNBrasil 🎥 @nff_landslag pic.twitter.com/iqPBZMtw3K— Planeta do Futebol 🌎 (@futebol_info) July 1, 2026 „Hvernig hann kemur fram við andstæðinga, hvernig hann hagar sér í fótboltanum er eitthvað sem allir geta litið upp til. Það er líka frábært fyrir fótboltann að hann taki við landsliðsstarfi hjá stærsta landsliði heims,“ sagði Solbakken. „Það er mikill heiður fyrir okkur, en á morgun verðum við að sigra hann og sigra Brasilíu til að halda áfram í keppninni,“ sagði Solbakken. Hafa aldrei tapað á móti Brasilíu Norðmenn hafa aldrei tapað á móti Brasilíu en glæsilegur árangur Noregs gegn Brasilíu nær aftur til ársins 1988 og felur í sér sigur í riðlakeppni HM 1998 í Frakklandi. „Við getum sigrað Brasilíu ef við erum 100%, annars eigum við ekki möguleika. Brasilía er enn sigurstranglegri, en ég held að þeir séu ekki jafn mikið sigurstranglegir og undanfarin ár,“ sagði Solbakken. „En já, það yrði óvænt ef Noregur myndi vinna. Liðið er að ná góðum úrslitum og leikstíll okkar hjálpar líka, en það er erfitt að segja til um prósentulíkur okkar,“ sagði Solbakken. Þýddi mikið fyrir norskan fótbolta „Brasilía hefur marga góða leikmenn, við þurfum að stöðva þessa einstaklinga, en fyrst og fremst verðum við að stöðva Brasilíu sem lið,“ sagði Solbakken. „Sigur okkar árið 1998 hefur þýtt mikið fyrir norskan fótbolta í langan tíma, en við verðum að muna að Brasilía var þegar komin áfram og hafði ekkert að keppa um. En þetta er útsláttarleikur og bæði lið þurfa að vinna til að komast áfram,“ sagði Solbakken.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira